Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Blaðsíða 21
23
sem jarðepli hafa sprottið.
Skýringar.
í garði skólastjóra Sigurðar Sigurðssonar, Akureyri.
Leirjarðvegur, nýbrotinn. Plægt haustið 1903. Herfað og plægt
aftur vorið 1904. Sáð og borið á 6/s. Tekið upp 19/<j.
Chilesaltpjetur og Superfosfat hefir aukið uppskeruna um 5400
pd. og er þar 140,60 kr. ágóði. Hagur er að því, að bera áburðar-
efnin á, annað tveggja blönduð eða einsöraul; þó er skaði að bera
á Chiiesaltpjetur einan. Superfosfat verkar mest.
í garði Sigfúsar bónda Björnssonar, Reykjum, við hverina í
Reykjahverfi.
Jarðvegurinn mold, leir og sandiblandinn. Gamall jarðeplagarður.
Áburðurinn borinn á og sett niður í byrjun júnímánaðar. ÖIl á-
burðarefnin saman verka mest, eða hafa aukið uppskeruna um
5108 pd. á dagsláttunni og nemur hagnaðurinn þar 124,18 kr. á
dagsláttunni. Kúamykja hefir einnig haft miklar verkanir, eða
aukið uppskeruna um 4662 pd. á dagsláttunni.
í garði Hallgríms Kristinssonar, Reykhúsum.
Jarðvegurinn mold, leir og sandiblandinn. Gamall jarðep'agarður.
Það er hagur að því, að bera öll áburðarefnin á. Mestar verkanir
hefir þó Kalí, aukið uppskeruna um 8000 pd. á dagsláttunni. Ann-
ars er eigi samræmi í árangrinum. Orsakirnar geta ef til vill verið,
mismunandi frjór jarðvegur á tilraunasvæðinu eða ólíkur jarðhiti.