Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Side 29

Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Side 29
Af framanrituðum skýrslum sjest árangurinn af áburðar- tilraununum s. 1. sumar. I mörgum af þeim áburðartilraun- um, sem eigi eru prentaðar er árangurinn nokkuð líkur í aðalatriðunum. Af þessum tilraunum er sjálfsagt varhuga- vert, að draga almennar ályktanir, þar eð vjer aðeins höf- um eins árs reynslu. Að síðustu skulum vjer þó leyfa oss að benda á: Af til- raununum sjest ljóslega, að það getur svarað kostnaði að nota tilbúin áburðarefni sjeu þau notuð á rjettan hátt. En á hina hliðina, getur það li'ka verið mikið tjón, að bera á þær áburðartegundir, sem eigi vanta í jarðveginn. Tilraunir eru nauðsynlegar þar, sem nota á tilbúin áburðarefni. Til- búin áburðarefni hafa aukið grasvöxtinn meira þar sem þau hafa verið borin á óræktað land en búfjáráburður, en þess ber líka að gæta, að verkanir búfjáráburðarins eru varanlegri en tilbúinna áburðarefna Hvað notkun áburðarefnanna við víkur, þá er þetta athugandi: 1. Kaliáburður einsamall hefur aukið að mun uppskeruna í görðum og á túnum. 2. Þar sem Chilesaltpjetur hefur verið borinn á með Kali, er mjög góður árangur á nokkrum stöðum t. d. í garði Hallgríms Kristinssonar í Reykhúsum, þar sem hagurinn var 150 kr. á dagsláttunni. 3. Annarsstaðar en í görðum og á túnum hefur Kaliáburður haft litlar verkanir og á nokkrum stöðum virðist hann jafnvel hafa minnkað grassprettuna, einkum ef hann er notaður með öðrum áburðarefnum. 4. Fosforsýruáburður hefur víðast aukið sprettuna töluvert meira en Kalíáburður. Bezt hefir þó reynst að bera á 3

x

Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands
https://timarit.is/publication/213

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.