Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Síða 50
54
1. Amerikönsk hjólreka. Rekan er fest á ás milli tveggja
hjóla, og er þannig útbúin að hægt er að hefja, lækka og
hvolfa henni við, eftir vild. A þenna hátt er mjög hægt fyrir
einn mann að fylla rekuna og hvolfa úr henni. Þar sem þarf
að flytja mold til nokkuð langan veg er þetta verkfæri eink-
ar þarft. Lfkindi eru til að hjólrekur geti komið að miklum
notum hjer á landi, einkum við vegagjörð, þar sem þarf að
flytja til mold til að fylla upp í vegina.
2. Vanalegar hestarekur frá Aadals & Haslebrug eru
úr stálplötum. 2 hestar draga rekur þessar. Þær eru þægri í
meðferð en hjólrekur þar sem stutt þarf að færa til.
Með sama lagi og þessar rekur, hefur Sigurður Sigurðsson
smiður smíðað 2 rekur, aðra minni, fyrir i hest og aðra
stærri, fyrir 2 hesta.
II. Handverkfæri.
Það hefur verið útvegaður mesti fjöldi af handverkfærum,
bæði ýms nýrri verktæri, sem eigi hafa áður verið kunn hjer
á landi, og sýnishorn af ýmsum algengum verkfærum t. d.
skóflum og kastkvíslum. Þannig hafa verið útveguð ýms verk-
færi frá norskum, sænskum, enskum, dönskum og þýskum
verksmiðjmm. Verkfæri þessi eru til sýnis við tilraunastöð
Ræktunarfjelagsins. Rannsóknir viðvíkjandi handverkfærum
eru ei enn fullkomnar og verða því að bíða til næsta árs að
gefa nákvæma skýrslu um þau. Þó skal þess getið að lítveg-
að hefur verið:
1. Vjel til að sá fóðurrófnafræi.
2. Vjel til að sá grasfræi og höfrum. Mjög handhæg.
3. Garðplógur. Einkar þægilegur til að reita illgresi úr
görðum og hreykja að jarðeplum.
4. áhald til að strengja með gaddavír.
5. Lítil handsláttuvjel.
Þar að auki skóflur, kastkvíslar, ýms garðyrkjufæri og margt
fleira.