Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Page 52

Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Page 52
56 Haustið 1903 var farið að undirbða tilraunastöðina, og á þessu ári hefur hún öll verið girt og tekin til ræktunar. Allur kostnaður við tilraunastöðina nemur 591.49 krónum. Auk þess hefur Ræktunarfjelagið lagt til fræ, plöntur og til- búin áburðarefni. Verð þess nemur 46.28 kr. Til þess að koma tilraunastöðinni á fót hafa einstakir menn gefið til fyrirtækisins 217.40 kr. Auk þess hefur tilraunastöðin fengið styrk frá sýslusjóði, hreppssjóði, jarðræktarfjelagi Húsa- víkur og Ræktunarfjelagi Norðurlands. Síðast liðið sumar hafa verið gjörðar nokkrar tilraunir. 1. Aburðartilraunir. Frá árangri af þeim er skýrt á bls. 20. 2. Tilraunir með 19 grasfrætegundir, 3 hafraafbrigði, 2 bygg- afbrigði, 4 næputegundir og gulrófnafræafbrigði. Spretta á grasfræinu var fremur lítil, sjerstaklega af ertu- blómaættinni, aptur var hún nokkur af sumum tegundum af grasættinni t. d. Avena elatior, Agrostis vulgaris og Phleum pratense. Af gulrófum, plöntum úr vermireit, fengust 46 tunnur af dagsláttunni. Af höfrum spruttu Ligoverhavre best, 26 hestar af dagsláttunni. Byggtegundirnar (Björnebygg og Finnebygg), spruttu báðar jafnvel, 25 hestar af dagsláttunni. Af næpum spruttu blánæpur best, 80 tunnur af dagsláttunni. Bygg-grasið varð 48 þuml. hátt, bar ax og nokkuð þroskað bygg. Einnig bar það af hafra grasinu, sem best var sprottið, ax, en náði ekki eins mikilli hæð og bygg-grasið. Af trjáa- og runnategundum var plantað í tilraunastöðina greni, furu, íslensku og norsku byrki, sólberja- og rauðberja- runnum, siberiskt ertutrje, lævirkjatrje, gulvíðir með rót, gul- víðisgræðingum og rósum. Af norska byrkinu, lævirkjatrje og ertutrje dóu nokkrar plöntur. Sólberja- og nokkrir rauðberja- runnar báru fullþroskuð ber. Umsjónarmaður tilraunastöðvarinnar er Baldvin Friðlaugs- son á Húsavík. Hann hefur innt starfa þann mjög vel af hendi, og látið sjer annt um að undirbúningur og hirðing tilraunastöðvarinnar sje sem bestur,

x

Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands
https://timarit.is/publication/213

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.