Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Page 71

Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Page 71
75 Upptaka. Nokkru áður en tekið er upp er gott að hreykja moldinni upp að rófunum. Þær verða þá bragð betri. Þegar rófurnar eru teknar upp, þarf að gjöra það var- lega, og ef þær sitja fastar í moldinni, þarf að losa þær upp með stungukvísl. Hafi moldinni eigi verið hreykt að rófunum, er best um leið og þær eru teknar upp, að bera þær saman í dríli. Dríli þessi eru þannig gjörð, að rófunum er raðað í hring ca. 3 fet að þvermáli. Ræturn- ar eru látnar snúa inn í hringinn, en blöðin út. Þannig er rófunum raðað hverri ofan á aðra. Drílið verður keilu- myndað. Þannig eru rófurnar látnar Iiggja 1—2 vikur. Það er sagt að rófurnar verði þá bragð betri, og þoli betur geymsluna. Á hvaða tíma þarf að taka uþp, er undir tíðarfari komið. Því þarf að vera lokið áður en snjóar og frost koma. Efnasamsetning. Gulrófurnar geta verið nokkuð breyti- legar, og fer það eptir loptslagi, jarðvegi, þroskastigi og hver afbrigði ræktuð eru. Því miður höfum vjer enga innlenda reynslu þessu viðvíkjandi, en eptir dönskum rannsóknum, er efnasamsetning gulrófnanna talin að vera að meðaltali í °/o. Rætur Blöð Vatn............87.5 °/o 87.o °/o Eggjahvítuefni. 1.5 °/o 2.7 % Fita............ 0.2 % 0.4 °/o Sykurefni .... 8.2 °/o 6.8 °/o Cellulose .... 1.3 °/o 1.4 °/o Steinefni .... 0.9 °/o 7.7 °/o Þess skal getið, að þess stærri sem róíurnar eru, er á- litið að hlutfallslega minna af næringarefnum sje í þeim. Ef gulrófur vega yfir 2 pd., fer næringargildi þeirra að minnka. Oeymsla. Rófurnar má geyma á ýmsan hátt. Á hvern hátt sem henni er hagað, er fyrst og fremst að athuga, að eigi verði of heitt á rófunum á geymslustaðnum. Hit- inn á helst að vera við 0 °. Sje hann meiri, getur það orðið orsök þess að rófurnar fara að skjóta frjóöngum,

x

Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands
https://timarit.is/publication/213

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.