Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Page 91

Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Page 91
D5 endurskoðaðir og kosnir endurskoðendur til næsta árs; aðal- fundur kveður á um starfsemi fjelagsins komandi ár. Fund- irnir skulu haldnir til skiptis í sýslunum, eptir því, sem síð- asti aðaltundur ákveður. 9. grein Stjórnin annast allar framkvæmdir fjelagsins. Hún boðar til fundar og undirbýr málefni þess til aðalfundar. Einnig hefur stjórnin á hendi alla bókun fyrir fjelagið, brjefavið- skipti og ræður stárfsmenn þess. Stjórnin getur bóðað til aukafundar til að ræða einstök vandamál, einnig er skylt að halda aukafundi, sje þess æskt af V3 hluta tulltrúanna. 10. grein Fjelagið lætur árlega prenta skýrslu um starfsemi sína. Sjái fjelagið sjer fært, gefur það út tímarit eða smáritlinga um jarðrækt. Allt það, sem fjelagið lætur prenta, verður sent öllum fjelögum ókeypis. 11. grein Gjalddagi á tillögum fjelagsmanna er 1. Október ár hvert. Reikningsár fjelagsins er almanaksárið. 12. grein Hver sýsla á fjelagssvæðinu á kost á að koma upp einni aðaltilraunastöð á þeim stað í sýslunni, sem stjórn Ræktun- arfjelagsins álítur heppilegastan, með því skilyrði að sýslan sjái um land og girðingu, ásamt undirbúningi jarðvegsins, en fjelagsstjórnin segir fyrir um hvernig haga skuli tilraun- unum. Fjelagið styrkir tilraunastöðvar þessar með árlegu fjárframlagi er ekki sje minna en '/4 á móts við styrk þann, er þær njóta annarstaðar frá og borgar að hálfu leyti þeim manni er annast tilraunirnar. Það styður og eptir því sem unnt er tilraunastöðvar, er komið yrði upp af einstökum fjelagsdeildum enda sje staðurinn valinn 1' samráði við fje- lagsstjórnina.

x

Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands
https://timarit.is/publication/213

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.