Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Blaðsíða 95
99
artegundum í glösum. Enn fremur sýndi hann áhrif áburðar-
tegundanna á hafragras, er vaxið hafði síðan í vor í köss-
um, er kaupmaður C. Knudsen á Sauðárkróki hafði góðfús-
lega annast fyrir fjelagið, og myndir yfir efnasamsetning í
gulrófum, jarðeplum, fóðurrófum, töðu o. s. frv.
10. Eptir að fundi hafði verið frestað um stund, voru
sýnd ýms verkfæri, sem Ræktunarfjelagið hafði keypt svo
sem plógar, herfi, skófiur, gaflar, garðplógur, sáningarverk-
færi, arfajárn og ýms önnur verkfæri.
11. Um kveldið var til sýnis eitt af kennsluáhöldum Hóla-
skóla, skuggamyndavjel, og sýndar allmargar skuggamyndir.
Fundi frestað til næsta dags kl. 8 f. h.
12. Framsögumaður fjárhagsnefndarinnar, Olafur Briem,
lagði fram álit nefndarinnar. Stjórn Ræktunarfjelagsins hafði
í áætlun sinni miðað við, að fjelagið fengi að eins tillag úr
landssjóði, eins og ákveðið er í fjárlögunum, en fjárhags-
nefndin áleit, að fjelagið mundi bt'ða svo mikinn hnekki við
það, að það yrði að leggja allt kapp á að fá io þús. króna
styrk ti! fjelagsins; en ef þessu gæti eigi orðið framgengt,
þá yrði stjórn fjelagsins að hafa heimild til að taka lán handa
fjelaginu, til þess að það gæti leyst störf sín vel af hendi.
Eptir allmiklar umræður var samþykkt í einu og öllu
svo hljóðandi
Áætlun
um tekjur og gjöld Ræktunarfjelags Norðurlands árið 1905.
TEKJUR.
1. Tillög og gjafir.......................... Kr. 1600.00
2. Landssjóðsstyrkur.......................... — 6500.00
3. Aukafjárveiting úr landssjóði............... — 3500.00
Alls ... Kr. 11600.00
GJÖLD.
1. Skuld frá f. á........................... Kr. 600.00
2. Til aðalstöðvarinnar og verklegrar kennslu — 3500.00
3. — aukatilraunastöðva....................... — 1500.00
4. — verkfærakaupa............................ — 500.00
5. Fyrir fræ og útsæði........................ — 700.00
6. — tilbúin áburðarefni...................... — 1200.00
7- — plöntur og trjefræ....................... — 300.00
8. Ferðir til leiðbeiningar fyrir fjelagsmenn — 1200.00
9. Stjórn fjelagsins.......................... — 300.00
10. Styrkur til að nema verklega jarðyrkju . — 500.00
Flyt . . . Kr. 10300.00