Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 45

Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 45
45 áskynja en börnin, hvort treysta má orðum þeirra, sem þau eru upp á komin. Frá því hún var fjögra ára hefur hún vitað, hvernig í öllu lá. Sje nokkur í efa, þá þarf ekki annað en að minnast móðurinnar! Hvernig það gat atvikazt, að hinn ráðsvinni, kvenn- fóstraði prófessor í »Hedda Gabler«, gekk að eiga Heddu, — ja, það er víst jafnóskiljanlegt sem hitt, að þessi kona, alhlaðin sprengi- tundri gat orðið þrítug, eða þar um bil, án þess að minnsta tund- urgos ætti sjer stað, og menn yrðu þannig varaðir við osfrv. osfrv. Hjer við bætist hans hála, stundum ranga notkun af vísindalegum rannsóknum á dáleiðslu, innblæstri hugsana og ættgengi. Ættgengi álítur hann mega sín meira en uppeldið, sem hann tekur ekki einu sinni neitt tillit til. Það hefur komið við hjörtu vor allra, að sjá hinn aldna snill- ing eptir svo langan vinnudag og svo langa dvöl fjarri fósturjörð- unni hefja norska fánann í síðasta atriði siðasta leikrits síns. Gagn- stætt venju Ibsens kemur þetta atriði óundirbúið, og er það öruggt merki þess, að honum hefur allt i einu dottið það í hug. Hann hefur hjer, sjálfsagt með hrærðum huga, tekið á sig gervi aðal- persónu leiks síns. Þetta er útlistað þannig, að hann sje nú kom- inn í sætt við þjóðfjelagið; en það er meira. Þegar vjer verðum gamlir, missum vjer litina; höfuð vort verður æ hvítara og hvítara, og virðist eins og hverfa út í bláinn, þar sem það að lokum á að hjaðna upp. Eins er tilfinningum vorum varið. Andstæði litanna í þeim hverfur æ meir og meir út í óendanlegan geiminn; það er einingin, sem þeir eru að keppa að. Ibsen hefur smámsaman lærzt að láta ekki djúpa tilfinningu koma í ljós, fyrri en hann gat látið hana endurspeglast í litlu atviki. Þannig hefur hann og farið að hjer. —• I flotanum, sem er á uppsiglingu, sjáum vjer, rjett við hliðina á dökku skútunni hans, albjarta skútu; er hún borðabreið ofan- sjávar og skínandi. Því þar kemur Jonas Lie. Frá því að hann fyrir fullum tuttugu og fimm árum sendi oss fyrstu bók sína, »Hinn framsýni«, höfum vjer fengið eina bók á hverju ári. Þær hafa liðið inn í bókmenntir vorar hægt og reglu- lega, nærri eins og eimskip, er ferðast eptir ákveðinni áætlun, opt að aflokinni langri og strangri ferð, leggur að ákveðnum stað á ákveðinni stund, þar sem því er heilsað af þjóðarfánanum, toll- stjórn, vinum og þeim, sem eptirvæníingin hefur dregið þangað. Það er meir en tilviljun ein, að kvennfólkið hefur altjent verið

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.