Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Page 73

Eimreiðin - 01.01.1898, Page 73
Enn er og kafli um braglist og bragarhætti og hveínig skáldunum sje flokkað i þjóðskáld, alþýðuskáld, hagyrðinga og leirskáld — og að lokum um kraptaskáld. Par er og töluvert langur kafli (i i bls.) um afskipti kvenna og áhrif á menntalif og bókmenntir Islendinga bæði að fornu °g nÝÍu- ... , Annar kaflinn heitir: Yfirlit yfir menntalifið á Islandi frá því um siðabótina (bls. 46—202). En hann inniheldur í rauninni langt um meira, en nafnið bendir til. Hann er hvorki meira nje minna en nokkurn veginn fullkomin bókmenntasaga Islands á seinni öldum — stærsta og bezta bókmenntasaga þessa timabils, sem enn er til. Og i sambandi við sögu bókmenntanna sjálfra er svo skýrt frá stjórnarfari, þjóðmegun, siðgæði, trúarlifi, hjátrú o. s. frv. á hverri öld, og eins hvernig þetta og menntalífið hafi verið á undanfarandi öldum allt frá bygging landsins. Priðji kaflinn heitir: Islenzk nútíðarskáld (bls. 203—495). I þessum kafla er lýsing á hinum helztu nútiðarskáldum Islands frá því á 17. öld. Hefir að sönnu verið minnzt á þau öll áður i miðkaflanum (bókmenntasögunni), en í þessum kafla er þeim lýst miklu greinilegar og ýtarlega skýrt frá æfiferli þeirra og ritum og dómur lagður á þau. Jafnframt eru og prentuð fleiri eða færri sýnishorn af kvæðum hvers einstaks skálds, þýdd á þýzku. Pau skáld, sem_ þannig er lýst, eru: Hallgrimur Pjetursson, Stefán Olafsson, Páll Vidalin, Arni Böðvarsson, Gunnar Pálsson, Eggert Olafsson, Jón porláksson, Sigurður Pjetursson, Benedikt Grön- dal (eldri), Bjarni Thórarensen, Sveinbjörn Egilsson, Björn Gunnlögsson, Jónas Hallgrimsson, Sigurður Breiðfjörð, Hjálmar Jónsson, Jón Thóroddsen, Gisli Brynjúlfsson, Grimur Thomsen, Benedikt Gröndal (yngri), Steingrímur Thor- steinsson, Matthias Jochumsson, Kristján Jónsson, Páll Ólafsson og Jón Olafs- son. I sjerstakri deild er svo stuttlega lýst hinum yngstu skáldum I s 1 a n d s og eru þar taldir: Gestur Pálsson, Einar Hjörleifsson, Hannes Hafsteinn, þorsteinn Erlingsson, Einar Benediktsson, porsteinn Gislason og Hannes Blöndal. Þó eru engin sýnishorn af kvæðum Gests Pálssonar, Einars Benediktssonar nje Porsteins Gíslasonar. En eptir alla hina eru þýdd fleiri eða færri kvæði. Aptan við bókina eru viðaukar og leiðrj ettingar (bls. 497'— 502) og ágætt þrenns konar nafnatal og hluta (bls. 503—527) ásamt leiðbeining um framburð nokkurra íslenzkra stafa (bls. 328). Framan við bókina er fróðlegur formáli og efnisyfirlit (I—VII). Pað mundi hafa þótt laglega af sjer vikið, ef einhver Islend- ingur hefði ritað aðra eins bók eins og þetta. En þegar það nú er útlendingur, sem hefir ritað hana — útlendingur, sem ekki einu sinni hefir komið til íslands —, þá má beinlinis kalla það þrekvirki. Pvi það eru ekki neinir smáræðis örðugleikar á því fyrir útlending, sem situr suður i Vinarborg, að skrifa sona bók. Auk þess sem hann á mjög erfitt, og stundum jafnvel ómögulegt, með að ná i allar þær bækur, sem hann þarf á að halda, þá er skáldamálið okkar íslenzka ekki neitt barnaglingur við að eiga; ekki sízt þegar nú ekki er kostur á fullkomnari orðabókum yfir það, en menn hafa nú að að hverfa. En vel verður hver sá að skilja, sem ætlar sjer að þýða kvæði og meta gildi þeirra, svo vel sje. Pví snilld kvæðanna getur opt og einatt verið eins mikið fólgin í bún-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.