Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Page 74

Eimreiðin - 01.01.1898, Page 74
74 ingsíþróttinni eins og i sjálfu efninu, í hárfínum orðaleik og hinu innra sambandi orða og setninga, sem vekur unað hjá innfæddum lesendum, en hætt er við að dyljist flestum útlendingum meir eða minna. En þótt örðugleikarnir hafi verið miklir, þá hefir bók Poestions tekizt mæta vel. Eað er enginn fljótfærnisblær á henni, heldur ber allt vott um hina mestu vandvirkni og samvizkusemi. Hann hefir kynnt sjer allt, sem ritað hefir verið um nútíðarbókmenntir vorar, bæði á ís- lenzku og útlendum málum, og hann hefir leitað svo vandlega, að manni verður opt að verða forviða yfir því, hvað hann hefir getað snuðrað uppi (t. d. smáathugasemdir i dagblöðum o. s. frv.). En hann hefir ekki látið hjer við lenda. Pegar hann hefir þótzt þurfa að fá eitthvað frekar að vita, en hann gat sjeð í bókum, þá hefir hann snúið sjer til ýmsra íslenzkra fræðimanna og spurt þá spjörunum úr. Einmitt fyrir þá sök eru i bók hans ýmsar upplýsingar, sem hvergi eru til annars staðar á prenti. En það er ekki nóg með það, að höf. hafi gert sjer allt far um að ná í allt, sem eitthvað var á að græða fyrir bók hans. Hann hefir líka sýnt lofsverða viðleitni á að vinza úr þvi og nota það eina, er bezt væri og rjettast. Auðvitað hefir hann ekki sjálfur komizt yfir að lesa öll þau rit og kvæði, sem hann getur um og leggur dóm á, og þvi opt orðið að byggja á frásögn og dómum annara. En þá er vand- inn að vita, hverjum fylgja skal, ef dómarnir eru misjafnir. En höf. hefir að jafnaði tekizt vel að ráða fram úr þvi, og dómar hans eru þvi yfirleitt svo rjettir, sem til verður ætlazt með nokkurri sanngirni. Auð- vitað kemur það fyrir, að vjer getum ekki verið dómum hans fullkom- lega samþykkir, en vjer verðum hins vegar að játa, að hann hefir þá jafnan fylgt því, sem hann hafði ástæðu til að álita rjettast og áreiðan- legast. Aptur eru þeir dómar, sem hann auðsjáanlega byggir á eigin rannsókn, miklu óbrigðulli. Fyrir kemur og það, að höf. fyrst skýrir frá dómi annara um eitthvert skáld, en kveður svo að lokum upp sinn eigin dóm og hittir þá að voru áliti einmitt hið rjetta (t. d. um Stefán Olafsson). Sumstaðar er þó eins og hann hiki sjer við að risa öndverður gegn dómi annara, þó sjá megi, að hann sje á annari skoðun og henni rjettari. Er slíkt næsta skiljanlegt og sýnir varfærni höfundarins og hve annt honum er um, að gjalda varhuga við að halla rjettu máli. Fað er engin furða, þó hann hafi ekki ætíð treyst sjer til að ganga i ber- högg við dóma nafnkunnra Islendinga. Hinar þýzku þýðingar á sýnishornunum eru eptir hina og þessa, en þó langflestar eptir Poestion sjálfan. Pær hafa, að þvi er vjer fáum sjeð, yfirleitt tekizt rnjög vel og gefa góða hugmynd um frumkvæðin. Þar við bætist og, að höf. hefir að öllum jafnaði verið mjög heppinn í vali sýnishornanna, enda hefir hann i þvi efni haft þann ráðanaut, sem til þess er trúandi, að kunna úr að velja, nefnilega skáldið Steingrím Thorsteinsson. Bókin er að ytra frágangi prýðilega úr garði ger. Þó hafa ekki allfáar misletranir og prentvillur slæðzt inn í hana, einkum i stafsetning íslenzkra nafna og orða; en þær eru þó i rauninni miklu færri, en búast hefði mátt við, þar sem höf. hefir ekki getað notið aðstoðar neins ís- lendings við prófarkalesturinn. Úr flestum þessum villum er bætt i

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.