Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Síða 19

Eimreiðin - 01.09.1898, Síða 19
i?9 jafnt og þjett, þar var ekkert hlje, engin viðstaða; sama grund- vallarskoðunin, hugmyndin um alheimssamræmið, gengur í gegn- um nálega öll skáldrit þessa tíma; menn láta hin ýmsu öfl mætast tíg heyja stríð hvort við annað, svo að því meira beri á fegurðinni, þegar leiknum er lokið; menn láta himininn hyljast dimmum skýjum, að eins til þess að stjarna hugsjónarinnar, eða hins háleita takmarks, megi blika því skærar að lokum; og þótt menn gætu eigi jafnan lygnt augum við rótarskap og órjettlæti þessa heims, þá vissu menn, að annars heims (beinlínis eða óbeinlínis) mundi sakleysið öðlast sín fullnaðargjöld og rjettlætinu verða fram- gengt. Það var líka hægur vandi að skilja sauðina frá höfrunum; þvi að allt, sem fylgdi fram merkjum hugsjónarinnar, var af hinu góða, og það, sem á móti var, af hinu vonda. Og hugsjónin sjálf var auðfundin, þótt hún gæti að vísu tekið ýmsum myndum á ýms- um tímum. Efst á blaði var auðvitað alltaf einlæg ást og lif- andi tilfinning fyrir náttúrunni, stórfengi hennar og samræmi; þá var hreinskilni og trúmennska, hjartagæzka og stöðugleiki í trúnni; ennfremur á öndverðu þessu tímabili konungsveldi og allt, sem þar að lýtur, en annars fyrirlitning á öllum veraldlegum gæðum ; seinna frelsi, þjóðernistilfinning og ást á ættjörðunni, eins og sagan lýsir henni með hennar mikla veldi og þjóðskörungum. Það var hægur vandi að skilja sauðina frá höfrunum, því að sauðirnir voru hvítir, en hafrarnir svartir; enda voru menn ekki lengi að tína þá í sundur. Við skulum nú snöggvast virða fyrir oss, hvaða stjórnmála- byltingar liggja á bak við bókmenntahreyfingarnar í Danmörku á þessu tímabili. Skírdaginn 1801 kveður við dynjandi skothríð á Eyrarsundi; það var fagnaðarkveðja nýju aldarinnar. Margir önd- vegishöldar rómönzku stefnunnar voru sjónarvottar að bardagan- um og gátu sjálfir sjeð, hversu hraustlega vörn smáríkið Dan- mörk veitti gegn stórveldi Breta, og hversu drengilega Danir buðu flota þeirra byrginn, svo mikið ofurefli sem í móti var, og þótt flotaforinginn væri hvorki meira nje minna en Nelson sjálfur, er jafnvel Napóleon mikli hafði orðið að fara halloka fyrir. I sam- fleytt áttatíu ár hafði Danmörk ekki átt í neinum ófriði; það var eins og eitthvert undarlegt ævintýri væri nú alt í einu borið að höndum; enda skoðuðu menn það líka sem ævintýri, sem nokkurs konar endurreisn fortíðarinnar, og þá fór að ráma í, að til væri eitthvað annað en eintómar »lifsnauðsynjar«, er vert væri að gefa 12*

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.