Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Page 26

Eimreiðin - 01.09.1898, Page 26
þær og málefni, er lágu samtíðinni mest á hjarta. — Allt voru það þættir í sama reipinu: sannleiksástundun umfram allt og veruleg- leikalýsingar; því að verulegleikinn, það er að segja hinn áþeifan- legi hluti tilverunnar og það sálarlíf vort, sem vjer erum oss ljós- lega meðvitandi fyrir áhrif hins verulega heims, — sá verulegleiki vissu menn að væri sannleikur. Hin nýja stefna átti að vera eins konar uppreisn holdsins gegn yfirdrepsskap og andlegu ofdekri undanfarandi tíma—ekki ósvipað »renaissancen« (d: endurfæðing), er listir og vísindi á miðöldunum drápu sig úr dróma andlegrar harðstjórnar. Hún átti að berjast undir merkjum vísindanna, í stað þess að gefa sig á vald blindri trú og draumórum, eins og menn höfðu gjört að undanförnu. »Ljós yfir landið, það er mark vort og mið«, segir J. P. Jakobsen. Meðal áheyrenda Brandesar var ungur málari, Holger Drachmann að nafni. Orð ræðumannsins hleyptu huga hans í bál og brand og kveyktu hjá honum kjark til að viðurkenna fyrir sjálfum sjer og öðrum, það sem hann hafði lengi búið yfir. Hann snaraði penslinum á hilluna og greip til pennans með þeim ásetningi að leiða straum hinnar nýju stefnu út yfir landið. Á einum stað kemst hann svo að orði: »Store Sangere var der nok, Sora var i Landet at nævne; Besunget har de det meste, Men Havet glemte de fleste.*1 Hann er sævarskáld. Hverjum hlýtur ekki að detta sjórinn í hug, hvert sinn og hann tekur sje bækur Drachmanns í hönd. Og sjálfur er Drachmann og kvæðalög hans eigi ósvipaðs eðlis og þessi höfuðskepna, — hinn víðlendi voldugi sær, síkvikur og þverúðarfullur, ýmist , grátþrunginn og beljandi eða raulandi blíðum rómi, ýmist háðskur á svip eða hýr í bragði; hann brýtur allt og bramlar, sem meyrt er og fúið, en færir oss einatt dýr- mætar byrðar á baki; hann leikur í dag á als oddi, fagnar og syngur með innilegu ánægjubrosi, en á morgun er hann í myrk- um ham, emjandi og veinandi, — særinn, sem einatt er svo angur- blíður og aldrei verður daufur, sem alltaf er saltur og beiskur á bragðið, og aldrei stirðnar nema í gaddgrimmdarfrosti. Hann getur verið óhreinn og gruggugur, en stundum er hann hreinn og tær 1 Þ. e. Það vantaði ekki mörg og mikil skáld, er kváðu um flest, sem til var í landinu. En sjónum gleymdu þeir flestir.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.