Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Page 44

Eimreiðin - 01.09.1898, Page 44
204 og ánægju í förnum fegurðarheimi, en fylgjast ekki fremur en sauðir með tímanum. Hann veit hversu ernbættismönnum í sveitaþorpunum hættir við að kankbrosa í kampinn að samborg- urum sínum, þessum dæmalausu smásálum. Og þá er hann ekki mjög ófróður um alþýðuna á öllum stigum, allt frá sjálfseignar- bubbum niður í rjettar og sljettar hreppakindur, og óhætt mun mjer að fullyrða, að engin sje sú stjett í öllu landinu, að hann hafi ekki dregið einkennismestu meðlimi hennar fram á sjónar- sviðið og látið þá nauðuga viljuga dansa þar eptir, er hann spilaði fyrir. Hann þekkir tilfinningar ungra, blóðheitra stórbændadætra gagnvart úttauguðum götuslánum frá Kaupmannahöfn, veit hversu greinilega þær skipta litum og verða ýmist rauðar sem blóð eða hvítar sem mjöll, og svo hvaða augum frúrnar, sem æðstar eru að mannvirðingum þar í þorpinn, líta á öll þessi ósköp, hversu þær fyllast helgri vandlæting —• og kveljast af afbrýðissemi fyrir hönd dætra sinna. Hann veit, hvernig þær fara að dingla kjól- skottinu, þegar þær fyllast rjettmætri reiði, hvað þær segja upp- hátt eða hvað þær láta ósagt og undirskilið. Og þegar nú þetta unga göfugmenni býður frúnum og ungismeyjunum freyðandi kampavín, kinka þær kolli ofboð stuttaralega eins og hefðarkonum sæmir, þegar hann kemur með glasið sitt. En verði honum það á að skotra augum til stórbóndadótturinnar, þjóta þær burtu bál- öskuvondar — en kneyfa þó úr glasinu fyrst, — og dæturnar tæma fyrst glösin sín á bak við mæðurnar og senda svo yngissveininum ásthlýtt augnaráð í dyrunum. Honum er heldur ekki ókunnugt um, hversu mæður í annari metorðaröð ausa út allri vonzkunni yfir »bóndastelpuna« og svala sjer í miður »samkvæmishæfum« orðum. Hann veit, hvernig bústjórar af bændaætt slá pyngju sinni rothögg til þess að geta keypt sjer háan silkihatt og þannig hrifið hjarta þeirrar stúlku, er þeir unna og hversu þeir svo smella með svipunni og spýta langan, þegar afbrýðin blossar upp í þeim. Mynd sú, er Schandorph bregður upp af lifnaðarháttum og orð- bragði bænda og kaupstaðabúa, hefur þegar, ef svo mætti að orði kveða, áunnið sjer »gullaldarjett« í dönskum bókmenntum fyrir sakir nákvæmni og áreiðanlegleika. — Stundum getur hann þó ekki að sjer gjört að »skapa ögn í skörðin«, bæta einu atviki við og færa það dálítið í stýlinn. Og satt er það, að stundum er of mjög miðað til marks hjá honum, eins og t. d. þegar hann lætur mosavaxna piparmey, sem liðið hefur skipbrot í lífinu, gæða sjer

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.