Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Side 51

Eimreiðin - 01.09.1898, Side 51
211 Hlynborgargarði, »þar sem faðir hans einatt hafði setið við hliðið eða landamerkin og starað undarlega hrifinn af gróðrinum út yfir akra með gullnu hveiti og topphöfgum höfrum«; unz hann loks »deyr dauða sínum, dauðanum þunga«. J. P. Jakobsen hefur ekki látið eptir sig liggja nema eitthvað 50 blaðsíður í bundnu máli. En kvæði hans bera svo einkenni- lega þýðan, hreinan og ómengaðan blæ, og einatt eru þau blandin friðsælli angurblíðu, er töfrar hug og hjarta, svo að menn leggja þau ósjálfrátt á minnið, og þegar maður er einn á ferli, getur maður eklti að sjer gjört að raula þau fyrir munni sjer upp aptur og aptur; það er ómögulegt að þreytast á þeim. Af þessum tveim erindum, er hjer fara á eptir, má sjá, hvaða blæ kvæði hans bera: »Stille, du elskede Kvinde! Tyst má vi træde vi to. Der sover en Sang her inde I Skovens natlige Ro.*1 »Det bödes der for i lange Ár, Som kun var en stakket Glæde; Det smiler man frem i en flygtig Stund, Man bort kan i Ár ej græde. Der rinder Sorg, rinder Harm af Roser röde.«2 Þetta voru nú þeir menn, er gefið hafa bókmenntum vorum um miðbik aldarinnar aðaleinkennisblæ sinn. En það er auðvitað, að hjá slíkri bóklistaþjóð, sem Danir eru, voru um sömu mundir margir fleiri dugandi höfundar. Og mjer finnst satt að segja himinhrópandi ranglæti að ganga orðalaust fram hjá öðrum eins manni og Vilhelm Topsöe, er ritaði með málsnild og stillingu sögur í hlutsæisstefnu, eða þá leikritaskáldinu Edvard Brandes (bróður Georgs Brandesar), er telja má með fremstu höfundum vorum í þeirri grein um þessar mundir. J?að væri og engin van- þörf að minnast hins ástsæla söguskálds, Zakarias Nielsen’s, er 1 Haf hljótt um þig, hjartkæra mær! Hljóðlega verðum við ganga, hjóna- leysin. Það blundar söngur hjerna inni í næturkyrð skógarins. 2 Þetta erindi hefur Hannes Hafsteinn þýtt á íslenzku þannig; Þess bera menn sár um æfilöng ár, sem að eins var stundar hlátur; því brosa menn fram um bráðfleyga stund, sem burt þvær ei ára grátur. Drýpur sorg, drýpur sorg af rauðum rósum. 14*

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.