Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Qupperneq 57

Eimreiðin - 01.09.1898, Qupperneq 57
217 þær aldrei tála nema í einhverju vissu ástandi.------: Ef jeg þá ekki leitast við af fremsta megni að lýsa þessu eina hverfula á standi, er jeg sje þær í, þeim hreyfingum, þótt smáar sjeu, er segja eptir þeim, og tóninum í orðum þeirra, er þær koma upp um sig með, — ef jeg get ekki lýst öllu þessu með svo ljósum og lifandi dráttum sem lífið sjálft, — hvernig má jeg þá búast við að geta sannfært aðra? — En lífið er fólgið í hreyfingu og margbreytni. Margbreytninnar verður ekki án verið. Ef vjer t. d. viljum lýsa skólanum þar sem Tina á heima, þá verðun vjer að gæta þess, að ekki er unnt að slá svörtu stryki yfir grenndina, því að allt af heyrast raddir nágrannanna inn um dyr og glugga. Líf þeirra blandast lífinu í skóíanum. Til þess því að geta lýst þessum skóla og því lífi, sem þar bærist, verðum vjer að taka með sveitina, þar sem hann stendur og íbúa hennar.---------En hvernig getur maður þá umflúið óróna í öllum þessum erli? Er það ekki ein- mitt þvert á móti óróinn, sem sýnir allt þetta eilífa ið, er mönnum fellur svo vel í geð.----Að eins margbreytni og hreyfing sýna hina sönnu mynd af lífinu. Þær eru tól mín og tæki, sem jeg ekki get sleppt.« — Svona er nú búningurinn á sögum Hermanns Bang; en nú er að gæta þess, hvaða hugblær hvílir yfir þeim. Menn hafa sagt, að það væri eitthvað kvennlegt við hann; það finnst mjer eigin- lega ekki, öllu heldur mætti kalla hann hljóðan og hæglátan. Hann er borinn og barnfæddur á eynni Als, og mjer getur eigi dulizt að hann hefur dregið mjög dám af átthögum sínum. Eyjan er forkunnar fögur; þar úir og grúir af lífkvikum limgerðum úr heslitrjám, með þjettum greinum, stórvöxnum blöðum, vorilmandi þyrnum, blómlegum miðsumarrósum, hvítum, unaðsfögrum ylli- viðarlundum og öliu því, sem vant er að blómgast og þróast í runnum; þess konar limgerði getur að líta hvervetna um akra og engi og fram með hverjum vegi; þau brjóta á bak aptur ofsann í storminum, svo að mönnum finnst hann sem hægfara vindblær. Ibúar þeirra sveita unna því öllu, sem er notalegt og kyrlátt. Mjer finnst líka að bækur Bangs allajafna beri svip af sum- rinu, eins og það er hjer í Danmörku, loksins þegar það lætur sjá sig eptir átta til níu mánaða sudda, krapahríð og kulda; fyrst kemur vorið, bjartleitt og blæljett, með nýútsprungnu bækilaufi, þótt einatt bregði sorgblöndnum svip yfir æskublóma þess, af því að það ber með sjer, að því getur ekki orðið langra lífdaga auðið,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.