Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Page 60

Eimreiðin - 01.09.1898, Page 60
220 »Nœturvörðinn« o. fl. Seinasta bók hans nefnist »Hamingju-Hrólf- ur« (Lykke-Per); hann segir þar frá ungum manni, hvernig hann nær fullum andlegum þroska; mikið af því á eflaust töluvert skylt við Pontoppidan sjálfan og hvernig honum hefur vaxið fiskur um hrygg. Vera má að sumum þætti gaman að sjá, með hve hröðum og handvissum dráttum Pontoppidan getur dregið upp myndir af mönnum, — mönnum, sem eru jartegnan málefna. — Jeg ætla að taka hjer til dærnis dálitla mynd, er hann hefur gjört aí núlifandi manni, svo að því hægra sje að dæma um, hve vel hún hefur tekizt. Pað er kafli úr sögunni »Fyrirheitna landið« þar sem höfundurinn segir frá greptrun lýðháskólastjóra nokkurs: »Jafn- vel eitt af stórskáldum Norð- manna, sem um þær muridir var að ferðast um í Danmörku og halda fyrirlestra, — jötunmenni að vexti, með mikið leikara- hár, arnarandlit, gleraugu og hvítt slipsi —, var þangað komið, mönnum til mikillar gleði; allra auga störðu undrandi á þennan tígulega, hátalaða mann. Hvert T T sem hann gekk, flykktist fjöldi JOHANNES JÖRGENSEN. manns um hann og hlýddi hnr- inn á orð hans; einkum var þó Níels og nokkrir aðrir ungir menn í hælunum á honum meir en góðu hófi gegndi; þar kepptist hver við annan að verða sá útvaldi, er mikli maðurinn klappaði á herðarnar um leið og hann talaði. »Já, hjer er fagurt umhorfsl« kvað við frá honum langar leiðir á snjöllu og hreimmiklu máli. »Það er gróðurinn hjá ykkur hjerna syðra, — það sje jeg í dag! En þið eruð líka hinn forni jarðvegur andlegs lífs á Norðurlönd- um, því rnegið þið ekki gleyma! En við þarna nyrðra erum ungir nýlendingar. Og svo höfum við þvilík feikn af fjöllum,............ o, þvílík feikn af fjöllum!« — Skyldi nokkur hafa lýst Björnstjerne Björnson betur, því að sá er maðurinn, þótt nafnið vanti.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.