Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Side 65

Eimreiðin - 01.09.1898, Side 65
með myndum, að hún gæti orðið sem atgætilegust, þótt kostnaðurinn við það hafi orðið oss ærið tilfinnanlegur og í rauninni gjaldþoli ritsins um megn. Ritstj. Tvenn erfiljóð. Hví svo hvarfstu mjer snemma? Hví á miðju vori fórstu brott að fljúga, fuglinn minn hinn ljúfi? Var ei fagurt á Fróni? — fjallahlíðir brattar vaxnar laufgum viði, vellir blómum stráðir, engi grasi gróin, glatt af fuglakvaki yfir ám og vötnum; upp um móa og klappir svifu þeir með söngum. Sá eg þig einn í hópnum fjörugt flugi beina. Fuglinn minn hinn ljúfi, hví ei haustsins beiðstu? hvernig gaztu farið? Fífillinn minn fagri, fyrir hverjar sakir ertu fár og fölur, fallinn og visinn til jarðar? og það á þessum tíma, þegar blessuð sólin lítur aldrei af þjer, yfirgefur þig varla, laugar þig ljósum geislum, lokkana þína björtu greiðir þjer hóglega á höfði, hlýjum og ástríkum kossi, er næturnepjan olli, nemur þjer tár af augum; en vindar hreinir og hollir, horfnir sunnan af landi, syngja þjer unaðssöngva sætum og hjúfrandi rómi, inndælu ljúflingslagi, og ljettan í værð þjer rugga á fögrurn og friðsælum kvöldum? Fifillinn minn bjarti, að þú skyldir þá ekki una lífi þínu til seinni daga sumars, því samt var nógur tími að fölna, visna og falla fyr en hjelunætur og haust og hret úr norðri hrími jörðu sveipa! Fífillinn minn fagri, fuglinn minn hinn ljúfi, ástvin allra-bezti! að þú skyldir visna! fara og fljúga brottu! fara að deyja! — deyja á sjálfum sólmánuði sælum æfi þinnar! Gnægtir þjer gefnar voru gáfna og mennta fjöldi, hugurinn lýtalausi, lundin glaðværa og blíða, 15

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.