Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1903, Side 22

Eimreiðin - 01.01.1903, Side 22
22 stórpólitíkin eigi »hér eftir sem hingað til« að sitja í fyrirrúmi fyrir öllu öðru, því henni ætli hann að helga »alla krafta sína«. En að því er til verklegu framfaramálanna kemur, þá vill hann enga ákveðna stefnuskrá láta uppi. Hann getur þess að eins laus- lega, að öll þau mál, sem Framsóknarflokkurinn hafi talið upp, muni hafa fylgi hans »á sínum tíma«. En þar á móti gefur hann enga bendingu um, hvernig þessu fylgi eigi að vera varið, eða hvenær það muni fást, nema hvað ekki virðist mega búast við því á næsta kjörtímabili, því hann getur þess, að »á næstu 3 þingum verði hann að takmarka sig«, líklega vegna hinnar fyrirhuguðu nýju stórpólitisku baráttu. Og að því er snertir spurninguna um það, hvort flokkurinn muni vilja styðja hverja heiðarlega landsstjórn, sem vinni að málunum í framsóknaranda, þá er dauðaþögn. Getur nú nokkrum manni, sem les þessi tvö ávörp og ber þau saman, blandast hugur um það, hvorum megin hinir sönnu framsóknarmenn eru, og hvorum megin afturhaldsmenn- irnir? Að vísu skal það játað, að undir ávarp Heimastjórnar- flokksins hafa skrifað nokkrir menn, sem hingað til hafa verið framsóknarmenn í flestum málum, og einmitt það getur verið tals- vert villandi. En hvað stoðar það fyrir framtíðarpólitík vora, úr því að þessir menn hafa látið glepjast svo og ánetjast af aftur- haldsliðinu, sem ræður lögum og lofum í flokknum, að þeir þykjast ekki geta við það skilist. Auk þess virðist ýmislegt benda á, að farið sé að sannast á þeim máltækið: »Hver dregur dám af sín- um sessunaut«. Pví til sönnunar má nefna kvitt þann, sem komið kvað hafa upp í Reykjavík um þingtímann síðastliðið sumar við- víkjandi því, hvern Heimastjórnarflokkurinn helzt vildi láta skipa hinn nýja stjórnarsess. Sagan segir, að flokkurinn hafi álitið bezt til þess kjörinn mann, sem lengi hefir verið einn þáttur í Estrúps- stjórninni gömlu og jafnan komið fram sem rammur afturhalds- maður, en aldrei á sinni löngu pólitisku lífsleið átt upptök að einu einasta framfaramáli. Petta er nú ofboð skiljanlegt frá sjónarmiði afturhaldsliðsins í Heimastjórnarflokknum. En sé það satt, að sumir af framsóknarmönnum flokksins hafi einmitt viljað halda hópinn, til þess að styðja að þessu, þá virðast þeir nú vera orðnir töluvert »smittaðir« af afturhaldsandanum. ÍVí erfitt mun að gera mönnum skiljanlegt, að sannir framsóknarmenn áh'ti framfaramálum landsins bezt borgið í höndum rammrar afturhalds- stjórnar. En ekki er það síður sorglegt, að sjá þá vöntun á

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.