Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1903, Page 49

Eimreiðin - 01.01.1903, Page 49
49 Gulltöflurnar. Eftir STEPHÁN G. STEPHÁNSSON. Svo vermdu þá, Kanada’, í kjöltunni þinni upp kólnaöa frændsemi’ og ættjaröar-minni. Ver frjálsust, ver hollviljuð hugsjónum ungu, ver heimaland sérhverrar þjóðar og tungu. Pó aðkomin loftunga ofhrós þér segi, ef ættjörð hann svívirðir, — trú honum eigi! fví hann bæri’, ef á reyndi, sæmd þína' í sjóði; hans sjóndeildarhringur er laustekinn gróði. Pað innræti flýtur með flugumanns-blóði. Pú manst hvernig fór, þegar fornöld var unnnin og fallinn var Surtur og goðheimur brunninn og jörð okkar hrunin og himnarnir níu, svo heimur og sól varð að gróa’ upp að nýju: Pað geymdist þó nokkuð, sem á varð ei unnið af eldinum, — gulltöflur, þær höfðu’ ei brunnið. Við sitjum hér, Kanada’, í sumars þíns hlynning og sólvermdu grasi að álíka vinning —: Hver gulltafla er íslenzk endurminning. ATHS. tetta eru 2 síðustu erindin úr íslendingadagskvæði 1902 fyrir minni Kanada. Kvæðið alt heíir verið prentað í »Heimskringlu«, en oss finst það væri synd, ef engir aðrir en lesendur hennar fengju að sjá þessi gullfallegu erindi, og tökum oss því »Bessaleyfi« til að láta EIMR. flytja lesendum sínum þau. Þeir af þeim, sem hafa séð þau áður, hafa gott af að sjá þau aftur, því »sjaldan er góð vísa of oft kveðin«. En hvernig var það? Var það þessi perla, sem verðlaunin hlaut hjá Winni- peg-nefndinni, eða fóru menn fram hjá henni og verðlaunuðu bara gutlið? En hvað sem því líður, þá ætti ekki að þurfa á neinum verðlaunum að halda framvegis, því þessi erindi ættu að vera sjálíkjörin til að verða PjÓÐSÖNGUR VESTUR-ÍSLEND- INGA. Og þeir ættu að fá einhvern tónsnilling (t. d. Sveinbjörn Sveinbjörnsson) til að semja lag við hann. RITSTJ. 4

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.