Eimreiðin - 01.09.1905, Blaðsíða 23
»3
svo hefir mórinn þann kost, að venjulega er lítið í honum af
brennisteini, en brennisteinninn í steinkolunum skemmir oft að
mun útlit tígulsteina.
Til kalkbrenslu má líka nota mó, og er talið að þurfi i kíló
af mó til að brenna I kíló af kalki.
Víða um lönd er steinkolagas notað mikið til ljósa og einnig
til að reka með gasvélar (Gasmótóra). Ur mó má líka búa til
gas, en lengi vel reyndist það ekki rétt vel, erfitt að hreinsa það
o. s. frv. Á síðari árum hefir samt lánast að búa til mógas, sem
Foríyr til Törc.
*
í alla staði er eins gott og steinkolagas, að minsta kosti til að
reka vélar með, en langt um ódýrara. í Svíþjóð og Pýzkalandi
er þegar farið að nota það að mun, og vísast verður þess ekki
langt að bíða, að það verði notað hér í Danmörku. Því miður
hefir ekki enn þá lánast að útbúa þessar mógasverksmiðjur minni
en svo, að nemur ioo—200 hestöflum. Tær verða því vart tekn-
ar upp fyrst um sinn á íslandi.
Margar tilraunir hafa verið gjörðar til að hagnýta tægjurnar
í mónum og hefir verið keyptur aragrúi af einkaleyfum í þá átt,
en flest af því hefir ekki svarað kostnaði og margt af því reynst
einskært »húmbúg«.