Eimreiðin - 01.09.1920, Qupperneq 7
EIMREIÐIN]
JÓN BISKUP VÍDALIN
263
Dæmi þessu lík mætti til færa í tugum, ef rúm leyfði og
þörf væri, en þetta sýnir afburða þekkingu á ritningunni,
og röð dæmanna sýnist oft benda á, að ekki sé leitað
með því að fletta biblíunni.
Fróðlegt gæti verið, að athuga, í hvaða rit biblíunnar
Vídalín vitnar tíðast. Eru ýmsir, sem halda, að hann vitni
tiltölulega oftar í gamla testamentið en það nýja, og allra
oftast í spámenn gamla testamentisins, til þess að sækja
þangað kjarnyrði. Til þess að ganga úr skugga um þetta,
hefi eg talið tilvitnanir á samtals 100 blaðsíðum í post-
illunni. Tafdi eg fyrst á 25 blaðsíðum, og því næst á öðr-
um 25, og loks á 50 blaðsíðum í viðbót. Hélst hlutfallið
nokkurn veginn, einkum milli fyrri og síðari 50 blaðsíð-
anna, svo að vænta má að ekki myndi breytast til muna,
þótt talið væri í lengri kafla, en það er hálf-leiðinleg at-
vinna, og ekki fljótleg.
Útkoman varð þessi:
Matteusarguðspjall......................... 165 tilvitnanir.
Lúkasarguðspjall............................ 93-------
Daviðssálmar................................ 88-------
Rómverjabrjefið ............................ 82 ----
Jóhannesarguðspjall......................... 74-------
Jesajas.................................... 56-------
1. Korintubréf............... ......... .. 49--------
Postulasagan og Hebreabréfið................ 48-------
Genesis..................................... 35-------
2. Korintubréf............................. 31-------
Opinberunarbókin............................ 30-------
Efesusbréfið................................ 27-------
Galatabréfið................................ 26-------
1. Jóhannesarbréf..... ................... 22------
Jakobsbréf og Orðskviðirnir................. 21-------
Kólossubréfið............................... 19-------
Exódus, Devteronomíum og 1. Tfmóteusar-
bréf.................................... 16-------
Númeri, 1. Samúelsbók, Filippíbréfið, 1. og
2. Pétursbréf........................... 14------
Jeremías.................................... 13-------