Eimreiðin - 01.09.1920, Page 27
EIMREIÐIN]
í ÞÝSKALANDI
283
inn hefir 60 þús. íbúa, þar af nú 7 þús. stúdenta, og er
unaðslega í sveit komið. Hann liggur í fögrum skógardal,
Neckar rennur lygn og breið um hann miðjan, en beggja
vegna rísa lág fjöll, með blómgörðum neðst, þá vínekrum
og bylgjandi skógi, en mjóir stígar bugðast upp eftir hlíð-
unum undir grænum laufþökum. A sumardegi er loftið í
bænum þrungið ilmi, en svalandi blæ leggur ofan af fjöll-
unum.
Yfir bænum gnæfir í miðri hlíð einkennileg miðalda-
böll, ein hin fegursta í Þýskalandi. Nokkurn hluta henn-
ar sprengdu Frakkar í rúst á 17. öld, en meginbygging-
arnar standa enn. í hallargarðinum halda stúdentarnir
sumarhátíðir sínar með blysförum og dansi fram á rauð-
an morgun.
Þeir gefa bænum blæ sinn. Þeir eru í meiri hluta á
hverju kaffihúsi. Þeir róa sterklega móti árstraumnum á
léttum snekkjum, en ungmeyjar bæjarins sitja í skut og
stýra, eða þeir taka sér hressigöngu upp eftir dalnum,
tveir og tveir í kappræðum, — þar er hver bletturinn
öðrum fegurri, sánir akrar og hlýleg bændabýli, rauðir
graníthamrar og gamlar riddaraborgir hátt á bergi. Eða
þeir aka í fjallbrautarvagninum upp á háhæðina fyrir of-
an bæinn, — þaðan er útsýni mikið yfir héraðið fram af
dalnum, frjósemisflatneskju með fögrum bygðum og svört-
um verksmiðjubæjum, en úti við sjónbaugin blikar á Rín.
— í Múnchen er útsýnislaust með öllu, en borgin auð-
ug af fögrum og miklum byggingum og prýdd fjölda af
skrúðmiklum blómgörðum. Sunnarlega í bænum Jiggur
Englische Garten, víður skemtigarður með grasflötum, trjá-
lundum og bunandi lækjum.
Mörg og fögur leikhús eru i bænum, eitt af stærstu
bókasöfnum í Norðurálfu, mikil og ágæt listasöfn. Á
Schachgallerie eru m. a. ýms af frægustu málverkum
Böcklins og annara þýskra snillinga, ágætisverk eftir
spánska og ítalska miðaldameistara og eftirlikingar af
mörgum af frægustu loftmyndum Michelangelo í sixtinsku
kapellunni í Róm. — Skemtiskálar miklir og fagrir, eins
og í öllum stórum bæjum, og vínið ódýrt.