Eimreiðin - 01.09.1920, Page 62
318
UM ÍSLENSKT VEÐRÁTTUFAR
[EIMREIÐIN
þeim eru tölurnar bygOar. Fyrir þá, sem ókunnugir eru
hvar athuganir á veðri hafa farið fram á landinu síðan
1872, að Veðurfræðistofan danska tók þær að sér, skulu
þær taldar hér upp. Á Suðurlandi: Fagurhólsmýri eða
Sandfell í Öræfum, Vestmanneyjar, Stórinúpur eða Hrepp-
hólar, Eyrarbakki eða Arnarbæli, Hafnarfjörður, Vífilsstaðir,
Reykjavík og Fiskilækur. Á Vesturlandi: Gilsbakki, Slykk-
ishólmur, Flatey (Kollsvík), Holt í Önundarfirði, ísafjörður,
Aðalvík, Kjörseyri og Bær í Hrútafirði eða Borðeyri. A
Norðurlandi: Blönduós eða Skagaströnd, Sauðárkrókur,
Siglufjörður, Möðruvellir í Hörgárdal, Akureyri, Saurbær,
Núpufell eða Hrísar í Eyjafirði, Grímsey, Grímsstaðir,
Möðrudalur og Raufarhöfn eða Þórshöfn í Þistilfirði. Á
Austurlandi: Valþjófsstaður eða Skeggjastaðir, Kóreks-
staðir eða Nefbjarnarstaðir, Seyðisfjörður, Papey, Beru-
fjörður (Djúpivogur) og Bjarnarnes í Hornafirði. Á mörg-
um af þessum stöðum hafa verið gerðar veðurathuganir
samtímís í mörg ár, á nokkrum frá fyrstu alt til þessa,
en á sumum að eins eitt eða fáein ár, einhverntíma á
öllu timabilinu og mjög slitrótt, fáeina mánuði í senn,
að eins hitastigið. Verður auðvitað lítið hægt á því að
byggja. Margir af þessum athugunarstöðum eru merktir
á kortunum með stórum deplum. Munu menn sjá við
hvaða staði hver depill á.
Pegar lögð eru saman hitastig allra veðurathugunar-
stöðva hinna ýmsu landshluta og tekið af þeim meðaltal,
kemur hitamunurinn greinilega fram í aðaldráttum. Til
að fá þetta yfirlit hefi eg skift landinu, svo að segja eftir
gömlu lagi, i 4 fjórðunga: Suðurland frá Hestgerðismúla
í Austur-Skaftafellssýslu að Hvítá í Borgarfirði, Vesturland
að Hrútafjarðará, Norðurland að Rifstanga og Möðrudals-
fjöllum og svo Austurland. Eftir þeirri skiftingu verður: