Eimreiðin - 01.09.1920, Page 68
324
UM ÍSLENSKT VEÐRÁTTUFAR
[EIMREIÐIN
reyrði alt furðanlega niður. Viða um Vesturland, þar sem
eg átti heima, reif ofviðrið ílögugrjót ofan af heiðum og
heim í bygð; þeytti því eftir gaddinum langa vegu, mölv-
aði glugga og skemdi tún og engjar.
Til frekari skýringar þessum makalausa byl, set eg hér
töflu (X.), yfir alt veðráttufar síðustu daga janúarmánaðar,
frá öllum 3 aðal-veðurathugunarstöðvum íslands. Ætti af
henni að mega gera sér enn gleggri hugmynd um frost-
grimdina og veðrið.
Tildrög til hinna miklu og langvarandi norðaustan-
storma á íslandi eiga sér rætur langt fyrir utan vébönd
þess, aðallega í norðurátt og suðvestri. Yfir heimskauta-
löndunum og hinum ísi þöktu norðurhöfum kólnar loftið
og þéttist, þyngist. Pað er líkt því, að það falli þar sam-
an eða lækki og gefi þá rúm fyrir hlýrra og léttara loft,
sem leitar þangað frá heitari stöðum, Ieggst ofan á það,
sem fyrir er, kólnar, þéttist og gefur þannig koll af kolli
nýtt rúm. Þessu getur haldið lengi áfram. Gagnstæð