Eimreiðin - 01.09.1920, Blaðsíða 96
352
[EIMREIÐIN
Jón Sveinsson.
Lesendum Eimreiðarinnar frá fyrri tímum er nafn séra
Jóns Sveinssonar ekki ókunnugt, því um bækur hans var
altaf getið í Eimreiðinni, er þær komu út. En þar eð
kaupendur Eimreiðarinnar eru nú orðnir svo miklu fleiri
en þá var, er ekki nema lítil) híuti þeirra, sem lesið hafa
þær greinar, og vona eg því að það sé ekki ófyrirsynju,
að kynna hann ofurlítið á ný.
Jón Sveinsson er fæddur á Möðruvöllum í Hörgárdal,
og var faðir hans skrifari þar hjá Pétri Hafstein amt-
manni; síðar fluttust foreldrar hans til Akureyrar, og lést
faðir hans þar. Pá var það einu sinni, að tilboð kom frá
aðalsmanni nokkrum suður í Avignon á Frakklandi um
að hann vildi kosta tvo íslenska drengi til menta suður
á Frakklandi, og varð Nonni annar fyrir kjörinu. Hann
lét í haf að heiman, 12 ára gamall, í sept. 1870 á ein-
möstruðu seglskipi áleiðis til Kaupmannahafnar, því þangað
var ferðinni heitið fyrst. Þá var ófriður haíinn milli E*jóð-
verja og Frakka og breytti hann nokkru um ferð Nonna.
Hann dvaldist í Kaupmannahöfn fyrstu árin, en síðar
bæði við nám og starf á Frakklandi, Belgíu, Hollandi og
Þýskalandi. Af íslandi hafði hann ekki meira að segja
fyr en eftir 25 ár, að hann kom hingað heim og ferðað-
ist landveg úr Reykjavík norður á Akureyri.
Þann er þetta ritar brestur kunnugleika til að segja
nokkuð frá æfiferli Jóns Sveinssonar. það er rétt nýverið
sem eg hefi komist yfir bækur hans, og við lestur þeirra
hefi eg mest furðað mig á, hve lítið höf. er þektur hér
heima. Fyrsta bók hans heitir »IsIandsblomster«, greinar
um fornbókmentir vorar, og er Gunnlaugs saga prentuð
þar með sem sýnishorn af sögunum. »Et Ridt gennem
Island« er önnur bókin, frásaga um ferðalagið, sem áður
er um getið, báðar á dönsku. Á þýsku hefir hann skrifað
»Nonni, Erlebnisse eines jungen Islánders, von ihm selbst