Eimreiðin - 01.09.1920, Page 114
370
FRESKÓ
[EIMREIÐIN
sælu, hlýju stofu. Ef til vill kann eg svona vel við þessa
stofu af því að eg á bráðum að fara úr henni, og koma
hingað aldrei framar.
Eg hefi komist að nokkru, sem hefir fengið svo mikið
á mig, að eg get varla séð neitt af þessu, sem eg er að
skrifa. Eg er búinn að
finna skilríki, sem sýn-
ast sanna það, að eg
sé sonur Alureds jarls,
og lögmætur erfingi
hans og eg skil ekki
í því, að það verði
vefengt. Það vildi til á
þessa leið. Fyrirgefið
að eg segi ruglingslega
frá þessu öllu. Eg hafði
fengið ótakmarkað leyfi
hjá greifinnunni til þess
að ganga um allar
hirslur, til þess að
safna og raða mynd-
unum, og hún lét mig hafa til leiðbeiningar gamla, skrif-
aða skrá yfir alt.
í einu horni lessalsins er eldgamalt skathol, ákaflega
skrautlegt, frá dögum Lúðvíks XV. Það er fult af göml-
um bréfum, kortum og myndum. Mér var illa við að
ganga í þetta, þó að greifinnan hefði gefið mér fult leyfi
til þess.