Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1919, Page 179
Nítjánda öldin
79
Af riti þessu verða prentuð 7000 eintök. Af beim ættu
nm 50 að verða keypt á Islandi í hlutfalli við mannfjöldann
á Nórðurlöndum.
Margir munu vilja eiga bindi og bindi af riti þessu um
það efni, sem stendur næst huga þeirra, en við það er að
athuga, að einstök bindi fást ekki, heldur verða menn að
kaupa alt verkið, ef menn vilja eignast það. En þá er ráð
fyrir nokkra menn að leggja saman og kaupa það í samein-
ingu og skifta því síðan á milli sín eftir vild sinni. Bókasöfn
og sem flest lestrarfjelög ættu að kaupa rit þetta, því fátt
ber mönnum fremur að fræðast um en um nútímann, og
betra rit um hann verður ekki hægt að fá. Enn fremur eiga
söfn að kaupa fyrst og fremst þau fræðirit, sem einstökum
mönnum er ofvaxið að kaupa.
Alt ritið á að koma út á þremur árum og verkinu að
vera lokið á miðju ári 1921. Hvert bindi kemur út í
heilu lagi.
A. Fabricius, Ulustreret Danmarks Historie for
Folket, 4. útgáfa. Kbhvn 1914—15. 1. bindi 543 bls., 2.
bindi 687 bls. í báðum bindunum eru 695 myndir og auk
þess fáeinar myndir á sjerstökum stórum blöðum. Hvort
bindi kostar 3 kr. 60 aura óinnbundið.
Það hefur tvisvar komið fyrir mig, að landar mínir hafa
beðið mig um að kaupa fyrir sig hina miklu Dana sögu,
jDanmarks Riges Historie«.. Hún er í 6 stórum bindum og
kostar um 150 kr. Það er ekki ólíklegt, að ýmsir þeirra vilji
riú kynna sjer sögu Dana, er sættir eru komnar á í stjórn-
skipunarmálinu á milli beggja þjóðanna. Fyrir því dettur
mjer í hug að benda á þessa sögu, sem er hin besta alþýðu-
bók og hin ódýrasta stór sögubók, sem til er á Norðurlönd-
um. I þessari tíð er það sjaldgæft að fá aðra eins bók fyrir
minna en 30 kr, en hún kostar einar 7 kr. 20 aura óinn-
bundin. Saga þessi var rituð í fyrstu eftir miðja 19. öld og
náði þegar miklum vinsældum. En hin 4. útgáfa af henni
er öll endurskoðuð, breytt og aukin eftir hinum nýjustu rann-
sóknum í Dana sögu. Það hefur gert sonur höfundarins,
dr. Knud, Fabricius, sem nú er prófessor í sagnfræði við há-
skólann í Kaupmannahöfn og í haust varð Garðsprófastur.
Saga þessi er mjög áreiðanleg, og öll frásögnin er ljós
og skipuleg, lipur og skemtileg.
Hún hefst með því að skýra frá elstu fornmenjum og
frumbúum landsins og nær til þess er vinstrimenn komu til
valda 1901, en skýrir þó frá helstu viðburðum fram til 1915.
,2*