Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1919, Page 183
Árni Magnússon ferðalangur
>83
in á hundasundi löng (bls. 38). Hann fer vel með efnið og
segir vel frá. Hann lýsir skapi þeirra fóstbræðra mjög vel, á
einstaka stað þó með óþarflega mörgum orðum, því alstaðar
kemur í ljós, hve ólíkir þeir eru. Hann lýsir og vel ýmsum
öðrum mönnum, svo sem Erni og Hróðmari, feðrum þeirra
Ingólfs og Leifs, og Atlasonum. Þá er eigi minna vert um
kvennlýsingar Gunnars, lýsingu hans á Helgu systur Ingólfs
og Hallveigu konu hans. Slíkar konur verða lesendunum
minnisstæðar.
Eitthvað hið fegursta í bókinni er lýsingin af sorg Helgu.
er hún hafði fijett lát manns síns. Fleira fagurt mætti nefna
svo sem lýsinguna af Álftafirði, er fóstbræðurnir eru að skoða
landið á könnunarferð sinni,
Mörgum íslendingum mun þykja vænt um bók þessa, og
vonandi er, að Gunnar Gunnarsson riti fleiri sögur um efni
úr Islendingasögu. Sem dæmi upp á það hvernig bók hans
hefur verið tekið í Danmörku, skal þess getið, að hún kom
út rjett fyrir jól, og síðan hefur hvert upplagið komið á fætur
öðru, svo að nú (í febr.) eru prentuð 9000 eintök.
B. Th. M.
Ferðasaga ei'tir íslending1. En islandsk Eventyrer
Arni Magnússons Optegnelser. Oversat fra Islandsk af Pdll
Eggert Ólason. Köbenhavn 1918. 4 + IV 187 bls. 8.
Verð 7 kr. 50 a. Bók þessi er ferðabók Árna bónda Magn-
ússonar frá Snóksdal. Hann fór fyrst utan 1753 og var þá
21 ár í förum, og kom til Kína og margra annara landa í
hinum fornu heimsálfum. Pá fór hann til Islands og var þar
í 3 ár, en fór aftur utan 1777 og var lengst í Danmörku í
næstu i7 ár. Síðan fór hann til Noregs og að lokum aftur
til Danmerkur og íslands og endar bókin á frásögn hans af
ferð hans frá Reykjavík upp að Svignaskarði (um 1796).
Handrit Áma er í Landsbókasafninu, nr. 1583, 4to, en Páll
Eggert Ólason hefur þýtt það á dönsku, og er það gefið út
sem 28. bindi af »Memoirer og Breve«, er þeir Julius Clausen
og P. Fr. Rist gefa út. Bókin er að ýmsu leyti fróðleg, og
sýnir, hve víða einstaka íslendingar flæktust fyr á tíðum, þótt
litið væri þá um siglingar.
Vöruþekking. Karl Meyer, Almindelig illustreret
Vareleksikon. 3. útgáfa endurbætt og aukin. Kbhvn. og
Kristiania 1918. 1064 bls. í stóru 8 bl. broti. (Bókaverslun
Gyldendals). Verð 24 kr. Vöruþekking er nauðsynleg öllum
þeim, sem við verslun fást og vilja vera góðir kaupmenn;
einnig er gott fyrir kaupendur að þekkja vömr. Fyrir því er