Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1983, Blaðsíða 23
DV: ÞRIÐJUDAGUR 24. MAI1983.
íþróttir
íþróttir
23
(þróttir
(þróttir
Steinn Guðjónsson — skoraði eitt af mörkum Fram gegn Fylki.
DV-mynd. Friðþjófur.
■■
Faldo með
„hat-trick”
— hefur unnið þrjú stórmót f goHi í röð
— Þetta er stærsta stund á
keppnisferli mínum, sagði hinn 25
ára Breti, Nick Faldo, sem varð
sigurvegari á miklu golfmóti sem
lauk í Leeds á sunnudaginn. Faldo
vann þar sina þriðju golfkeppni í
röð og jafnaði þar með 25 ára
gamalt met, en það er mjög sjald-
gæft að golfleikari vinni þrjú stór-
mót í röð. Faldo varð sigurvegari í
opna franska meistaramótinu á
dögunum og svo vann hann
Martinikeppnina.
Faldo lék á 272 höggum, en
næstir komu Bretamir Brian
Waites og Howard Clarke á 273
höggum. Sandy Lyle lék á 274
höggum.
Síðast vann sami maðurinn þrjú
mót í röð 1958. Þá sigraði Peter
Alliss á ítalska, spánska og portú-
galska meistaramótinu á aðeins
þremurvikum.
-sos.
Þrumufleygur Kristjáns
á Húsavíkurvelli
-þegar Völsungur vann Víði úr Garði 2-0. Siglf irðingar gerðu jafntef li 0-0 við FH
Kristján Olgeirsson skoraði glæsi-
legt mark fyrir Völsung á Húsavík
þegar Völsungar lögðu nýliðann, Víði
frá Garði, að velli 2:0 á Húsavík í 2.
deildarkeppninni í knattspyrau.
Þrumufleygur Kristjáns af 35 m færi
hafnaði í netmöskvum Víðismanna, al-
gjörlega óverjandi fyrir markvörð
þeirra. Jónas Hallgrímsson skoraði
hitt mark Völsunga. Helgi Helgason,
fyrrum leikmaður íslandsmeistara
Víkings, var besti maður vallarins,
öruggt hjá Fram
Framarar unnu öruggan sigur 3:1
yfir Fylki á Arbæjarvelli. Halldór Ara-
son, Steinn Guðjónsson og Guðmundur
Torfason skoruðu mörk Fram en Jón
Bjami Guðmundsson skoraði fyrir
Fylki.
Gunnar með þrennu
Gunnar Gíslason skoraði þrjú mörk
fyrir KA þegar Akureyrarliðið vann
öruggan sigur, 4:1, yfir Reyni í Sand-
gerði. Gunnar skoraði fyrst á 3. mín. úr
vítaspymu sem hann fiskaði sjálfur.
Síðan skoraði hann með skalla og
þfiðja mark hans kom eftir að hann
hafði einleikið í gegnum vöm Reynis —
leikið á markvörð og sent knöttinn í
netið. Ormar örlygsson skoraði fjórða
mark KA en Siguröur Guönason skor-
aðifyrir Reyni.
Andrzej Strejlau, þjálfari Fram, var
meðal áhorfenda á grasvellinum í
Óróleiki hjá
Juventus
Frá Axel Axelssyni, fréttamanni DV í
V-Þýskalandi:
— Mikill óróleiki er nú í herbúðum
Juventus, þegar aðeins tveir dagar eru
þar til félagið leikur gegn Hamburger
SV í Aþenu, þar sem félögin eigast við í
úrslitaleik Evrópukeppni meistara-
liða. Forráðamenn Juventus komu
heldur betur á óvart um helgina þegar
þeir tilkynntu að félagið væri búið að
kaupa Ivano Bordon, markvörð Inter
Milanó.
Þjálfari Juventus var ekki yfir sig
hrifinn að þetta skyldi vera tilkynnt
rétt fyrir úrslitaleikinn og einnig var
Dino Zoff, markvörðurinn snjaili,
mjög óhress. — Það hefur enginn rætt
við mig og því hefur þetta komið mér á
óvart. Þessi framkoma forráðamanna
félagsins er mjög léleg, því að það er
stutt þar til við mætum Hamburger,
sagðiZoff. .A-rpi/^ns.
Njarðvík, þar sem Njarðvíkingar
mættu Einherja frá Vopnafirði og unnu
2:0. Þaðvar JónHalldórssonsemskor-
aði bæði mörk Njarðvíkinga, sem leika
gegn Fram í bikarkeppninni í Njarðvík
í kvöld. Fyrra mark Jóns var afar
glæsilegt — þrumuskot hans af 12 m
• færi hafnaði efst uppi í markhominu.
Nýliðar Siglufjarðar f engu FH-inga í
heimsókn í gær og lauk leiknum með
jafntefii 0:0. Leikurinn var harður og
sköpuðu Siglfirðingar sér betri mark-
tækifæri og voru því nær því að vinna
heldurenFH. -emm/-SOS.
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
BOLTAMAÐURINN
LAUGAVEGI 27 - SÍM115599.
LAUGARDALSVÖLLUR - 1. DEILD
Lím og kítti trá
. O
Við seljum tölvupappír
1111FORM PRENT
Hverfisgötu 78,
símar 25960 — 25566.
- ÞOR f kvöld kl. 8
OKKar
Áhone*,%M . '
Zann
HÓTEL
ÞJÓNUSTA
SKÚLAGÖTU 30
simar , 23 88 » 2 3388
og hvetjum
KR
Þvottahúsið
jerðaskrifstofan
ÚTSÝIM
Austurstræti 17,
sími 26611.
Ofurkraftur — ótrúleg ending