Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Síða 3
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
3
Fréttir
Hafskipsmálið:
Skýrslur teknar
af fleiri
vitnum en áður
„Vinna viö málið er í fullum gangi
og gengur samkvæmt áætlun. Viö
vonumst til aö ljúka þessu einhvern
tíma á næsta ári,“ sagði Jónatan
Þórmundsson, sérstakur saksóknari
í Hafskipsmáliriu, þegar hann var
spurður hvernig rannsókn málsins
gengi.
Jónatan sagðist vonast til þess að
dómstólarnir, yrðu samvinnuþýðir,
þegar og ef tíl þeirra kasta kemur,
svo hægt yröi að ljúka málinu á sem
skemmstum tíma.
Teknar hafa verið vitnaskýrslur af
fleiri einstaklingum við þessa rann-
sókn en gert var við fyrri rannsókn.
Jónatan sagði að þeir fylgdust með
gangi mála varðandi þrotabúið. Þótt
um aðskilin mál væri að ræöa væru
samt alltaf einhver tengsl þar á milli-
„Við fylgjumst meðal annars með
hvort um einhver hugsanleg refsi-
verð brot er að ræða og þá hvaða
tjóni þau hafa valdið,“ sagði Jónatan
Þórmundsson.
-sme
Akureyri:
Fasteigna-
skattur hækkar
um 34,5%
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti
á fundi sínum nú í vikunni að leggja
sama álag á fasteignaskatt íbúðar-
og atvinnuhúsnæðis og á sl. ári.
Hækkun fasteignaskattsins verður
34,5% milli ára og tekjur bæjarins
af þessum gjöldum fara úr 97,5 millj-
ónum króna í 132 milljónir.
Hækkun fasteignamats á Akureyri
milli ára er 44% sem er nokkuð um-
fram landsmeðaltal.
Boigaraflokkur:
Á móti skatti á
skrifstofu- og
verslunarhúsnæði
FuUtrúi Borgaraflokksins er á móti
sérstökum skatti á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði.
„Hann getur ekki fallist á að leggja
sérstakan skatt á verslunar og skrif-
stofuhúsnæði fremur en atvinnuhús-
næði almennt og leggur því til að
frumvarpið verði fellt," segir Júlíus
Sólnes í nefndaráliti.
Fulltrúi Alþýöubandalagsins,
Svavar Gestsson, vill hins vegar tvö-
falda þennan skatt.
i greinargerð með stjórnarfrum-
varpinu segir að gert sé ráð fyrir að
álagning skattsins nemi um 210 millj-
ónum króna á næsta ári en inn-
heimta um 190 milljónum króna, að
meðtalinni innheimtu af eftirstöðv-
um fyrri ára. -KMU
„Halló ! Ég heiti BANGSI
BESTASKINN. Éggettalað,
sungið og sagt fullt af
skemmtilegum sögum, þar sem
ú kynnist vinum mínum, þeim
Gormi, Bárði, Fjólu, Lubba,
Hnoðra og öllum hinum..."
Já, hann Bangsi Bestaskinn er
búinn að læra íslensku og er
tilbúinn að segja skemmtileg
Aðventuljós
og
jólaseríur
í miklu
úrvali
í rafdeild,
2 hæð.
Opið til kl. 22 í kvöld
Kaupið jólaseríuna tímanlega.
Jólaseríur frá kr. 650.
Aukaperur í flestar gerðir sería.