Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Page 14
14
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
Bamið sem féll í brurminn:
, Jessica er kraftaverk"
Fjármálaráðuneytið
Kennitala í stað nafnnúmers
Fjármálaráöuneytið vekur athygli fyrirtækja og ein-
staklinga á þeirri breytingu aö kennitala kemur í stað
nafnnúmers. Allir reikningar, sem sendir eru ráöu-
neytum og stofnunum ríkisins og eiga að greiöast
af ríkissjóði, skulu auökenndir með þessari tölú til
þess að teljast greiðsluhæfir. Breytingin tekur gildi
1. janúar 1988. Reikningar, sem sendir eru eftir miðj-
an desember, koma ekki til greiðslu fyrr en eftir
áramótin og verða því einnig að bera kennitöluna.
„Dóttir okkar er kraftaverk," segja foreldrar
Jessicu litlu sem féll í brunn í heimabæ sínum í
Mexico í október eins og flestum er í fersku minni.
Jessica er nú komin heim af sjúkrcihúsinu. Þaö eina
sem mun minna Jessicu htlu á óhappið er aö taka
þurfti örlítinn part af annarri litlutá þar sem komið
var kal í hana.
Þaö var 14. október sem Jessica litla var að leik í
garöinum heima hjá, sér í Midland. Móöir hennar
þurfti áö svara í símánn og á meðan féll barnið í
brunninn sem var þröngur og sjö metra djúpur. í
58 tíma beið Jessica eftir hjálp.
Björgunarmaður
kemur með barnið
úr brunninum.
Heimurinn stóð á öndinni meðan
björgunarmenn reyndu að ná
Jessicu úr brunninum en sýnt var
beint frá því í bandarískum sjón-
varpsstöðvum. Jessica iitla hefur nú
náð sé fyrir utan að hún missti hluta
af litlu tá. Hún á þó ekki að þurfa
að haltra.
Annar fótur hennar haföi klemmst
illa og blóðrennsli tii hans stöðvast.
Jessica er hetja segja læknar og
henni á ekki eftir að verða neitt
meint af þessari lífsreynslu í framtíð-
inni.
Bandaríska þjóðin sem og aðrar
þjóðir fylgdust vel með björgun
Jessicu og sendu peninga og leikföng
tfl foreldra hennar. Peningarnir
komu sér vel því sjúkrahúsvistin
kostaði á aðra milljón króna. Af-
gangspeninga og leikföng sendu
foreldrar Jessicu síðan til annarra
sjúkra bama.
Systkinin Gitte og Jan Nielsen heima
í Danmörku.
Jan, litli bróðir Gitte Nielsen, hefur
verið stoð og stytta stóru systur í
öllu veraldarvafstri hennar á síðustu
árum. Gitte var sérstaklega umtöluð
meðan hún var gift jötninum Syl-
vester Stallone og þá ekki síður þegar
þau skiidu.
Þegar Gitte fékk fyrsta stóra tæki-
færið í sjónvarpinu - það var á Ítalíu
- var Jan við hlið hennar og var þá
raunar einnig á fóstu með Keliy,
einkaritara Gitte.
Jan býr nú í Los Angeles og hefur
verið þar í tvö ár. Annars eru þau
systkinin dönsk eins og kunhugt er.
Systir hans býr nú heima í Dan-
mörku og þar var Jan í heimsókn
nú á dögunum.
Hann segir að það skipti sig engu
þótt skrifað sé illa um Gitte því að
hann viti hvað er satt og að Gitte sé
besta stóra systir sem hann hafi frétt
af. „Okkur hefur alltaf samið vel og
það hefur ekkert breyst með árun-
um,“ segir Jan. „Ég er stoltur af
systur minni, hvað svo sem skrifað