Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Page 29
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
29
Sérstæö sakamál
Hans-Otto Bley.
málflutning og dómsuppkvaöningu.
Nokkru eftir að réttarhöldin hófust
sagöi svo um þau í þýsku blaði:
Akæröi svarar kurteislega öllum
spurningum. Hann kemur vel fyrir
sjónir, klæddur brúnum buxum,
gráum sumarjakka og hvítri skyrtu.
Þaö litla, sem eftir er af hári hans,
er vel snyrt. Hann nýr oft saman
höndum og lætur braka í hnúum.
Augnaráð hans er óstööugt og í
hægra hluta andlitsins má greinilega
sjá kippi sem benda til þess aö taugar
hans séu undir miklu álagi.
Er Stahmer gekk um gólflð í réttar-
salnum til þess aö sýna hvernig hann
heföi gengið aö húsinu (sem Hans-
Otto og Marita bjuggu í) með rifflhnn
undir frakkanum brakaöi í tréplöt-
unum.
Mikilsamúð
Síöan geinir blaðiö frá þvi, eins og
reyndar fleiri blöö, hve mjög fólk í
salnum hafi snúist á sveif með Joc-
hen og hve mikla samúö hann hafi
fengið er saga hans, allt frá
bemskuárum, var sögö.
Eitt af því sem margir tóku eftir
var frásögnin af atvikinu er Jochen
kom aö síðari konu sinni, Maritu, og
manninum, sem hafði tekið að sér
að kenna henni aö sitja hest, á hey-
loftinu í hlööunni. Þótti mörgum
atburðurinn minna á skáldsögu frá
fyrri tíö en jáfnframt var til þess tek-
iö hve mikla stillingu hann sýndi við
það tækifæri og aö hann lét málið
niður falla.
Þá kom einnig fram hve vænt Joc-
hen þótti um dótturina, Önju, en
stundum hafði hann sofiö í barna-
herberginu hjá henni enda gaf hann
sér góöan tíma til þess að leika viö
hana.
Marita Stahmer.
Mikil örvænting
Þetta voru þau voru orö sem Bier-
man dómari tók sér í munn er hann
kvaö upp dóminn í sakamálaréttin-
um í Hamborg. Orðrétt sagöi hann:
„Þaö er ljóst að ákærði hefur framið
verknaðinn í miklu örvæntingar-
ástandi. Þess vegna er ekki hægt aö
Mta svo á aö um morö hafi verið aö
ræöa og morðtilraun heldur mann-
dráp viö aðstæður sem krefjast mildi.
Því er ákæröi dæmdur í íjögurra og
hálfs árs fangelsi.“
Frjáls ferða sinna
Strax eftir dóminn var Jochen
Stahmer leyft að fara frjáls feröa
sinna. Er nú beðiö eftir því hvort
ákæruvaldið kýs aö áfrýja dóminum.
Þótt ýmsir kunni aö líta svo á aö
Jochen hafi fengiö léttan dóm benda
aðrir á aö í raun og veru hafi þaö sem
gerðist haft svo mikil áhrif á líf hans
aö vart verði svo á htiö aö hann hafi
sloppið létt frá verknaðinum. Þannig
er dóttir hans, Anja, nú komin í fóst-
ur há ömmu sinni og afa, foreldrum
Maritu. Þá hefur og orðið mikil
breyting á samskiptum Jochens og
fyrrum vina hans og aö auki hafa
einkamál hans verið opinberuð í fjöí-
miölum. Hann er því einmana maöur
í dag og vandamálin mörg sem hann
þarf að horfast í augu viö.
Athyglisverður dómur
Dómurinn yfir Jochen Stahmer er
þó afar athyghsveröur fyrir þær sak-
ir aö vegna örlaganetsins, sem hann
flæktist í, hefur hann hlotið samúð
margra, þar á meðal dómara og sál-
fræöings. Er mál hans því á vissan
hátt líkt öörum málum sem komið
hafa upp í Þýskalandi og annars staö-
ar að undanfórnu þar sem tekið er
tillit til heimilisaðstæöna og annars
sem' komiö hefur viö viðkvæmar
taugar fólks í sambúö og þykir ýms-
um þetta tákna breytta afstööu
þjóöfélagsins til fólks sem vinnur
voöaverk í mikilli örvæntingu er því
þykja allar götur lokaðar.
í rauninni er því verið aö greina
frekar á milli shkra verknaða og
morðs í ábataskyni eöa af öðrum
álíka hvötum en gert hefur veriö.
Þykir sumum stefna í rétta átt en
öörum ekki en rétt er þó að benda á
aö þau mál, sem hér um ræðir, hafa
flest verið mjög sérstæð.
Jochen með dóttur sinni, önju.
ERT’ AÐ LEITA AÐ HÚSGÖGNUM?
Kommóður, skrifsborðsstólar, hrúgöld, hábaksstólar,
Stardust, 2ja manna svefnsófar í nýjum litum.
Opið laugardag og sunnudag til kl. 4.
Bólstrun Sveins Halldórssonar
Laufbrekku 26, Dalbrekkumegin
- sími 641622.
Póstsendum um allt land.
VW Transporler
Nýsprautaður og nýyfirfarinn.
Mjög traustur vinnuþjarkur.
Góð greiðsiukjör.
Skipti - Skuldabréf
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 10-19.
æ
BÍLASALAN BUK
SKEIFUNNI 8,
SÍMAR 686477, 687177, C87178 OG 686642