Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Side 32
32
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
Veröld visindaruia
Tölvan getur haft auga meö hugsanlegum vinnusvikum.
Tölvan fylgist með þér
Þeir sem sitja fyrir framan tölvu
daglangt halda vist flestir aö við-
skipti þeirra viö gripinn séu öll á einn
veg. Þaö er tölvan sem taki við og
hlýði. Enginn ætti þó að horfa fram
hjá þeim möguleika að tölvan getur
verið að fylgjast með vinnunni.
í Bandaríkjunum hefur könnun
leitt í ljós að um 6 milljónir manna,
sem vinna við tölvur, verða líka að
hlíta eftirliti þeirra í stóru og smáu.
Eftirht af þessu tagi er auðveldast
þegar unnið er við útstöðvar frá stór-
um tölvukerfum.
Að loknum hverium degi gefur
tölvan upp hve mikið komst í verk
og hve langur tími fór í hangs. Það
eru einkum bankar sem beita þessu
en raunar eru engin takmörk fyrir
hvar þetta á ekki við. Þess eru jafn-
vel dæmi að símakerfi eru tengd við
þennan búnað og starfsmenmrnir
varaðir við ef þeir tala of mikið fyrir
sjálfa sig í símann.
Vestanhafs hafa ýmsir orðið til að
vara við þessari nýjung í notkun
tölvukerfa. Sagt er að þetta auki
streitu og hætta sé á að yfirmenn fái
undirmenn upp á móti sér. Því geti
árangurinn af þessu eftirliti orðið
minni en enginn.
Einnig hefur verið bent á að þetta
geti verið upphafið að þjóðfélagi
Stóra bróður eins og George Orwell
lýsti því í sögunni 1984. Nokkrir þing-
menn í Bandaríkjunum hafa ákveðið
að skera upp herör gegn þessari þró-
un og segja að ef ekki verður gripið
í taumana strax verði það um sein-
ann eftir fá misseri.
Sveigjanleg
raíMaða
Kominerá
markaðinn
sveigjanleg
rafhlaðasem
tvö evrópsk
fyrirtæki,
Vartaog
BASF, hafa
látiðhanna.
Hægterað
endurhlaða
hanaognota
við allar gerð-
ir raftækja.
Helstu kostir þessarar nýju raf-
hlöðu eru að hana má laga að
nánast hvaða plássi sem er. Þetta
auðveldar mjög hönnun smárra
raftækja því ekki þarf lengur að
taka ferhymt pláss frá fyrir raf-
hlöðuna heldur er hægt að láta
plássið ráða lögun hennar.
Tölva
hannar og
saumar föt
Sá tími kann að vera skammt
undan aö hægt sé að ganga inn í
fataverslun og biðja um flík eftir
máli og fá hana sérsaumaða á auga-
bragði. Fataframleiðandi í New
Yorkbýður
núþegarboli
sem eru
„soðnir" sam-
anmeð sér-
stökum
hitageislum.
Með þessari
aðferð sjást
engirsaumar.
Núerverið
aðútfæra
þessaaðferð
enn frekar
með þvíað
láta myndavél taka mál af við-
skiptavinunum og tölva sér um aö
sníða efnið og „sjóða“ það saman.
Ef allt gengur að óskum á þetta að
geta gerst á nokkmm mínútum og
viðskiptavinurinn gengur út í nýrri
„klæðskerasaumaðri" flík.
Rafhlöður þurfa
ekki lengur að
vera harðar.
Arangur sauma-
tölvunnar er
óaðfinnanlegur.
Rafinagnaðar verðmerkingar
Stundumem verðmiðarávörumsvo þeim. Stundum vantar þá alveg og
litlir að vandséð er hvað stendur á þegar útsölur standa yfir er oftar en
Þegar þrýst er á takkann birtast upplýsingar um verð vörunnar á skjánum.
ekki látið nægja að krota yfir gamla
veröið með því nýja þannig að hvor-
ugt sést:
Nú er hægt að ráða bót á þessum
vandræðum með verðmiðana með
nýrri rafeindatækni. Hún byggist á
því að við hverja vörutegund er kom-
ið fyrir litlum tölvuskjá. Skjáimir
em tengdir við móðurtölvu verslun-
arinnar en hún hefur í minni sínu
allar upplýsingar um vöruverð í
versluninni.
Þegar neytandinn gengur um
verslun, sem státar af þessum bún-
aði, þarf hann ekki annað en að
styðja á takka og verð vörunnar birt-
ist á skjánum. Og það er ekki aðeins
hægt að kalla fram veröið heldur
einnig ýmsar aðrar uplýsingar um
vöruna. Það er hægt að biðja tölvuna
að gefa upp kílóverð og hvort varan
sé á tilboðsverði og þá hvað hún hef-
ur verið lækkuð mikið.
Með þessu móti geta verslanimar
einnig fylgst með hve oft viðskipta-
vinirnir forvitnast um verð á ein-
stökum vöram og ef lítið selst þá
bendir það til að verðið sé of hátt.
Seljendur þessa búnaðar segja að
hann borgi sig upp á tveim til þrem
árum því hann gerir handvirka verð-
merkingu óþarfa og verslunareig-
endur geta betur en áður fylgst með
áhuga og óskum viðskiptavinanna.
Skrítnir steinar frá Mars
Bæði Bandaríkjamenn og Sovét-
menn hyggja á kostnaðarsamar
ferðir til Mars í þeim tilgangi að
sækja þangað steina til að rannsaka.
Sovétmenn segjast fá fyrstu sýnin frá
Mars fyrir lok þessarar aldar og ólík-
legt er að Bandaríkjamenn sætti sig
við að verða eftirbátar þeirra.
Þessi ferðalög verða óhemjudýr og
em ef til vill tilgangslaus að auki.
Tveir jarðeðlisfræðingar við háskól-
ann í Arizona halda því að minnsta
kosti fram að þeir hafi þegar undir
höndum steina frá Mars. Þótt þetta
kunni að hljóma ótrúlega hafa þeir
fært ítarleg rök fyrir máli sínu.
Nýjar rannsóknir á nokkmm
þekktum loftsteinum sýna að meðal
þeirra em steinar sem era saman-
settir úr öðrum efnum en allur fjöldi
loftsteina. Þeir eiga heldur ekki sinn
líka meðal steina Jarðarinnar og
tunglsins. Þegar þeir fundust veittu
menn því athygli að þeir voru svolít-
ið sérstakir án þess þó að skýringa
væri leitað.
í ljós hefur komið að þessir steinar
eru úr bergi sem hefur verið lengi í
mótun en það grjót sem svífur um
geiminn ber þess annars ekki merki.
Steinamir eru einnig yngri en aðrir
loftsteinar. Þetta bendir til að stein-
arnir séu komnir af yfirborði ein-
hverrar plánetu. Aðdráttarafl sólar
veldur því að ólíklegt er að steinarn-
ir geti verið komnir frá annarri
plánetu en Mars. Aðeins er þó fræði-
legur möguleiki á að þeir séu komnir
þaðan.
Það gæti hafa gerst þannig að loft-
steinn hafi rekist á Mars og þyrlað
upp efnum af þvílíkum krafti að þau
hafi borist út fyrir gufuhvolf plánet-
unnar og lent inn í aðdráttarafli
Jarðar. Þetta er þó aðeins kenning
sem ekki verður sönnuð nema með
samanburði við steina frá Mars. Þeir
fást ekki nema með því að fara á stað-
inn. Stórveldin ættu því ef til vill að
senda geimför til Mars til að sækja
gijót.
Ef til vill hefur þessi steinn borist frá Mars.
Rafeindavinkill
Þegar Ijós logar á vinklinum er hornið rétt.
Allir smiðir eiga vinkla sem til
þessa hafa þótt alveg nógu nákvæm-
ir. Nú hefur verið fundinn upp
vinkill sem er svo nákvæmur að þeir
vinklar sem hingað til hafa verið
notaðir virðast einskis nýtir. Nýi
vinkillinn er þó ekki vísindatæki
heldur er hann ætlaður til almennra
nota
Þetta nýja tæki byggist á rafeinda-
tækni og mælir hom með nákvæmni
upp á fimmhundraðasta hluta úr
tommu. Þetta er að vísu meiri ná-
kvæmni en kemur að nokkram
notum við smíðar en þar sem verk-
færið kostar ekki nema eitt til tvö
þúsund krónur er óþarfi að kvarta
undan nákvæmninni.
Nýi vinkillinn er þrihyrndur og
þegar hann er borinn að réttu homi
logar ljós í honum miðjum. Við
fyrstu sýn er þetta heldur ómerkilegt
verkfæri úr plasti með stálhnúðum
á hliðunum. Það eru boð frá þessum
hnúðum sem segja til um hversu
nálægt réttu horni það er sem mælt
er. Aðeins er hægt að mæla 90° og
45° horn með verkfærinu.