Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
59
Iþróttapistill
Tími hefiida
runninn upp
Sá sem þetta skrifar gleymir
seint og raunar líklega aldrei leik
íslands gegn Suður-Kóreu í heims-
meistarakeppninni í Sviss árið
1986. Þetta var fyrsti leikur íslands
í keppninni og úrslitin líða mönn-
um seint úr minni, 21-30. Leik-
ihenn íslenska liðsins voru ílestir
mun nær gráti en hlátri eftir leik-
inn og þetta voru vægast sagt
niðurdrepandi úrsht.
Eftir þessum leik muna örugg-
lega alhr þeir sem sátu fyrir
framan sjónvörpin er leikurinn var
sýndur hér heima. Hreint hroðaleg
byrjun en sem betur .fer fór allt
betur en á horfðist í fyrstu.
Tími hefnda er runninn upp
Af því er þetta rifjað upp hér að
Suður-Kóreumenn eru hingað
komnir til að leika landsleiki gegn
íslandi. Þjóðimar hafa ekki leikið
saman frá því í Sviss og því er nú
runnin upp sú stund þegar íslensku
leikmennimir hafa tækifæri á að
hefna úrslitanna í Genf. Það er hins
vegar alveg ljóst að það gera leik-
menn okkar ekki einir. Þeir fjöl-
mörgu sem urðu fyrir vonbrigðum
með úrslitin á HM í Sviss hafa nú
tækifæri á að mæta í leikina og
hvetja ísland til dáða.
Hrikalegasta áfallið?
í DV, daginn eftir landsleikinn
gegn Suður-Kóreu í Sviss mátti lesa
í fyrirsögn: „Hrikalegasta áfall í
sögu íslensks handknattleiks". Og
það er víst að þetta var ekki orðum
aukiö. Þær raddir hafa heyrst und-
anfarið aö Suður- Kóreumönnum
hafi farið mikið fram frá því 1986.
Vitað er að lið þeirra leikur ekki
venjulegan handknattleik og því
eiga þau landshð, sem lengra em
komin og leika hefðbundinn hand-
bolta, oft í miklum vandræðum
með þá skáeygðu. Það verður fróð-
legt að sjá hvemig íslenska hðinu
reiðir af í leikjunum en ég spái því
að leikirnir verði mjög erfiðir fyrir
okkar menn og þeir vinnist ekki
alhr, ef þá nokkur.
Einsdæmi í sögu íþrótta hér
á landi?
Marga rak í rogastans á mánu-
daginn þegar þeir lásu á íþróttasíðu
í DV að körfuknattleiksmaöur
heföi verið rotaður í íþróttahúsinu
Digranesi í Kópavogi. ívar Webst-
er, Haukum, var þar að verki en
fórnarlambiö var Bjöm Hjörleifs-
son í Breiðabliki. Ég held að það
sé algert einsdæmi að íþróttamað-
ur roti annan hér á landi og ég segi
nú bara sem betur fer. Taka verður
hart á svona málum en hafa verður
þó í huga að hér er um fyrsta alvar-
lega brot ívars Websters að ræða.
Webster með afbrigðum ró-
legur leikmaður
Sú staðreynd blasir við að ívar
Webster hefur verið þekktur fyrir
íþróttamannslega framkomu frá
Umsjón
Stefán Kristjánsson
því hann hóf að leika körfuknatt-
leik hér á landi og aldrei hefur
hann áður gert flugu mein. Hér er
þó ekki verið að draga úr því alvar-
lega atviki sem átt hefur sér stað
og ekki kemur annað iil greina en
að Webster gjaldi veglega fyrir rot-
högg sitt. Atvik þetta er áfah fyrir
körfuknattleikinn og í raun iþrótta-
hreyfmguna í heild sinni. Vonandi
verður þetta í fyrsta og eina skiptið
sem shkt gerist hér á landi.
Vetur konungur enn
á undanhaldi
Hvort sem þeir sem þetta lesa
trúa þvi eður ei verður á morgun,
sunnudag, haldið golfmót uppi í
Grafarholti. Landsmenn ahir hafa
ekki farið varhluta af þéirri ein-
stöku veðurblíðu eða réttara sagt
þeirri sumarbhðu sem ríkt hefur
hér sunnanlands undanfarnar vik-
ur. Menn hafa verið að reyta ih-
gresi í görðum sínum í Keflavík,
taka upp kartöflur í Þykkvabæn-
um, taka brosandi á móti útspr-
ungnum stjúpum á Akureyri og
svona mætti lengi halda áfram. Það
er því kannski bara eðhlegt að
haldið sé golfmót 20. desember eða
hvað? Almenningur á sér vart heit-
ari ósk þessa dagana en að sumar-
veðráttan haldist og vetur
konungur verði áfram á því mikla
undanhaldi sem hann hefur óneit-
anlega verið á síðustu vikur og
mánuði. Og vonandi geta kylflngar
haldið fleiri mót á næstu vikum.
Misjafnar jólabækur fyrir
íþróttaáhugamenn
Eins og endranær gefst íþróttaá-
hugamönnum kostur á að lesa
bækur tengdar íþróttum um þessi
jól, svo framarlega auðvitaö sem
þær verða undir jólatrénu í næstu
viku. Sérstaka athygli hafa bækur
Víðis Sigurðssonar vakið, bækum-
ar um Arnór Guðjohnsen annars
vegar og íslenska knattspyrnu 1987
hins vegar. Báðar bækumar eru
uppfuhar af fróðleik og virkhega
skemmtheg lesning. Þá er einnig
komin út bók um Jón Pál Sig-
marsson, aflraunamann og fyrr-
verandi kraftlyftingamann. Sömu
sögu er því miður ekki hægt aö
segja um þá bók og afurðir Víöis
Sigurðssonar. Bókin um Jón Pál,
sterkasta mann heims, er því mið-
ur hla unnin en engu að síður má
finna í henni fróðleik og skemmti-
legar setningar sem hafðar em eftir
Jóni Páh. Þær era bara alltof fáar
en vonandi fleiri í næstu bók um
kappann.
Besta jólagjöfin sem íþrótta-
menn geta hugsað sér
Nú hður senn að ólympíuleikum
en þeir fara sem kunnugt er fram
í Kóreu á næsta ári og hefjast í sept-
ember. Fjöldi íslenskra íþrótta-
manna æfir af kappi fyrir leikana
en enginn þeirra veit ennþá hvort
hann verður vahnn th aö keppa á
leikunum eða ekki. Þetta er afleitt
að mínu mati. íþróttamenn eyða
feiknalegum tíma í æfingar, dæmi
em th um íþróttamenn sem frestað
hafa námi vegna undirbúnings fyr-
ir leikana og fjölskyldur margra
íþróttamanna verða óneitanlega
fyrir barðinu á öhum þeim mikla
undirbúningi sem þátttaka í
ólympíuleikunum krefst. Því væri
það besta jólagjöfin sem þessir
íþróttamenn gætu eflaust hugsað
sér að fá að yita hvort þeir veröi í
ólympíuhði íslands eða ekki. Er
hér með skorað á þá menn sem
með þessi mál fara að þeir taki sér
tak og thkynni sem allra fyrst
hvaöa íþróttamenn eigi að keppa
fyrir íslands hönd á leikunum.
Þetta er síðasti íþróttápisthl minn
fyrir jól og vil ég því nota tækifæ-
rið og óska íþróttamönnum og
öðrum lesendum DV gleðilegrar
hátíðar.
Stefán Kristjánsson
• Körfuknattleiksmenn hafa verið í sviðsljósinu undanfarið vegna rothöggsins í Digranesi sem vonandi endur-
tekur sig aldrei.
Hellissandur
DV óskar eftir að ráða umboðsmann
á Hellissandi frá 1. jan. '88.
Upplýsingar gefa María Guðmundsdóttir í síma
93-66626 og afgreiðslan í Reykjavík
í síma 91 -27022.
#CITIZEN
Jólagjöf tölvueigandans!
CITIZEN LSP-10 hefur verið einn
mest seldi prentarinn hérlendis undan-
farin ár og ektí að ástæðulausu.
Nú bætir CITIZEN um betur,
með LSP-100, enn meiri
fjölhæfni og afköst en áður.
Mesti prenthraði er 175 stafir á
sekúndu, 30 stafir á sekúndu í
spariletri (NLQ). Stafastærðir
eru frá 5 stöfum á tommu i—
í 20, hægt er að hafa stafi í
tvöfaldri hæð fyrir fyrirsagnir. CITIZEN LSP-100 er einnig
gerður til að endast, verksmiðjuábyrgð í tvö ár, tvöfalt lengri en
hjá öðrum! CITIZEN LSP-100 hentar öllum tölvum, sérstaklega
PC og AT samhæfðum.
Tölvueigandinn fær hér sérstatíega fjölhæfan prentara sem
hentar einstaklega vel sem einkaprentari á skrifstofuna eða heim.
Atvinnumenn treysta CITIZEN prenturum. Þú getur treyst því
að tölvueigandinn verður hæstánægður með LSP-100.
MICROTÖLVAN
Síðumúla 8 - 108 Reykjavík - sími (91)-688944
V _____________________________________________________/
N Y FORM
REYKJ AVÍKURVEGI66,220 H AFN ARFIRÐI, SÍMI54100.
SJÓNVARPS-
SKÁPAR