Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Page 56
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
Kvikmyndir
Hér afhjúpar Stourley magann á sér fyrir framan matargesti.
Kúluvömb
arkiteksins
A ýmsu hefur gengið í breskri kvikmynda-
gerð. Þó koma inn á milli perlur eins og
nýjasta mynd Peters Greenaway sem ber
heitið The Belly of an Architect.
■íf t
i
* i
■fr i
BLAÐ
BURÐARFÓLK
é eý%i/C£atirv /weAsjjL:
Barmahlíð
Reykjah líð
M jóahlíð
Grundarstíg
Þingholtsstræti
Ingólfsstræti
Hátún
Miðtún
Hverfisgötu 1—66
Smiðjustig
Þórsgötu
Lokastíg
Freyjugötu
Hverfisgötu 68-115
Snorrabraut 22-24
Barónsstíg 1-9
Kópavog
Álfhólsveg 64-95
Oigranesveg 91-125
Lyngheiði
Melaheiði
Tunguheiði
ÞVERHOLTI 11
1 i
Í Í it
t i -fr 1t
AFGREIÐSLA
SIMI 27022
Óhætt er að fullyrða að bresk kvik-
myndagerð má muna sinn fífil fegri.
Eftir síðari heimsstyrjöldina hefur
kvikmyndagerð þar farið mjög hrak-
andi auk þess sem aðsókn að
kvikmyndahúsum hefur farið sífellt
minnkandi. Þó hafa komið inn á milli
blómaskeið sem gáfu tilefni til bjart-
sýni og að bresk kvikmyndagerð
væri að rétta úr kútnum en þær von-
ir brustu jafnharðan.
Um 1968 kom smá fjörkippur þegar
Lindsey Anderson gerði mynd sína
If. Einnig var félagi hans, John
Schlesinger, iðinn við kolann á þess-
um tíma og má nefna myndirnar
Sunday Bloody Sunday (1972) og svo
Midnight Cowboy (1968) sem hann
gerði að vísu í Bandaríkjunum. Svo
virtist sem efnilegir leikstjórar yrðu
að leita fyrir sér til Bandaríkjanna
til að tryggja aðstöðu og fjármagn
sem þuifti til að gera þær myndir
sem þéir höfðu í huga.
Síðara blómaskeið
Næsti fjörkippur kom 1982 og var
raunar talað um þann 23. mars sem
upphaf endurreisnar breskrar kvik-
myndagerðar. Ástæðan fyrir þessari
dagsetningu var sú að þennan dag
hlaut þreska myndin Chariots of Fire
óskarsverðlaunin sem besta myndin
og var raunar fyrsta breska myndin
sem hlaut þennan titil síðan 1968
þegar myndin Oliver hlaut hann.
Fyrir utan að vera bresk þá varð hún
gífurlega vinsæl um allan heim enda
tilkynnti aðalleikari myndarinnar,
Colin Welland, að nú skyldu Banda-
ríkjamenn passa sig því „Bretarnir
eru að koma“. Síðan komu nokkrar
stórgóðar myndir eins og Educating
Rita (1983) og Killing Field (1984) sem
raunar var framleidd af aðstandend-
um Chariots of Fire. En einhvern
veginn náði bresk kvikmyndagerð
sér aldrei almennilega á strik og
hjaðnaði síðan niður með tímanum
þótt inn á milli kæmu stórmyndir á
borð við Gandhi.
Sérstætt yfirbragð
En þótt hér hafi verið dregin upp