Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Page 69
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
73
DV
JSnatan Þórmundsson
Jónatan Þórmundsson prófessor,
Bræðraborgarstíg 15, Reykjavík, er
fimmtugur í dag. Jónatan fæddist
í Reykjavík og lauk lögfræðiprófi
frá Háskóla íslands 1964. Hann var
fulltrúi ríkissaksóknara 1964-1970
og var í framhaldsnámi í lögfræði
og afbrotafræði við Kaliforníuhá-
skóla í Berkeley 1965-1966. Jónatan
varð héraðsdómslögmaður 1967 og
fékk löggildingu til sóknar opin-
berra mála í héraði 1963. Hann var
lektor við lagadeild Háskóla ís-
lands 1967-1970 og prófessor í
refsirétti 1970. Jónatan var varafor-
seti háskólaráðs 1972-1973 og
gegndi um tíma störfum rektors.
H^nn hefur setið í stjórn Há-
skólabíós og var formaður Lög-
fræðingafélags íslands 1974-1975.
Jónatan hefur verið formaður Sak-
fræðingafélags íslands frá 1971 og
formaður Félags háskólakennara
1971-1972. Hann er löggiltur dóm-
túlkur og skjalaþýðandi í ítölsku
og hefur setiö í stjórn hugvisinda-
deildar Vísindasjóðs. Jónatan
hefur verið formaður fullnustu-
nefndar frá 1978 og verið fulltrúi
íslands í norræna sakfræðiráðinu
frá 1980. Hann er nú forseti laga-
deildar Háskóla íslands og ritstjóri
Guðfinna Erla Jörundsdóttír,
Æsufelli 4, Reykjavík, verður sex-
tug á mánudaginn. Guðfmna er
fædd á Hellu í Steingrímsfirði og
ólst þar upp. Hún fluttist til Reykja-
víkur tuttugu og fimm ára og hefur
búið þar síðan. Guðfinna vann á
Landspítalanum í átta ár og var
síðan ráðskona í Iðnskólanum í
fjögur ár. Hún hefur nú séð um
kaffiveitingar í Landsbankanum á
Laugavegi 7 í tæp þrjú ár.
Börn Guðfmnu eru fjögur: Elín,
hárgreiðslumeistari í Reykjavík;
Anna Sigríöur, iðjuþjálfl í Reykja-
vík; Jörundur, vaktstjóri á Land-
spítalanum og Þorbjörg Elenóra
menntaskólanemi. Þorbjörg Ele-
nóra býr hjá móður sinni en hin
börnin þrjú eru gift og hafa stofnað
heimili. Barnabörn Guðfinnu eru
sjö.
Systkini Guðfinnu eru Ingimund-
ur Gunnar, sem lengi var smiður í
Gamla kompanínu í Reykjavík^ en
hann er látinn; Ragnar Þór, b. á
Hellu; Lárus Örn, rafvirki í Reykja-
vík; Vígþór Hrafn, skólastjóri á
Tímarits lögfræðinga og er settur
ríkissaksóknari í Hafskipsmálinu.
Kona Jónatans er Sólveig Ólafs-
dóttir, f. 7. janúar 1948, lögfræöing-
ur, framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra auglýsingastofa. Foreld-
ar hennar voru Olafur Jónsson,
búnaðarráðunautur í Skagafirði og
kona hans, Ásta Jónsdóttir. Sonur
Jónatans og Sólveigar er Þórmund-
ur, f. 3. apríl 1972. Sonur Jónatans
og fyrri konu hans, Sigríðar Sig-
urðardóttur kennara, er Sigurður
Freyr, f. 7. maí 1969, menntaskóla-
nemi.
Foreldrar Jónatans eru Þór-
mundur Erhngsson, b. í Stóra-
Bötni í Hvalfirði, síðar birgðavörð-
ur í Rvík, og kona hans, Oddný
Kristjánsdóttir. Faðir Þórmundar
var Erlingur, b. á Glammastöðum
á Hvalfjarðarströnd, Ólafsson.
Móðir Erlings var Margrét Erlings-
dóttir, af Fremri-Hálsættinni.
Móðir Þórmundar var Auðlín Erl-
ingsdóttir, b. í Bakkabúð, Jónsson-
ar og konu hans, Þórdísar
Hannesdóttur frá Minna-Mosfelli í
Grímsnesi.
Oddný er dóttir Kristjáns Skag-
fjörð, múrara í Reykjavík, Jónsson-
ar Skagfjörð, verkamanns í
Jörundsdóttir
Varmalandi í Borgarfirði; Guð-
laugur Heiðar, módelsmiður í
Reykjavík. Elstur þeirra systkina
er svo hálfbróöir þeirra, Magnús
Jörundsson, sjómaður í Reykjavík.
Fóstursystir Guðfinnu er Elenóra
Jónsdóttir en þær Guðfmna eru
systkinadætur.
Foreldrar Guðfmnu eru Jörund-
ur Gestsson, b„ bátasmiður og
skáld á Hellu í Steingrímsfirði, f.
5.1.1900, og kona hans, Elín S. Lár-
usdóttir, f. 13.5. 1900, en hún er
látin. Fööurforeldrar Guðfinnu
voru Gestur-Kristmundsson, b. í
Hafnarhólmi, og kona hans, Guðr-
ún Árnadóttir. Móðurforeldrar
Guðfinnu voru Lárus Mikael Pálmi
Finnsson, b. í Álftagróf í Mýrdal,
og kona hans, Arnlaug Einarsdótt-
ir. Faðir Lárusar var Finnur, b. í
Álftagróf, Þorsteinssonar, b. og
smiðs í Vatnsskarðshólum í Mýr-
dal, Eyjólfssonar. Meðal afkom-
enda Þorsteins má nefna Erlend
Einarsson, fv. forstjóra SÍS, Einar
Ágústsson utanríkisráðherra,
Ragnheiði Þórarinsdóttur borgar-
Jonatan Þormundsson.
Reykjavík, Jónssonar, frá Holts-
múla í Skagafirði. Móöir Kristjáns
var Jóhanna Björnsdóttir, b. í
Hvammi í Langadal, Jónssonar.
Móðir Oddnýjar var María Jóns-
dóttir, formanns í Gróttu, Jónsson-
ar, útvegsbónda í Brekkubæ í
Reykjavík, Guðmundssonar. Móðir
Maríu var Gróa Jónsdóttir, b. á
Mófellsstöðum í Skorradal, Jóns-
sonar og konu hans, Guðríöar
Egilsdóttur, b. á Þórustöðum, Guð-
mundssonar, prests' á Kálfatjörn,
Böðvarssonar, prests í Guttorms-
haga, Högnasonar, prests á Breiða-
bólsstað í Fljótshlíð, Sigurðssonar
„prestafóður".
Guðfinna Erla Jörundsdóttir.
minjavörð og Jón Helgason, pró-
fessor og skáld. Arnlaug var dóttir
Einars, b. á Felli í Mýrdal, Einars-
sonar, b. á Ysta-Skála undir Eyja-
fjöllum, Sighvatssonar, en meðal
afkomenda Einars Sighvatssonar
má nefna Magnús Jóhannesson
sighngamálastjóra og Bjarnhéðin
Elíasson, skipstjóra í Vestmanna-
eyjum.
Guðfmna tekur á mótí gestum að
heimili sínu, Æsufelli 4, lauagar-
daginn 19. desember eftir kl. 17.
Guðfinna Erla
Anna Ragnheiður Fritzdóttir
Anna Ragnheiöur Fritzdóttir,
Búðarbraut 10, Búðardal, er sjötíu
og fimm ára í dag. Anna Ragn-
heiður er fædd á Stóra Bergi á
Skagaströnd og ólst upp í foreldra-
húsum. Hún fór sautján ára í vist
í Dalina og giftist 1934, Hahgrími
Jónssyni, stöðvarstjóra og póstaf-
greiðslumanni í Búðardal, f. 1901,
d. 1982. Hallgrímur var bróðir Jóns,
skálds og söngvara frá Ljárskóg-
um, en foreldrar þeirra voru Jón
Guðmundsson, b. og gullsmiður í
Ljárskógum í Laxárdal, og kona
hans, Anna Hallgrímsdóttir. Börn
Önnu og Hallgríms eru sex: Regína
Anna, starfar í Nýjabæ í Seltjarn-
arnesi; Anna Ragnheiður, póst-
maður í Búðardal; Ingibjörg Anna,
húsmóöir í Árhus í Danmörku;
Hrafnhildur Anna, fv. b. og hrepp-
stjóri á Tungu í Hörðudal; Gylfi,
hefur starfað við vinnuvélar hjá
Reykjavíkurbæ, nú búsettur í
Hveragerði og Yngvi, farmaður hjá
SÍS og búsettur í Reykjavík. Systk-
ini Önnu eru fimm: Henrietta
Björg, býr í Búðardal; Jörgen Frið-
rik Ferdinat, húsvörður við skóla
í Kópavogi; Hans Ragnar; Elisabet
Gottfrieda, húsmóðir i Hafnarfirði
og Karla Steinunn, húsmóðir á
Sauðárkróki.
Foreldrar Önnu: Fritz Henriks
Berndsen húsasmiður og kona
hans, Henrietta Berndsen. Faðir
Fritz var Berndsen, kaupmaður á
Skagaströnd. Henrietta var dóttir
Jörgens Friðriks Ferdinats, kaup-
manns í Hafnarfirði.
Til hamingju með morgundaginn
75 ára_________________________
Ragnheiður Bjarnadóttir, Eini-
lundi 4A, Akureyri, er sjötíu og
fimm ára á morgun.
Sigrún Þorláksdóttir, Skúlagötu 58,
Reykjavík, er sjötíu og fimm ára á
morgun.
70 ára________________________
Halldór Þorláksson vélstjóri,
Neðstaleiti 4, Reykjavík, er sjötug-
ur á morgun.
Brynleifur Sigurjónsson bifreiða-
stjóri, Miklubraut 7, Reykjavík, er
sjötugur á morgun.
60 ára________________________
Eva Valdimarsdóttir, Skólavegi 33,
Vestmannaeyjum, er sextug á
morgun.
Reinhard V. Sigurðsson verkstjóri,
Bræðraborgarstíg 18, Reykjavík, er
sextugur á morgun.
50 ára_______________________
Einar Þórarinsson vélsmiður,
Gunnólfsgötu 14, Ólafsfiröi, er
fimmtugur á morgun.
Svava Svavarsdóttir, Asparfelli 8,
Reykjavík, er fimmtug á morgun.
Erla Ingileif Björnsdóttir, Einars-
stöðum, Reykdælahreppi, er
fimmtug á morgun.
40 ára___________________________
Baldvin Björnsson, Suðurgötu 56,
Hafnarfirði, er fertugur á morgun.
Jóhannes L. Harðarson skrifstofu-
stjóri, Hálsaseh 6, Reykjavík, er
fertugur á morgun.
Jón Baldvinsson bifreiðastjóri,
Tunguseh 9, Reykjavík, er fertugur
á morgun.
____________________Afmæli
Til hamingju með daginn!
75 ára_______________________
Aðalbjörg Björnsdóttir, Túngötu
22, Húsavík, er sjötíu og fimm ára
í dag. Hún verður að heiman á af-
mælisdaginn.
70 ára______________________
Huld Jóhannesdóttir, Hafnarstræti
97, Akureyri, er sjötug í dag.
Karitas Guðmundsdóttir, Lyng-
haga 12, Reykjavik, er sjötug í dag.
60 ára_______________________
Sigrún Níelsdóttir, Grenigrund 44,
Akranesi, er sextug í dag.
Gunnhildur Friðriksdóttir, Heiðar-
holtí, Svalbarðsstrandarhreppi, er
sextug í dag.
50 ára_______________________
Eysteinn Sigurðsson, Borgarfelli,
Lýtingsstaðahreppi, er fimmtugur
í dag.
Magnús Þorfinnsson, Hæðargarði,
Kirkjubæjarhreppi, er fimmtugur
í dag.
Margrét Sigríður Helgadóttir,
Skíðastöðum, Skefilsstaðahreppi,
er fimmtug í dag.
Elsa María Valdimarsdóttir, Báru-
stíg 14, Sauðárkróki, er fimmtug í
dag.
Sigríður Valdimarsdóttir, Flugú-
mýri, Akrahreppi, er fimmtug í
dag.
Ingimar Jónsson, Hjarðarslóð 3D,
Dalvík, er fimmtugur í dag.
Rögnvaldur Jónsson, Sogavegi 196,
Reykjavík, er fimmtugur í dag. r
Kristbjörg Þórðardóttir, Víðihhð
43, Reykjavík, er fimmtug í dag.
Ilse Ruth Thiede, Austurgötu 26,
Hafnarfirði, er fimmtug í dag.
40 ára_____________________
Jóhanna Óskarsdóttir, Knarrar-
bergi 1, Ölfushreppi, er fertug í dag.
Ragnheiður Björnsdóttir, Glæsibæ,
Staðarhreppi, er fertug í dag.
Eygló Eymundsdóttir, Hhðarvegi
20, ísafiröi, er fertug í dag.
Ogn Sigfúsdóttir
Ögn Sigfúsdóttir, Bláskógum 7,
Hveragerði, er áttræð í dag. Hún
er fædd í Ægissíöu í Vestur-Húna-
vatnssýslu. Ögn giftist 1929, Þor-
steini Jónssyni frá Hlíð sem nú er
látinn.
Börn þeirra eru níu: Jónas, skip-
stjóri, sem býr í Flórída, giftur
Kolbrúnu Hoffris, þau eiga þrjár
dætur; Margrét Bjarnfríður var gift
Hirti Jóhannssyni sem er látinn,
en þau eignuðust þrjú böm; Viggó
bifvélavirki, giftur Guðríði Jóns-
dóttur, en þau eiga fimm börn;
Sverrir matreiðslumaður, giftur
Guðnýju Ásgeirsdóttur, en þau
eiga fimm börn; Árni kennari, gift-
ur Steinunni Hróbjartsdóttur, en
þau eiga fjögur börn; Sigurður, for-
stjóri Sundlaugarinnar í Hvera-
gerði, giftur Hólmfríði Breiðíjörö,
en þau eiga fjögur börn; Helgi múr-
ari, giftur Hjördísi Ásgeirsdóttur,
en þau eiga þrjá drengi; Rósa, gift
Jóni Þórarinssyni smiði, en þau
eiga fjögur börn og Sigríður
íþróttakennari, býr í Sviþjóð, gift
Matta Ehsassyni og eiga þau þrjú
börn. Barnabarnabörn Agnar eru
tíu. Ögn er með elstu borgurunum
í Hveragerði og hefur búið þar í
fjörutíu og fimm ár.
Foreldrar Agnar: Sigfús Guð-
Ögn Sigfúsdóttir.
mannsson, b. á Ægissíðu, og kona
hans, Sigríður Hannesína Bjama-
dóttir. Faðir Sigfúsar var Guð-
mann, b. á Krossanesi, Árnason,
b. á Húki í Miðfirði, Guðmundsson-
ar. Móðir Sigfúsar var Ögn Eyjólfs-
dóttir, b. á Eyjarbakka,
Guðmundssonar, b. og skálds á 111-
ugastöðum, bróðir Natans, læknis
og skálds, Ketilssonar. Móðir Agn-
ar var Sigríöur Hansína Björns-
dóttir, Jóhannessonar Guðmunds-
"sonar, frá Melrakkadal,
Sigurðssonar, frá Haukagili í
Vatnsdal, Jónssonar. Móðir Sigríð-
ar var Rósa Magnúsdóttir.
Sveinn Kristjánsson
Sveinn Kristjánsson, fyrrv. b. á
Drumboddsstöðum í Biskupstung-
um, er sjötíu og fimm ára á
morgun. Sveinn var bóndi á
Drumboddsstööum í fjörutíu og eitt
ár.
Kona hans er Magnhildur Ind-
riðadóttir og eignuðust þau fimm
börn. Sveinn og Matthildur búa nú
í íbúðum aldraðra í Bergholtí í
Biskupstungum. Hann verður að
heiman á afmælisdaginn.
Orðsending um afmælisgreinar
Upplýsingar og greinar um afmælisbörn dagana 23. til 28.
desember þurfa að berast blaðinu í síðasta lagi mánudaginn
21. desember.
Upplýsingar og greinar um afmælisbörn dagana 30. desemb-
er til 4. janúar þurfa að berast blaðinu í síðasta lagi mánudáginn
28. desember.
Munið að senda myndir með greinum og upplýsingum.
I
Andlát
Gunnar Einarsson, Hjarðarhaga
60, Reykjavík, lést 16. desember.
Ólafur Aðalsteinsson, Eyrarvegi
12, Akureyri, lést 15. desember.
Guðmundur Valdimar Ágústs-
son, Sunnuhvoh, Vatnsleysu-
strönd, andaðist í Borgarspítal-
anum 18. desember.
Þórarinn Sigurðsson frá Hah-
ormsstað, Vestmannaeyjum, er
látinn.