Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
3
Fréttir
Fáir eru vinsælli þessa dagana
hjá smáfólkinu en jólasveinarnir.
Þessi káti karl sást í miðbænum
og ungviðið var fljótt að taka við
sér. DV-mynd BG
A leið til
Bangkok
Nú hafa tveir ferðavinningar í
ferðaþrennu Ungmennafélagsins í
Hveragerði gengið út. Hinir heppnu
eru Tryggvi Óttarsson á HeUissandi
og Hildur Guðmundsdóttir í Reykja-
vík. Unnu þau hvort um sig ferða-
vinning fyrir einn til Bangkok. Enn
eru níu vinningar eftir óútdregnir í
ferðaþrennunni.
Tryggvi Óttarsson, 23ja ára gamall
háskólanemi, sagðist reikna með að
fara til Bangkok næsta smnar. Hann
keypti sér fjóra miða og vann ferðina
á einn þeirra. Tryggvi hefur ekki
áður keypt sér miða í ferðaþrenn-
unni. „Ég er að leita mér af hugguleg-
um fórunaut, þú mátt koma því á
framfæri," sagði Tryggvi Óttarsson.
Hildur Guðmundsdóttir, 27 ára
teiknikennari, sagðist ekki vera búin
að ákveða hvenær hún færi. Hún
sagðist hafa keypt þijá miða og var
það í fyrsta sinn sem hún spilaði í
þessu happdrætti. -sme
Happa-
þrenna á
Hellissandi
Happaþrenna Happdrættis Háskól-
ans hefur selst vel á Hellissandi sem
og annars staðar á landinu. Óvíst er
að vinningshlutfallið sé nokkurs
staöar hærra en á Hellissandi. Þegar
hafa komiö þrír 500 þúsund króna
vinningar á miða keypta þar. Auk
þess hefur íbúi á HeUissandi unnið
500 þúsund krónur á miða keyptan í
Borgamesi. Lögreglumaður á Hellis-
sandi, sem býr reyndar í Ólafsvík,
hefur einnig fengið þann stóra.
Það hafa því fimm hæstu vinningar
í happaþrennunni farið til Hellis-
sands. Um helgina vann síðan íbúi
þar ævintýraferð til Bangkok í vinn-
ing í ferðaþrennu.
Hjá söluaðila happaþrennunnar á
Hellissandi fengust þær upplýsingar
aö auk þessara stóru vinninga hefðu
unnist þar nokkrir tíu og flmmtíu
þúsund króna vinningar. Sala á
happaþrennumiðum er góð á Hellis-
sandi og seljast miöamir upp fljótt
eftir að sendingar berast þangaö.
-sme
Háspennulína tll Vestmannaeyja
Veikið ekki boðið út
Fljótlega eftir áramótin verður
hafist handa við að leggja háspenn-
ulínu frá Hvolsvelli og niður á
Landeyjasand. Síðan á að leggja
þaðan rafstreng tilVestmannaeyja
en þar á að taka upp rafhitun þegar
hraunhitaveitan hefur lifað sitt
skeið.
Rafmagnsveitur ríkisins ætla
sjálfar að annast lagningu há-
spennulínunnar. Hefur það valdið
óánægju á Suðurlandi að verkið
skuh ekki boðið út. Sigurðm- Sig-
mundsson, línumaður á Hvolsvelh,
sagði í samtali við DV að margir
Sunnlendingar teldu fráleitt aö
bjóða verkið ekki út enda sýndi
reynslan að verkkostnaðm: væri
ævinlega meiri þegar Rafmagns-
veitan annaðist sjálf um fram-
kvæmdir. Þá sagði Sigurður að
menn væm hissa á því að heflast
handa nú í stað þess að bíða vors
og að jörð þomaði enda yrði að fara
yfir gróið land.
Kristján Jónsson, forstjóri Raf-
magnsveita ríkisins, sagði að
framkvæmdir hefðu dregist saman
hjá Rafmagnsveitum ríkisins og
því hefði verið ákveðið að láta
vinnuflokk Rafmagnsveitunnar
annast lagningu háspennulínunn-
ar.
Ástæðuna fyrir því að hafist er
handa nú sagði Kristján vera þá
að þetta væri dauður tími og þvi
væri upplagt að hefjast handa upp
úr áramótunum þegar frost væri
komið í jörðu.
-S.dór
landsmönnum öllum
hugheilar
nýárskveðjur.
Pökkum viðskiptin
á árinu.
Lapdsbanki
íslands
Banki allra landsmanna