Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
13
Neytendur
Jólamaturinn í Frakklandi:
Glóðar-
steiktur
kalkúnn
með kastaníuhnetum
Erlendis gera menn sér dagamun
í mat um jólin engu síöur en á ís-
landi. Bjarni Hinriksson, fréttarit-
ari DV í Bordeaux, sendi okkur
uppskrift að dæmigerðri franskri
jólamáltíð, sem er ostrur, gæsalif-
ur, aðalrétturinn glóðarsteiktur
kalkúnn og jóladrumburinn í eftir-
rétt.
Gæsalifrin yfirleitt dýr matur
Bjarna segist svo frá:
í forrétt eru ostrur. Út á þær er
kreistur sítrónusafi. Með þeim er
borðað gróft smábrauð með smjöri.
Ostrurnar kosta 24 franka kilóið,
samsvarar 156 kr. íslenskum.
Margir borða gaesalifur í forrétt.
Hér áður fyrr voru það einkum
hinir ríku sem það gerðu því að
gæsalifur er dýr matur. Geta 200
til 300 grömm kostað allt að 130
franka eða 845 kr. íslenskar, verðið
getur verið dálítið misjafnt.
Aðalrétturinn er grillaður kal-
kúnn fylltur með kastaníuhnetum.
Fyrir sex til átta manns þarf eftir-
farandi:
3 kg af kalkún, kostar um 30
franka kg eða um 195 kr. ísl.
Fylling:
kalkúnslifur
100 g af kálfakjöti (55 frankar
kg eða um 350 kr. ísl.)
100 g af svínakjöti (60 frankar
kg eða um 390 kr. ísl.)
100 g af beikoni (mjög ódýrt)
750 g af kastaníuhnetum (14
frankar kg eða um 91 kr. ísl.)
%1 af soði
Einn lítill laukur
Hinn dæmigerði franski eftirrétt-
ur er það sem Frakkar kalla jóla-
drumbinn í lauslegri þýðingu. Er
það kaka úr kastaníuhnetum,
smjöri og sykri. Kakan er aflöng
og skreytt meö súkkulaðikremi og
jólalegu skrauti en lítur tilsýndar
út eins og trédrumbur eða eldivið-
arkubbur.
Kalkúnn er jólamatur viðar en í Frakklandi. A mörgum islenskum heimilum er nú boðið upp á þennan dáind
ismat um jól eða áramótin.
sij-:
Fjölmargar tegundir fást af hrökkbrauði í verslunum,
vv.| > j |
.A ‘ j Íí
: • Miy •: •
Meðalverð;
Hrökkbrauð
Míög gott úrval er af hrökkbrauði
í verslunum á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu. í verðkönnun Verðlags-
stofnunar, sem fram fór í október,
kom fram að mesti mismunur á verði
á hrökkbrauði var 13%, á Wasa Sport
í 200 gr pakkningu. Lægsta verð var
63,70 en það hæsta 72 kr.
Reynið að leggja meðalverðið á
minnið og kaupið ekki ef ykkur er
boðin sama vara á mun hærra verði.
Sjá meðfylgjandi töflu. -A.Bj.
Hrökkbrauð Jaus leinsamen 200 g Meðal- verð 64.79 Lægsta verð 61.80 Hæsta Mismunur verð í % 69.00 11,7%
Hrökkbrauð Jaus extra zart 200 g 64.55 61.80 68.00 10,0%
Hrökkbrauö Korni eksport 300 g 63.51 60.50 67.00 10,7%
Hrökkbrauö Korni frokostbröd 275 g 62.36 59.00 66.00 11,9%
Hrökkbrauö Wasa sport 200 g 66.60 63.70 72.00 13,0%
Viltu gera góð kaup?
Úrval Ijósa, heimilistækja, verkfæra, bílarafmagnsvöru,
jólaseríur, úti og inni, jóla- stjörnur og englar. Lítið á
úrvalið. Verið velkominn.
Haukur og Olafur hf.
Armúla 32 - sími 37700