Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
55
Meiming
Bærilegur Beckett
Samuel Beckett:
Lelkrit, sögur, Ijóö.
Svart á hvftu, 1987.
Þaö ber við, stöku sinnum, eink-
anlega um þetta leyti árs, aö hingað
inn í músarholu vors lands slæðast
verk svonefndra öndvegishöfunda
erlendra, þótt þeir vinni sjaldnast
neina fræga sigra í markaðsstríöi
jólamánaðarins. Nú um þessi jól
halda innreið sína hingað tveir
svipmestu höfundar þessarar ald-
ar, Brecht og Beckett, báðir í útgáfu
sem teljast má nokkuð nýstárleg
hér á landi og Engilsaxar mundu
auðkenna með orðunum „the
portable", og við viljum þýða á ís-
lensku meö orðunum „hinn bæri-
legi“, hvað sem hver segir. Hér er
semsagt um útgáfu að ræða, sem
hefur að geyma úrval eða sýnis-
hom af því besta sem téður
höfundur hefur saman sett, þannig
að lesendur geti fengið a.m.k. nasa-
sjón af, ef ekki yfirsýn yfir verk
höfundarins án þess að hafa pælt í
gegnum hans „samlede værker".
Leikrit, sögur, Ijóð
Það má segja að í þessari bæri-
legu Becketts-bók sé þyngra pundið
en í hinu létta ljóðakveri Brechts,
enda er hér kynnt framlag Beckétts
til þriggja megingreina skáldskap-
ar sem hann hefur lagt gjörva hönd
á, leikrit, sögu, ljóðs. Þetta gerir
útgefanda auðvitað erfiðara um vik
að veþa svo öllum hki, og vera má
að listagyöjurnar þrjár, Þalía, Kleó
og Melpómena, fari í hár saman
út af valinu, og þykist afskiptar
hver fyrir hönd sinnar greinar. Við
viljum þó leiða allan meting hjá
okkur hér, þótt það leyni sér ekki
að hlutur Þalíu eða leikritagerðar-
innar sé fyrirferðarmestur og það
einkum á kostnað hinnar epísku
Ustar Becketts, sem er öllu ókunn-
ari hér á landi en leikritin. Auk
þess má benda á að leikritalestur
gerir meiri kröfur til lesenda en
sögulestm-, ekki síst þegar þau eru
skrifuð svo mjög fyrir augað og
eyraö sem leikrit Becketts, og það
er t.d. ekki víst að allir geti gætt
leikritið „Alhr þeir er við falU er
búið“ því lífi í huganum sem það
hlaut í útvarpsflutningi þeirra
feðgina, Guðrúnar og Þorsteins Ö.
Stephensen.
Getuleysi og bið
Nú mætti hinsvegar spyrja hvort
Beckett sé ekki nokkuð seint á ferð-
inni upp hingað, um þrem eða
fjórum áratugum eftir að hann og
hans líkar, sem kenndir voru við
„absurdisma" gerðu sem mestan
skurk úti í Evrópu eftirstríösár-
anna. Hitta þau lengur í mark þau
meginstef Becketts sem tíunduð
eru í formála, getuleysi mann-
skepnunar og hið hennar eftir
einhveiju sem aldrei kemur, nú
þegar „nýjasta tækni og vísindi"
viröast með hveijum deginum færa
okkur lengra í átt til fullkomnara
og síendurbættara mannlífs, og við
þurfum því ekki, eins og Belaqua
garmurinn á HreinsunarfjalU
Dantes aö bíöa þess að Paradís
komi, heldur virðumst á góðri leiö
með að búa sjálf til okkar eigin
neysluparadís? Er þá Beckett
nokkuð annaö en draugur upp-
vakinn frá tímum kalda stríösins,
sem að sögn fjölmiðla er nýbúið að
binda enda á með einu pennastriki
og þaulæfðu brosi á skjám heims-
byggðarinnar, bölsýni hans og
tómhyggja þá nokkuð annað en
fretur í fínu samkvæmi?
Af manneskjuvesalingum
Svona mætti auðvitað lengi
spyija, en það hvað verk þessa
skrattakoUar Becketts eru enn
áleitin gæti bent til þess að í mann-
lífinu ríki þrátt fyrir aUt eins konar
status quo ante. Getuleysi mann-
skepnunnar - ef til vfil væri nær
að nota orðin vanmáttur eða van-
geta - nú um þessar mundir felst
ekki síst í því, að hún er fjær því
en nokkru sinni fyrr að fá neinn
botn í tílveru sína í heiminum og
Bókmermtir
Kristján Árnason
geta gefið lífi sínu merkingu og þar
með einhverja stefnu. Því er það,
að hinar nöturlegu myndir Beck-
etts af manneskjuvesalingum,
ýmist sjónlausum, heymarlausum
eða mállausum, hálfniðurgröfnum
í sandi eða með hausinn upp úr
öskutunnum, á flótta undan sjálf-
um sér með endalausu málæði,
hafa þrátt fyrir allt yfir sér þá ann-
arlegu fegurð sem er kennimerki
sannleikans, en glansmyndin fer á
mis við. Auðvitað er engum láandi
þótt hann sakni í verkum Becketts
þeirra sviptinga og sveiflna, sem
eiga sér svo oft stað í mannlegum
samskiptum, og menn vfija einnig
hafa í rituöu máh. En þótt Beckett
leiki ekki á marga strengi, er sá
tónn sem hann seiðir fram með
orðlist sinni býsna magnaður og
nær til okkar gegnum allt glamrið
í kringum okkur og fæhr kannski
frá okkur doðasvefn vanans drykk-
langa stund. List Becketts er í eðh
sínu ljóðræn, og það er ekki síst
vegna ljóðanna aftast í bókinni sem
við seilumst til hennar aftur og aft-
ur, þegar fram hða stundir.
Ami Ibsen á þökk og heiður skil-
inn fyrir framtak sitt, fróðlegan
formála og vandaða þýðingu, og
Svart á hvítu fyrir útgáfu bókar-
innar, sem vonandi verður ekki sú
síðasta sinnar tegundar. KÁ
Samuel Beckett.
4ÓLADAQSKRÁ
UTVARFSiríS
RÁS 1
Aðfangadagur jóla kl. 15.40
Síðasti draumur
eikitrésins gamla
Jólaævintýri eftir H.C. Ander-
sen. Steingrímur Thorsteinsson
þýddi. María Sigurðardóttir les.
Aðfangadagur jóla kl. 19.10
Jólatónleikar Útvarpsins
Sinfóníuhljómsveit íslands leikur;
Páll P. Pálsson stjórnar. Einleikarar:
Þorkell Jóelsson, Lárus Sveinsson,
Ásgeir Steingrímsson, Sigurður I.
Snorrason og Örn Magnússon.
a. Konsert í C-dúr fyrir tvo trompeta
eftir Antonio Vlvaldi
b. Klarinettukonsert nr. 4 /' D-dúr eftlr
Johann Melchior Molter.
c. Konsertfnó nr. 2 í Es-dúr fyrir horn
og hljómsvelt eftirAntonlo Rosettl.
d. Píanókonserf í D-dúr eftir Franz
Joseph Haydn.
Aðfangadagur jóla kl. 20.00
Jólavaka Útvarpsins
a. Jólasöngvar og kveðjur frá
ýmsum löndum.
Kynnir: Hanna G. Sigurðardóttir.
b. Friðarjól (hefst kl. 20.55). Biskup
íslands, herra Pétur Sigurgeirsson,
flytur ávarp og jólaljós kveikt.
c. „Ó, jesúbarn, þú kemur nú í
nótt" (hefst kl. 21.00). Jól í íslenskum
skáldskap tutfugustu aldar.
Flytjendur: Nína Björn Árnadóftir og
Kristján Franklín Magnús.
Aðfangadagur jóla kl. 22.20
Jólaþátturinn úr
oratoríunni Messíasi
eftir Georg Friedrich Hándel.
Flytjendur: Margaret Marshall
sópran, Catherine Robbin messó-
sópran, Charles Brett kontratenór,
Anthony Rolfe Johnson tenór, Saul
Quirke drengjasópran, Monteverdi-
kórinn og Ensku barokkeinleikar-
arnir; John Eliot Gardiner stjórnar.
RÁS 2
Aðfangadagur jóla kl. 18.00
„Kom blíða tíð"
íslenskir kórar og einsöngvarar
syngja jólasálma.
Aðfangadagur jóla kl. 21.00
Við tvö og jólin
Guðrún Birgisdótfir talar m.a. við
tvenn ung hjón um jólahald í
föðurhúsum og fyrsta aðfangadags-
kvöld nýrrar fjölskyldu.
RÁS 1
Jóladagur ki 13.30
Maríukirkjan í París
Dagskrá um sögu kirkjunnar.
Lesið úr skáldverkum sem henni
tengjast og leikln tónlist.
Sigurður Pálsson tekur saman.
Jóladagur kl. 14.30
„Ljómar jata lausnarans"
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur
aðventusálma, mótettur og messu-
þœtti frá 16. og 17. öld eftir m.a.
Palestrina, Lasso, Sweelinck Hassler,
Praetorius og Schútz.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Kynnir: Guðný Ragnarsdóttir.
(Hljóðritun Ríkisútvarpsins).
Jóladagur kl. 16.20
Við jólatréð
Sungin barna- og göngulög við
jólatréð. Helga Gunnarsdóttir
stjórnar. Kór Melaskólans í Reykjavík
og Karl Möller og félagar leika með.
Jólasveinar og skrýtið fólk fer með
gamanmál. Séra Ámi Bergur
Sigurbjörnsson ávarpar börnin.
Vilborg Dagbjartsdóttir talar um
bernskujól sín og segir jólasögu.
Umsjón: Gunnvör Braga.
Kynnir: Elísabet Brekkan.
Jóladagur kl. 20.30
Af fornum kirkjustöðum
við Arnarfjörð
Finnbogi Hermannsson sœkir heim
Álftamýri og Hrafnseyri við leiðsögn
Kjartans Ölafssonar. Fyrri þátfur.
RÁS 2
Jóladagur kl. 15.00
„Vesalingarnir"
Sigurður Skúlason kynnir söngleikinn
.Vesalingana' sem gerður er eftir
skáldsögu Victors Hugo, ,Les
Miseraþles'. Fyrrl þáttur.
Síðari þátturinn er á dagskrá nk
laugardag kl. 15.00.
RÁS 1
Annar í jólum kl. 9.40
Barnaleikrit: „í leit að
jólum" eftir Hugrúnu
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Annar í jólum kl. 10.25
Jól í koti
Ásdís Skúladóttir tekur saman
dagskrá um minningar og túlkun
fjögurra íslenskra skálda á Jólahald-
inu. Lesari ásamt henni: Sigurður
Karlsson.
Annar í jólum kl. 14.50
JólatónleikaiuKammer-
sveitar Reykjavíkur í
Áskirkju 20. þ.m.
Einleikarar: Lárus Sveinsson, Ásgeir
Steingrímsson, Rúnar H. Vilbergsson,
Laufey Sigurðardóttir og Arnaidur
Arnarsson.
Leikln verða verk eftir Antonio
Vivaldi, Giuseppe Tartlnl, Mauro
Giuliani og Francesco Manfredini.
Kynnir: Hanna G. Sigurðardóttir.
Annar í jólum kl. 20.30
„Skín í rauðar
skotthúfur"
Jólaþáttur í umsjá Arndísar
Þonvaldsdóttur og Ingu Rósu
Þórðardóttur.
(Frá Egilsstöðum).
RÁS 2
Annar í jólum kl. 17.00
Góðvinafundur
- þáttur Jónasar Jónassonar.
Meðal gesta eru dr. Sigurþjörn
Einarsson biskup, Þorgerður Ingólfs-
dóttir, Hamrahlíðarkórínn, Þorkell
Sigurbjörnsson og ungir listamenn
sem syngja og leika jólagjafir sínar
til hlustenda. (Einnig útvarpað nk
mánudagskvöld kl. 22.07).
GLEÐILEG JÓL
riitf
RÍKISÚTVARPIÐ
ÚTVARP
ALLRA
IANDS-
MANNA
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★