Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Blaðsíða 48
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
72
Afmæli
Hermann Árnason og
Sigurlaug Friðriksdottir
Hermann Árnason og Sigurlaug
Friöriksdóttir, Drekavogi 20,
Reykjavík, eiga demantsbrúökaup,
eöa sextíu ára brúðkaupsafmæli, á
jóladag.
Hermann og Sigurlaug eru frá
Látrum í Aðalvík í Norður-ísa-
fjarðarsýslu. Þau hófu búskap í
Urðunum á Látrum 1925 og fluttu
þaðan í Miðvík og að Sæbóli. Her-
mann og Sigurlaug íluttu þaðan að
Látrum og bjuggu þar til 1948 er
þau fluttu til Hnífsdals þar sem
Hermann vann í fiski, aöallega sem
landmaður á bát. Þau bjuggu í
Hnífsdal til 1965 en fluttu þá til
Reykjavíkur og þar vann Hermann
í Gufunesi til 1975.
Hermann og Sigurlaug eignuðust
tólf börn. Þau eru: Ámi, f. 28. júlí
1929, verslunarmaður í Þoriáks-
höfn, giftur Önnu Ólafsdóttur úr
Öxnadal, þau eiga átta börn og tutt-
ugu barnabörn; Friðrik Svavar, f.
5. ágúst 1931, lögregluvarðstjóri í
Rvík, kvæntur Jóhönnu Guð-
mundsdóttur frá Króki í Grafningi,
þau eiga þrjú börn og fjögur barna-
börn; Þórunn Herborg, f. 29. sept-
ember 1933, gift Davíð Guðbergs-
syni, forstjóra í Rvík, frá Höfða í
Dýrafirði, þau áttu fimm börn en
-misstu einn son og eiga tvö barna-
börn; Þorgerður Kristín, f. 3. apríl
1934, gift Gunnari Valdimarssyni,
fv. b. og verkamanni á ísafirði, frá
Vatnsíjarðarseli, þau eiga fimm
börn ‘og fimm barnaböm; Gunnar
Jóhannes, f. 2. október 1935, gæslu-
maður hjá Skógræktinni, kvæntur
Huldu Þorgrimsdóttur frá Akur-
eyri, þau eiga tvær dætur og fjögur
barnaböm. Gunnar á með Sonju
Guðlaugsdóttur úr Ólafsvík einn
son ög tvö sonarbörn; Jónína
Margrét, f. 21. janúar 1937, gift Jak-
obi Sigurðssyni, farmanni í Njarð-
vik, frá Bæjarklettum í Skagafirði,
þau eiga sex börn og ellefu barna-
börn; Guðný Eygló, f. 26. júní 1941,
gift Halldóri Geirmundssyni, leigu-
bílstjóra á ísafirði, frá Aðalvík, þau
eiga sex börn og fimm barnabörn;
Óli Theódór, f. 24. júní 1943, mat-
sveinn í Mosfellsbæ, giftur Guöríði
Hannibalsdóttur, frá Hanhóli í Bol-
ungarvík, þau eiga þrjú börn; Ingi
Karl, f. 17. september 1944, fiski-
matsmaður i Bolungárvík, fóstur-
sonur Maríu Guömundsdóttur og
Ingvars Benediktssonar frá Aðal-
vík, kvæntur Ragnheiði Jónsdóttur
frá Bala í Þykkvabæ, þau eiga tvö
börn; Bárður Gísli, f. 13. október
1946, forstjóri í Rvík, kvæntur
Margréti Lóu Guðjónsdóttur, frá
Stafnesi i Miðneshreppi, þau eiga
sex börn; Ingibjörg Steinunn, f. 19.
júlí 1948, verkakona, giftist Tómasi
Grímssyni úr Hafnarfirði, þau
eignuðust þrjú börn. Seinni maður
Ingibjargar var Jón Elías Jónsson,
frá Munaðarnesi í Ingólfsfirði, þau
eignuðust þrjár dætur en skildu;
Heiðar, f. 19. febrúar 1951, verk-
stjóri í Bolungarvík, kvæntur
Herdísi Gísladóttur frá Bolungar-
vík, þau eiga þrjú börn. Alls eiga
Hermann og Sigurlaug tólf börn,
fimmtíu og sex barnabörn og fimm-
tíu og þrjú barnabarnabörn,
samtals hundrað tuttugu og einn
afkomanda.
Hermann er fæddur 21. nóvemb-
er 1905 á Leiru í Grunnavík.
Foreldrar hans voru Árni Gíslason,
b. á Leiru í Grunnavík, og kona
hans, Guðrún Jóhannesdóttir.
Ámi var sonur Gísla Árnasonar,
sem var ættaður úr Breiðafirði, og
konu hans, Bárðlínar Þóröardótt-
ur, ættaðri úr Kaldalóni við Djúp
og Skjaldfannardal.
Sigurlaug er fædd 14. ágúst 1909
í Miðvík, og átti hún sextán syst-
kini, tólf þeirra komust til fullorð-
insára auk Sigurlaugar og eru átta
systkina hennar á lífi. Býr eitt
þeirra á ísafirði, eitt í Reykjavík
ásamt Sigurlaugu og sex í Keflavík.
Foreldrar hennar voru Friörik
Finnbogason, b. á Látrum, og kona
hans, Þórunn María Þorbergsdótt-
ir. Foreldrar Friðriks voru Finn-
bogi, b. á Látrum, Árnason og
Herborg Kjartansdóttir. Foreldrar
Þórunnar voru Þorbergur Jónsson,
b. í Miðvík, og kona hans, Margrét
Þorsteinsdóttir.
Gunnar Helgason
Gunnar Helgason, Nökkvavogi
38, Reykjavík, verður sextugur á
þriðja dag jóla. Gunnar fæddist í
Borgarholti í Stokkseyrarhreppi og
var þar til fimm ára aldurs, en fór
þá í fóstur til vandalausra og var
þar í góðu yfirlæti hjá hjónunum
Guðmundi Eiríkssyni og Þóm
Jónsdóttur sem gengu honum í for-
eldra stað, en þau bjuggu á Breið-
mýrarholti og síðar í Keldnakoti.
Gunnar fór að heiman Sextán
ára, fór þá til sjós og stundaði sjó-
mennsku næstu fimmtán til tutt-
ugu árin sem háseti eða matsveinn.
Hann stofnsetti síðan eigið verk-
takafyrirtæki 1964, Framtak hf., en
fyrirtækið sá um línulagnir, og
hefur Gunnar starfrækt það fram
á síðasta ár.
Kona Gunnars er Katrín Magn-
úsdóttir frá Kirkjubóli í Staðardal
í Steingrímsfirði, f. 30.6. 1932, en
hún hefur um árabil starfað með
manni sínum við línulagnimar
víða um landið sem matráðskona.
Gunnar átti fimm systkini og era
nú fjögur þeirra á lífi.
Foreldrar Gunnars: Helgi Guð-
mundsson, b. í Borgarholti, en
hann er látinn, og Steinvör Jóns-
dóttir.
Gunnar og Katrín munu taka á
móti gestum sunnudaginn 27.12. aö
Háaleitisbraut 68, þriðju hæð, eftir
klukkan 19.
DV
Elísabet Þóra Arndal
111 hamingju
með daginn!
80 ára_____________________
Ragnar Ágústsson, Þiljuvöllum 9,
Neskaupstað, er áttræður í dag.
70 ára_________________________.
Loftur Þorkelsson, Melgerði 15,
Kópavogi, er sjötugur í dag.
Valgerður Jónsdóttir, Breiöagerði 21,
Reykjavík, er sjötug í dag. Hún verð-
ur ekki heima á afmælisdaginn en
tekur á móti gestum sunnudaginn
27.12. frá klukkan 15-18.00 að Borg-
artúni 35 (húsi SVR).
Birna Hernitsdóttir, Garðarsbraut
75, Húsavík, er sjötug í dag.
Fjóla Óskarsdóttir, Suðurbraut 6,
Hafnarfirði, er sjötug í dag.
60 ára_______________________
Þorgeir Magnússon, Túngötu 17A,
Húsavík, er sextugur í dag.
Dagbjört Baldvinsdóttir, Stórholti 5,
Akureyri, er sextug í dag.
50 ára
Elisabet Þóra Arndal, Hring-
braut 78, Reykjavík, verður sjötug
annan í jólum. Elísabet er fædd í
Hafnarfirði en íluttist til Reykja-
víkur 1921 og ólst upp í Reykjavík.
Hún vann á Vinnumiðlunarskrif-
stofu Reykjavíkur 1934-1937 og á
barnadeild Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur 1955-1976. Elísabet
var í stjóm Foreldrafélags Mela-
skólans, var í stjóm Kvenréttinda-
félags íslands og hefur verið ritari
Ættfræðifélagsins frá 1983. Maður
Elísabetar er Ottó Jónasson,
brunavörður í Reykjavík, og eiga
þau þrjár dætur. Foreldrar Elísa-
betar: Kristínus Arndal, f. 12.
október 1897, d. 1. apríl 1973, for-
stjóri Vinnumiðlunarskrifstofu
Reykjavíkur, og fyrsta kona hans,
Níelsína Ásbjömsdóttir, f. 30. jan-
úar 1899, d. 27. nóvember 1983.
Faðir Kristínusar var Finnbogi
Arndal, kennari og skáld, síðast í
Hafnarfirði, Jónsson, b. í Stóra-
Klofa á Landi, Jónssonar, b. í Mörk
á Landi, Finnbogasonar, b. á Reyni-
felli á Ra.ngárvöllum, Þorgilssonar.
Móðir Finnboga var Sigríður Ei-
ríksdóttir, þurrabúðarmanns í
Stöðlakoti á Stokkseyri, Höskulds-
sonar. Móðir Kristínusar var
Jónína Árnadóttir, sjómanns á
Auðnum á Vatnsleysuströnd,
Jónssonar, Faöir Níelsínu var Ás-
bjöm, b. í Melbæ á Akranesi,
Sigurðsson, b. á Sýruparti, Sigurðs-
sonar, b. á Heynesi, Erlendssonar,
b. í Melshúsum, Narfasonar. Móðir
Ásbjörns var Guðrún Ásbjörns-
dóttir, b. í Melshúsum, Erlendsson-
ar, forfóður Melshúsaættarinnar,
bróðir Sigurðar á Heynesi. Móðir
Níelsínu var Sigríður Helgadóttir,
sjómanns á Akranesi, Sigurðsson-
ar. Móðir Sigríðar var Guðrún
Pálsdóttir, b. í Leirárgörðum, Páls-
sonar. Móðir Guðrúnar var Sigríð-
ur Jónsdóttir, bókbindara í
Leirárgörðum, Jóhannessonar.
Elísabet tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar á Kleppsvegi
42.
Sverrir B. Guðnason, Miðtúni 3,
Hafnarhreppi, er fimmtugur i dag.
Valdimar Ingi Guðmundsson,
Skarðsbraut 17, Akranesi, er fimm-
tugur í dag.
María Eiriksdóttir, Miðvangi 6,
Hafnarfirði, er fimmtug í dag.
Hallgrímur Skaptason, Reynivöllum
8, Akureyri, er fimmtugur í dag.
40 ára___________________________
Guðríður V. Kristjánsdóttir, Lauf-
skógum 9, Hveragerði, er fertug í dag.
Halldór Einarsson, Langagerði 2,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Jóhann Geirsson, Nesbala 23, Sel-
tjarnarnesi, er fertugur í dag.
Magnús Steinar Sigmarsson, Borgar-
gerði 6, Stöðvarhreppi, er fertugur í
dag.
Auður Kjartansdóttir, Orrahólum 3,
Reykjavík, er fertug í dag.
Hl hamingju með
morgundaginn!
80 ára_____________________
Ragnheiður Guðmundsdóttir, Laug-
arnesvegi 40, Reykjavík, verður
áttræð á aðíangadag.
75 ára_____________________
Sólveig B. Sövik, Árbraut 9, Blöndu-
ósi, veröur sjötíu og fimm ára á
aðfangadag.
Sigríður Svavarsdöttir
Sigríður Svavarsdóttir, Akur-
gerði 12, Akranesi, er fimmtug á
jóladag. Sigríður er fædd í Bifröst
á Sauðárkróki og ólst þar upp. Hún
fór til Akraness sextán ára að
vinna í fiski og hefur átt þar heima.
Sigríöur hefur unnið við ýmis störf
en síðastliöin tuttugu og tvö ár hef-
ur hún unnið við ræstingu á
Skattstofu Vesturlandsumdæmis.
Maður Sigríðar er Birgir Þóröar-
son, f. 18. desember 1932, fulltrúi á
Akranesi. Þeirra dóttir er Jónína,
f. 9. september 1957. Systkini Sig-
ríðar eru Eymundur Stefán, f. 23.
febrúar 1927, d. 3. júní 1927, Ög-
mundur Eyþór, f. 30. mars 1928,
kvæntur Maríu Pétursdóttur, Ás-
dís, f. 24. febrúar 1931, gift Gunn-
laugi Sigiurgeirssyni, Guðrún Ólöf,
f. 14.júní 1932, giftÞorsteini Vigfús-
syni, Kristín Björg, f. 1. júlí 1933,
gift Hjalta Guðmundssyni, og
Sverrir Sigurðsson, f. 24. nóvember
1934, kvæntur Ester Magnúsdóttur
Foreldrar Sigríðar voru Svavar
Guðmundsson, f. 5. desember 1905,
skrifstofumaður á Sauðárkróki, og
kona hans, Sigurbjörg Ögmunds-
dóttir, f. 23. október 1907. Faðir
Svavars var Guðmundur Guð-
mundsson. Móðir Svavars var
Anna María, systir Eyþórs tón-
skálds á Sauðárkróki. Ánna var
dóttir Stefáns, b. á Ingveldarstöð-
um á Reykjaströnd, Sigurðssonar,
b. í Selhaga, Finnbogasonar. Móðir
Önnu Maríu var Guðrún Jónas-
dóttir, b. á Kimbastöðum, Bjarna-
sonar, Borgar-Bjarna, Jónssonar.
Faðir Sigurborgar var Ögmund-
ur, söðlasmiður á Sauðárkróki,
Magnússon, b. og formaður á
Brandaskarði á Skagaströnd, Ög-
mundssonar. Móðir Ögmundar var
Sigurbjörg Andrésdóttir, b. á
Syðri-Bægisá í Öxnadal, Tómas-
sonar. Móðir Sigurbjargar var
Ingibjörg Þórðardóttir, b. á Kjarna
í Eyjafirði, Pálssonar, forfoður
Kjarnaættarinnar. Móðir Önnu var
Kristín Björg Pálsdóttir, b. í Gröf í *
Víðidal, Steinssonar. Móðir Páls
var Þorbjörg Árnadóttir, b. á Hörg-
hóli, Björnssonar. Móðir Þorbjarg-
ar var Sigríður Friðriksdóttir,
prests á Breiöabólstað í Vestur-
hópi, Þórarinssonar, sýslumanns á
Grund í Eyjafirði, Jónssonar, for-
fóður Thorarensenættarinnar.
Einar Gíslason
70 ára_________________________
Ingiríður Nikulásdóttir, Jökulgrunni
2C, Reykjavík, verður sjötug á að-
fangadag.
Þorsteinn Stefánsson, Akurgerði 9B,
Akureyri, verður sjötugur á aðfanga-
dag.
60 ára
Ragnheiður Hermannsdóttir, Bar-
ónsstíg 57, Reykjavík, verður sextug
á aðfangadag.
Hálfdán Þorgrímsson, Hrauntúni,
Presthólahreppi, verður sextugur á
aðfangadag.
50 ára
Gunnhildur Björgólfsdóttir, Háa-
lundi 6, Akureyri, verður fimmtug á
aðfangadag.
Einar Gíslason, Flókagötu 6,
Reykjavík, verður fimmtugur á
morgun. Einar kennir í Myllu-
bakkaskóla í Keflavík en hann og
konan hans, Beverly, stofnuðu og
ráku barnaheimili í Ríkaröshúsi á
Hjalteyri frá 1972-80.
Einar og konu hans langar til að
endurnýja kynnin við það unga
fólk sem þau önnuðust á þessum
árum og bjóða því hér með, ásamt
vinum og ættingjum, í opið hús að
heimili sínu að Flókagötu 6,
Reykjavik laugardaginn 26. des-
ember eftir klukkan 16.