Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Side 40
3 LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1988. Einn kunnasti stjórnmálamaöur Dana, Anker Jörgensen, kom í stutta heimsókn hingað til landsins í vikunni til aö halda fyrirlestur á þingi norrænna bankamanna á Hótel Sögu. Hann flaug aftur utan í gærmorgun, en blaðamaður DV náði að spjalla við hann smástund milli ráðstefnuloka og kvöldverðar. Anker var um árabil forsætisráð- herra Dana og í fylkingarbrjósti danskra jafnaðarmanna. Sem slík- ur stýrði hann þeim gegnum marg- ar umdeildar ákvarðanir, bæði á sviði innanríkismála, en danska velferðarkerfið er heimsfrægt þrátt fyrir ýmsar gloppur, og eins á sviði utanríkismála þar sem inngangan í Efnahagsbandalagið kom miklu róti á hugi hínna oftast svo rólegu Dana. Það var deilt um málið af hita á þjóðernislegum forsendum og andrúmsloftið ekki ósvipað því sem var á íslandi þegar átökin um Nato og varnarliðið stóðu sem hæst. Ákvörðunin um inngöngu Dana í EB var endanlega tekin í þjóðaratkvæðagreiðslu 1. janúar 1973 þar sem tveir þriðju hlutar dönsku þjóðarinnar reyndust fylgj- andi henni. Að baki flestra mála liggja efnahagslegar staðreyndir „Þetta voru einkennilegar dag- ar,“ segir Anker og hristir sig, næstum eins og um hann fari hroll- ur (nema mér hafi missýnst - hann studdi inngöngu í EB), „en nú eru 90% Dapa fylgjandi aðild. Þar með er ekki sagt að allir séu yflr sig ánægðir með EB en við erum í bandalaginu og þvi verður varla breytt.“ „Hefurðu trú á því að við íslend- ingar getum haldið áfram að standa utan dyra? Anker hristir höfuðið: „Undir öll- urn kringumstæðum neyðast ís- lendingar til að gera sérsamninga Anker Jörgensen: í Norðurlandaráði er keyrt í fyrsta gir, i EB yfir hámarkshraða, DV-mynd Hanna lengst en það var gott og viturlegt að skila þeim aftur.“ Svo bætir hann því við að fyrir fáum árum hafi hann átt þrjár ógleymanlegar klukkustundir á Árnastofnun við Suðurgötu þar sem hann fékk fyrir velvild handritafræðinga að skoða spennandi kafla úr þeim fomhelgu skræðum sem þar er svo vandlega gætt. Jeg kommertil Island med eller uden ol En finnst honum ekki að það verði enn þá notalegra að heim- sækja ísland eftir að bjórinn hefur verið leyfður næsta vor. Anker hristir höfuðið, segist ekki reykja og lítiö drekka: „Jeg kom- mer til Island med eller uden 0l.“ í Danmörku grípur um sig skelf- ing ef verðbólgan fer upp fyrir 3% á ári. Hvernig líst reyndum stjórn- málamanni þaöan á efnahags- ástandið hér? Finnst honum útlitiö svart? Já, því getur hann ekki neitað, en Danir eigi líka við törvelda efna- hagsörðugleika að glíma. Þannig slagi erlendar skuldir þeirra hátt upp í okkar. „Vandamálin eru mikil, bæði hjá okkur og hjá ykkur. Erlendu skuld- irnar okkar vaxa hraðar en nokkru sinni fyrr og þið sleppið við at- vinnuleysið sem viö þurfum aö kljást við.“ Hann er tregur til að tjá sig um íslensk innanríkismál. Segir þó að kvennalistinn minni sig á SF-flokk- inn (hann er vinstra megin við jafn- aðarmenn og hefur oft verið Anker óþægur ljár í þúfu) sem nú eigi ekki lengur fylgisaukningu aö fagna. Eitthvað á grænu línupni, skorti kannski betri heildarsýn og þyrfti að taka ákveðnari afstöðu í efnahagsmálum. Um það hvort mikill munur sé á íslenskum og dönskum jafnaðar- Niðurfærsla gæti bitnað harðast á þeim lægst launuðu Þeir betur settu finna alltaf leiðir fram hjá reglunum - segir danski jafnaðarmaðurinn Anker Jörgensen af einhveiju tagi við EB og þá í samfloti með norrænum grannríkj- um. Norðurlándaþjóðirnar' geta ekki unað sælar við sitt úti í horni. Þær eiga ekki annars úrkosti en hafa samvinnu við EB.“ „Eru það beinharðar efnahags- legar staðreyndir sem liggja þar að baki?“ Hinn sjóaði stjórnmálamaður baðar út höndunum eins og í undr- un yfir því hvað venjulegu fólki hættir til að gylla fyrir sér tilver- una: „Já, en þannig er því háttað í langflestum málum, ekki satt?“ Líka pappírsflóð í litla alþinginu ykkar Síðan Anker Jörgensen lét af for- ystu í jafnaðarmanna- (eða krata-) flokknum danska, þar sem Svend Auken gegnir nú formennsku, skiptir hann tíma sínum milli stjómunarstarfa í Norðurlanda- ráði og þingsetu hjá Efnahags- bandalagi Evrópu. Finnst honum þetta ekki ólíkar stofnanir? Er Norðurlandaráö nokkuð annað 'en endalaust málþóf þar sem sívax- andi skjalahaugar eru eini sýnilegi afraksturinn? Anker segir að pappírsflóðið sé alls staðar of mikið, „líka í litla al- þinginu ykkar.“ Það sé auðvitað munur á Norðurlandaráði og EB, en þessar tvær stofnanir fari þó svipaðar leiðir. (Hann sagöi: „De korer pá paralelle linier," og ég held hann hafi átt við aö í báðum ríkti þingræði). Stóri munurinn væri sá að hjá Norðurlandaráði væri ekið í fyrsta gír en hjá EB langt yfir æskilegum hámarks- hraöa. „Viö verðum að standa öflugan vörð um þær félagslegu úrbætur sem við höfum getaö kom- ið á í Danmörku. Engar ákvaröanir EB mega draga úr þeim. Á móti kemur að við viljum gjarnan taka þátt í að lyfta þeim sem búa viö verst kjör í öðmm EB-löndum. Þeg- ar til lengdar lætur getum við ekki haldiö okkar góðu lífskjörum í Danmörku nema þeir sem eru á „botninum“ annars staðar í Evr- ópu fái nokkra úrlausn sinna mála.“ Ekkert gervilandslag á íslandi Á sínum langa starfsferli hefur Anker oft áður komið til íslands, nú síðast fyrir hálfum mánuði. Þá fór hann í Veiðivötn með stöngina sína og fannst það stórkostlegt. Það sem heillar hann mest hér á landi er landslagið, náttúran. „Svo heið- arleg, engar gerviskreytingar,“ segir hann. „Engin tilbúin vötn né sérhannaðir lystigaröar, gerðir af manna höndum." Hann hefur kom- ið tvisvar til Akureyrar og heim- sótt Húsavík, Vestmannaeyjar með nýrunnu hrauni, og í góða veðrinu á miðvikudaginn var komst hann í annað sinn til Þingvalla. „Þar er ein af vöggum lýðræðisins í Evr- ópu,“ segir hann og lætur í Ijósi forvitni um hvernig elstu lögin okkar hafi eiginlega verið. En þegar ég segi aö einhver þyrfti að gefa honum Grágás í þýðingu Vilhjálms Finsen fórnar hann höndum. „Nei, nei, það máttu alls ekki setja í blaðið,“ hrópar hann, og það rifjast upp fyrir mér hvað stjórnmálamenn erlendis eru oft hræddir við ásakanir um að þeir séu að kría sér út fríðindi. Það varð allt vitlaust í Danmörku fyrir nokkrum árum þegar upp komst að hátt settur flokksmaður hans, Ritt Bjerregaard, hafði búið í vel- lystingum á einu dýrasta’ hóteli Parísar á kostnað ríkisins. Engar gjáfir. í hæsta lagi vill hann senda Gylfa Þ. Gíslasyni og konu hans kveðju, „gegnum blað- ið“. Þau eru gamlir vinir sem hon- um þykir fjarska vænt um. Hann segir að unga kynslóðin í Danmörku muni alls ekki lengur eftir því þegar íslendingar slitu sambandi við Dani, en bækur Lax- ness og íslendingasögurnar. séu mikils metnar og þyki dýrmætar hjá Dönum. „Þess vegna reyndum við að halda handritunum sem mönnum segir hann aðeins: „Það er ekki orð á gerandi en vera kann að Hannibalsson hafi svolítið önn- ur sjónarmið í varnarmálum held- ur en ég.“ Þegár hann er spurður hvernig honum lítist á niðurfærsluleiðina, segir hann aðeins: „Að einu verður aö hyggja - hættan er sú að niður- færsla bitni harðast á þeim lægst launuðu. Þeir betur settu finna allt- af leiðir fram hjá reglunum." Að lokum sígilda spurningin: „Datt þér í hug þegar þú varst sex ára að þú ættir eftir að gegna þeim miklu ábyrgðarstörfum sem raun hefur borið vitni?“ Anker hikar: „Ekki á þeim aldri, og ég veit ekki hvort ég hugsaði nokkurn tíma beinlínis þannig. En ég var mjög ungur þegar hugsjónir verklýðshreyfingarinhar lögðu undir sig hjarta mitt. Það hefur alltaf verið mín djúpa sannfæring að innan hennar ætti ég að starfa alla mína ævi. Og þaö hef ég gert!" -ihh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.