Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Qupperneq 41
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1988.
57
Nýjnng fyrir bílskúrsrokkara og aðra:
Gítamámskeið með hljóm-
sveit og stúdíóviimu
Friðiik Karlsson og Bjöm Thoroddsen með eigin rafmagnsgítarskóla
„Hugmyndin fæddist í sumar.
Það er gífurleg ásókn í rafmagns-
gítarkennslu. Tónlistarskóli FÍH
getur einungis tekið inn ákveðinn
fjölda af nemendum sem eru
kannski einn fiórði af þeim sem
sækja um,“ sagði Björn Thorodds-
en gítarleikari en hann og Friðrik
Karlsson, gítarleikari Mezzoforte,
eru að fara í gang með allnýstár-
lega og nútímalega kennslu á raf-
magnsgítar í húsnæði tónlistar-
skóla FÍH. „Það var skólastjóri tón-
listarskólans sem kom með þá hug-
mynd að við yrðum með námskeið.
Við slógum til og settum á stofn
okkar eigin skóla sem verður til
húsa á sama stað. Námskeiðin
verða með alveg nýju sniði hér á
landi en Friðrik var að koma af
slíku námskeiði í Bandaríkjunum
þar sem hann kynnti sér kennslu-
hætti,“ sagði Bjöm enn fremur.
Bara með gítarinn
Ekkert aldurstakmark verður í
skólann og eru einu skilyrðin að
nemandinn sé með eigiö hljóðfæri.
„Nemandinn verður að geta æft sig
heima,“ útskýrði Björn og bætti við
að við íslendingar værum heppnir
þar sem hljóðfæri og þá sérstaklega
rafmagnsgítarar væru mun ódýr-
ari hér á landi en erlendis. „Það
er hægt að fá ágætisrafmagnsgítar
fyrir byijendur fyrir minna en tíu
þúsund krónur," sagði hann. Nám-
skeiðin verða í þijá mánuði í senn
og lögð verður áhersla á að kenna
nemendum að leika rokk og popp.
„Við munum á okkar námskeiði
líkja eftir þeim námskeiðum sem
ganga í Bandaríkjunum. Þarna fá
strákar og stelpur tækifæri til að
spila með rythmasveit sem verður
skipuð einhveijum bestu hljóð-
færaleikurum landsins."
Meðal hljóðfæraleikara í henni
er Jóhann Ásmundsson, annar
Mezzoforte-maður. Við höldum að
þaö verði áhugaverðara fyrir nem-
endurna að þeir geti verið virkir
með alvöruhljómsveit. Við munum
. skipta í flokka eftir getu og verða
sex nemendur í hveijum hópi. Ég
veit að okkur hefði þótt gaman á
sínum tíma að fá að spila með
þungavigtarmönnunum en við
höfðum ekki um annað að velja en
klassískt gítarnám.“
Látið reyna á áhugann
Þeir félagar, sem sjálfir eru með
bestu rafmagnsgítarleikurum
landsins, eru vongóðir um að bíl-
skúrshljómsveitastrákar og aðrir
ungir áhugamenn um rafmagns-
gítarleik fái þarna tækifæri sem
ekki hefur áður þekkst hér á landi.
„Þessir strákar hafa átt um það að
velja að fara í nám í tónlistarskóla
FÍH sem er mjög mikið nám, tíu
tímar á viku. í raun er það háskóli
en í þessum námskeiðum geta þeir
komið til að spila án þess að læra
tónfræði og teóríur. Námskeiðið
verður sambland af tómstunda-
skóla og alvörunámi. Eftir þriggja
mánaða námskeið ættu nemend-
urnir að vita hvort raunverulegur
áhugi er fyrir hendi til að halda
áfram á námskeiðum, fara í lengra
tónlistamám eða snúa sér að ein-
hveiju öðru. Sá sem kæmi byijandi
inn núna á að kunna töluvert fyrir
sér eftir þijá mánuði," sagði Frið-
rik.
Gítarskóli popparanna hefur
göngu sína 5. september og ætla
þeir félagar að sitja við síma síðari
hluta dags alla næstu viku og skrá
nemendur. „Slík námskeið í
Bandaríkjunum em mjög vinsæl.
Sem dæmi má nefna að skólinn,
sem ég var á, var með hundrað og
fimmtíu nemendur fyrir þremur
árum er hann byijaði en nú eru
þeir fimmtán hundruð," sagði Frið-
rik.
Fyrir alla ’ ■
Mjög líklegt má telja aö ungir
strákar með hljómsveitardrauma
eigi eftir að notfæra sér þessi nám-
skeið en þeir Björn og Friðrik vildu
leggja á það áherslu að námskeiðin
væru ekki síður fyrir stelpur og
eldra fólk. „Við viljum t.d. gjaman
sjá gamla hippa sem einhvern tíma
hafa fiktað við gítarinn og hætt síð-
an,“ sagði Friðrik. „Við ætlum að
skipta námskeiðunum niður í rokk
1, rokk 2, rokk 3 og svo framvegis
þannig að menn geta haldiö áfram
upp eftir því sem þeir læra meira.
Síðan verðum við með jazz fyrir
þá sem vilja.“
Þeir Bjöm og Friörik kenna báðir
í tónlistarskóla FÍH en bæta við sig
námskeiðunum núna. Auk þess
rekur Friðrik eigið stúdíó ásamt
öðrum meðlimum Mezzoforte. Þar
eru unnar allmargar plötur ann-
arra hljómsveita, en Mezzoforte er
einnig að vinna að eigin plötu sem
kemur út í janúar á næsta ári.
„Hún verður allfrábrugðin fyrri
plötum hljómsveitarinnar," sagði
Friðrik en sagðist ekki á þessu stigi
geta skýrt nánar frá efni hennar.
Hljómsveitin Mezzoforte mun taka
til starfa aftur með tilkomu plöt-
unnar.
Björn Thoroddsen er einnig að
vinna að plötu, jazzplötu, með
dönskum jazzistum. Sú plata kem-
ur út eftir rúman mánuð samtímis
á íslandi og í Danmörku. Auk þess
spilar hann á jazzkvöldunum sem
haldin eru í hverri viku og hafa
sinn trygga aðdáendahóp.
Stúdíóupptaka í lokin
Þeir Björn og Friðrik hafa aldrei
spilað saman í hljómsveitum en eru
góðir vinir. Báðir eru þeir með
háskólapróf í gítarleik. Björn lauk
sínu námi i Bandaríkjunum en
Friðrik lauk námi hérlendis auk
þess sem hann hefur farið á all-
mörg námskeið erlendis. „Við ák-
váðum að nýta krafta okkar á með-
an við erum ungir og ekki enn þá
útbrunnir," sögðu þeir og hlógu.
„Rúsínan í pylsuendanum verður
síðan í lok hvers námskeiðs en þá
forum við með nemendurna í
stúdíó og tökum upp leik þeirra.
Þeir geta síðan lallað heim til
mömmu og pabba með upptökuna
og leyft þeim að heyra árangurinn.
Slíkt er algjör nýjung hér á landi.“
Þessi nýi skóli þeirra Friðriks og
Björns tekur sextíu nemendur.
Búast má við að einhver hlutiþess-
ara nemenda séu efnilegir raf-
magnsgítarleikarar. „Það má
reikna með að út úr þessum nám-
skeiðum komi nokkrir góðir at-
vinnuleikarar. Við munum vissu-
lega komast að því og gefa ráð. Enn
fremur getum við gefið krökkunum
ráöleggingar varðandi hljómsveit-
arleik," sögðu þeir félagar, bjart-
sýnir á að námskeiöin eigi eftir að
höfða til sem flestra sem áhuga
hafa á rafmagnsgítarleik.
-ELA
„Við hefðum sjálfir kosið
að geta farið á slíkt nám-
skeið þegar við vorum að
byrja en þá þurftum við að
fara í kiassiskt gitarnám,"
segja tveir af fremstu gítar-
leikurum landsins, Friðrik
Karlsson og Björn Thor-
oddsen, sem nú hafa sett
upp ailsérstök námskeið á
rafmagnsgítar i tónlistar-
skóla FÍH. Hér er brugðið á
leik með kontrabassa.
DV-mynd Kristján Ari