Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Side 47
LAUGARÐAGUR 27. ÁGÚST 1988.
63"
LífsstOI
Ferðamennirnir spilla ekki stóískri ró gömlu mannanna sem eyöa deginum
á kaffihúsi með talnabandið milli fingranna.
breiðu strandanna og myndrænna
kirkna og vindmylla.
Hér eru veitingastaðimir betri og
fjölbreyttari en annars staðar.
Tungumálakunnátta eyjaskeggja er
mun meiri og ferðir til og frá Aþenu'
mun tíðari. A Míkonos er verölagið
líka mun hærra en á nágrannaeyjun-
um og mun erfiðara að forðast ys og
þys mannlífsins.
Matur og drykkur
Vel á minnst, maturinn er fjöl-
breyttari á Míkonos. Það verður að
segjast eins og er að matur á eyjun-
um slær seint í gegn í heimsfrægum
eldhúsum. Margir eiga í erfiðleikum
með að venjast hinni miklu ólífuolíu
sem er ríkjandi í matargerð eyjabúa.
Kjötmeti, aðallega svínakjöt, er steikt
í miklu af olíu og borið fram með
grísku salati. Salatið, sem gert er úr
tómötum, gúrkum, lauk og ólífum
með fetaosti, verður dálítið þreytandi
til lengdar.
Alger óþarfi að örvænta, heimsins
besta souvlaki fæst á Paros og hvít-
lauksaðdáendur þreytast seint á tsat-
siki. Kartöflumar eru alltaf steiktar
en góðar þvi óhfuohan er alltaf fyrsta
flokks.
Fiskurinn er öðravísi en viö eigum
að venjast en er alltaf ferskur. Stórir
humarhalar era gómsætir og um að
gera að haga sér eins og heimsmaður
þegar kokkurinn kemur sigri hrós-
andi með innvolsið hrært saman viö
majónes. Hráar skeljar með sítrónu
eru fáfengið lostæti en grihaðir smá-
bitar af smokkfisksörmum eru næst-
um vanabindandi.
Grisk vín þykja ekki stórkostleg en
venjast þegar ekki er annað að fá.
Borðvínið er retzina, fremur hrátt
og lítt spennandi. Víninu ouzo geta
ekki alhr vanist, hinn sérstæði
lakkrískeimur fellur ekki aö smekk
allra. Máltíðinni lýkur svo með litl-
um bolla af góðu, sterku kaffi og
staupi af metaxa, nokkurs konar
koníaki Grikkjanna.
Veitingastaðirnir eru yfirleitt fá-
brotnir nema á helstu túristaeyjun-
um. Enginn má samt missa af því að
setjast að málsverði á ósvikinni ta-
vema sem eru úti um allt. Það er
undir hælinn lagt hvort borðbúnaö-
urinn er samstæður en hann er yfir-
leitt hreinn. Stólarnir eru venjulega
tréstólar með ofinni setu og oftar en
ekki eru fæturnir mislangir.
Vín og baunir
Ef heppnin er með er möguleiki að
lenda í miðri vínuppskeruhátíð, sem
er einstök upplifun. Ailir sem vettl-
ingi geta valdið taka þátt og smakka
hið nýja vín. Hver og einn fær
drykkjarkönnu sem aldrei tæmist.
Maturinn, sem boðið er upp á, er litl-
ir djúpsteiktir fiskar á stærð við
hornsíli og soðnar baunir. Fyrir
'ýf M »• * 1 Mn K jS "y ÍSL j
HrgBt 3.1
Á Paros er mikið úrval af handunnum listmunum til sölu.
Hof Apollons á Naxos sem aldrei var fullklárað.
suma maga er þessi blanda af nýju
vini og baunum hrein ofraun. Gleðin
nær svo hámarki þegar eyjaskeggjar
dansa og syngja í gleði sinni undir
bozookitónlist.
Santoríni er sérstæð að lögun
Landslag eyjanna er mjög misjafnt
en yfirleitt eru þær hijóstrugar. Sér-
kennilegust í úthti er eyjan Santor-
íni. Fyrir 3.500 árum var eyjan hring-
laga en eftir mikið sprengigos hvarf
miðjan og mikið af útlínunum. Eftir
stendur hálfhringur sem er þver-
hníptur öðrum megin í sjó fram.
Lending er við klettana og ferða-
menn hafa um tiio kosti að velja til
uppgöngu. Hvorugur er fýsilegur en
um aðra leið er ekki að velja. Annar
er að feta einstigi með 587 þrepum
upp á baki asna. Hinn kosturinn er
kláfur sem rennur beint upp þver-
hnípið og vissara fyrir lofthrædda
að hta ekki til baka.
Þegar upp er komiö er útsýnið yfir
nærhggjandi eyjar stórkostlegt. Bát-
arnir vagga á öldunum og hafið merl-
ar í sólskininu. Veitingastaðirnir
slúta fram af klettunum og verslanir
bjóða ferðamönnum fallega listmuni.
Santoríni er vinsæl ferðamannaeyja
og skemmtiferðaskipin, sem sigla um
Miðjarðarhafið, hafa oft viðkomu á
eynni. Þess vegna ber hún keim af
ferðamannaiðnaðinum og ágangur
fólks, sem er að selja eitthvað, er
mikill.
Hreinar strendur og mikil
saga
Hinar eyjarnar í hringnum eru
minna þekktar en vel þess virði að
dvelja þar, sérstaklega ef maður kýs
einfalt líf og að komast nær heimi
þeirra sem byggja þær.
Paros býður upp á heillandi strend-
ur, bæði fyrir hálfnakta og allsnakta.
Stærsti bærinn er hreinn og vinaleg-
ur og þeir sem eru hrifnir af hand-
unninni leðurvöru hafa úr miklu
úrvali að moða.
Á Tínos er fræg kirkja sem heittrú-
aðir heimsækja og færa gjafir. Niður
úr loftinu hanga þúsundir skraut-
muna en mest ber á trélíkneski,
skreyttu gulli og gimsteinum.
Naxos er fræg fyrir marmaranám-
umar sem gefið hafa efnið í mörg
fræg listaverk. Við hafnarmynnið í
samnefndum bæ tróna háar mar-
marasúlur á hæstu hæðinni. í upp-
hafi átti þetta að verða hof tileinkað
Apolon en það var aldrei fullkláraö.
Á súlunum, sem áttu að mynda inn-
ganginn, sést þvílíkt stórvirki var
hér í undirbúningi.
Hvort sem leitað er að lífi og fiöri
eða einfaldleika bjóða eyjarnar upp
á aht. Ferjumar eru eins og strætis-
vagnar á milli eyjanna. Ef manni
leiðist þá hoppar maður bara yfir á
næstu eyju og uppgötvar eitthvað
nýtt. Því eyjarnar í Kíklades-klasan-
um eru hver annarri fallegri,
skemmtilegri og meira heillandi.
-JJ
FILMU
Framköllun
iiniiirp
LJÓSMYNDAÞJONUSTAN HF
I angavpgi 178 - Reykjavík • Sími 685811
.......