Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Qupperneq 58

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Qupperneq 58
74 Andlát Vera Siemsen, Laugateigi 3, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu, Reykja- vík, að kvöldi 21. ágúst. Erla D. Magnúsdóttir, Hraunbraut 22, Kópavogi, andaðist í Landspítal-. S; anum 25. ágúst. Marinó Jóhann Jóhannsson, Karls- braut 1, Dalvík, lést á heimili sínu 21. ágúst. Sýningar Málverkasýning í blóma- verslun Michelsens | í dag opnaði Kristmundur Þ. Gislason , myndlistarmaöur sýningu á 5 verkum í , blómaverslun Michelsens, Lóuhólum 2, Breiðholti. Sýningin stendur i tvær vik- V ur. Sýning Sóleyjar í 'v'! Gerðubergi framlengd Sýning Sóleyjar Ragnarsdóttur í Gerðu- bergi, Breiðholti, hefur verið framlengd og mun hún standa til 10. september nk. Sóley útskrifaðist frá kennaradeild Myndhsta- og handíðaskóla íslands vorið 1986. Myndir hennar eru cohage- og ein- þrykksverk, unnar með blandaðri tækni, þrjátíu og flórar aö tölu, en helmingur þeirra hefur þegar selst. Sýningin veröur opin á opnunartíma Geröubergs mánu- daga til fimmtudaga, kl. -9-21, fóstudaga kl. 9-19 og um helgar kl. 15-19. Hjónaband I dag verða gefin saman af séra Guð- mundi Þorsteinssyni, í Árbæjarkirkju, Guðný Inga Þórisdóttir og Björgvin ">; Gylfason. Heimili þeirra er að Asparfelli 10, Reykjavík. Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkurpró- fastsdæmi sunnudag 28. ágúst 1988. Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Jónas Þórir. Sr. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Einsöngur Guðrún Jónsdóttir. Prest- ur sr. Ólafur Jens Sigurðsson. Sókn- arnefndin. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Dómkór- inn syngur. Organisti Marteinn Hun- ger Friðriksson. Sr. Lárus Halldórs- son. Viðeyjarkirkja: Messa kl. 14. Dóm- kórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Sr. Lárus Halldórs- son. Kl. 16.00 - orgelleikur. Marteinn H. Friðriksson ieikur á nýja orgelið í Viðeyjarkirkju í 30 mín. Landakotsspítali: Messa kl. 13. Org- anleikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Hjalti Guðmundsson. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Árelíus Níelsson. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðný Margrét Magnúsdóttir. Sr. Hreinn Hjartar- son. Fríkirkjan í Reykjavík: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Kristín Jóns- d,óttir. Sr. Cecil Haraldsson. Grensáskirkja: Messa kl. 11. Organ- isti Árni Arinbjarnarson. Sr. Halldór S. Gröndal. Hallgrimskirkja: Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fialar Lárusson. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Sr. Tóm- as Sveinsson. Kvöldbænir og fyrir- bænir eru í kirkjunnni á miöviku- dögum kl. 18. Kópavogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Ólöf Ólafsdóttir. Org- anisti Jón Stefánsson. Heitt á könn- unni eftir athöfn. Sóknarnefndin. Laugarnessókn: Laugardaginn 27. ágúst: Messa í Hátúni lOb 9. hæð kl. 11. Guðsþjónusta í Áskirkju sunnu- dag kl. 11. Sóknarprestur. Neskirkja: Messa kl. 11. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Ólaf- ur Jóhannsson. Miðvikudag: Fyrir- bænamessa kl. 18.20. Sr. Ólafur Jó- hannsson. Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðni Gunnarsson skólaprestur messar. Organisti Kjartan Sigurjóns- son. Seljasókn. Seltjarnarneskirkja: Messa ki. 11. Organisti Sighvatur Jónasson. Sr. Guðmundur Örn Ragnarsson. SrLaugalæk 2, simi 686511, 656400 HEFUR ÞÚ SK0ÐAÐ 0KKAR TILB0Ð Vi svín, frágengið að þín- um óskum 383 kr. kg Nautahakk kr. 495,- en aðeins 425 kr. í 10 kg pakkningum. Kindahakk 451 kr. en aðeins 325 kr. í 10 kg pakkningum. simi 686511, 656400 Tilkynningar Félag eldri borgara Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á mofg- un, sunnudag. Kl. 14: frjálst spil og tafl. Kl. 20: dansað til kl. 23.30. Varaforstjóri Alþjóðavinnu- málaskrif- stofunnar í Genf kemur til landsins Hinn 28. ágúst kemur varaforstjóri Al- þjóðavinnumálskrifstofunnar í Genf, Bertil Bolin, í heimsókn til íslands. Hann dvelur hér á landi fram til 3. september. Meðal þeirra sem hann hittir eru forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og félags- málaráðherra, Jóhanna Siguröardóttir. Auk þess á hann fundi með fulltrúum Alþýðusambands íslands og Vinnuveit- endasambands íslands. Einnig heimsæk- ir hann lagadeild og félagsvísindadeild Háskóla íslands. Alþjóðavinnumálaskrif- stofan er ein þriggja fastastofnana Al- þjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO). Hinar eru Alþjóðavinnumálaþingið, sem er allsheijarþing fulltrúa aöildarríkja stofnunarinnar, og stjórnarnefnd ILO. Alþjóðavinnumálastofnunin hóf starf- semi árið 1919, eftir fyrri heimsstyijöld- ina, sem hluti af Þjóðabandalaginu. Frá árinu 1946 hefur hún verið ein af sér- stofnunum Sameinuðu þjóöanna. ísland hefur verið í hópi aðildarríkja ILO frá árinu 1945. Hjálpræðisherinn Útisamkoma á Lækjartorgi kl. 16 í dag. Kristniboðssamkoma verður í Hjálpræð- ishernum kl. 20.30 í kvöld. Kapteinn Myriam Óskarsdóttir syngur og talar og brigaderarnir Ingibjörg og Óskar stjóma. Fórn verður tekin til starfs Myriam í Panama. Allir velkomnir. LAUGÁRDAGUK 27. ÁG'OST'l988. Fréttir Fiskeldi á tímamótmn: Ákvörðun um sölu á norskum seiðum frá islandslaxi til Lindalax hefur vakið miklar hræringar í fiskeldisheiminum. Norsku laxaseiðin eru að taka yfir markaðinn - mikill órói vegna undanþágu til íslandslax og Lindalax Akvöröun um sölu á norskum seiðum frá íslandslaxi- til Lindalax hefur vakiö miklar hræringar í fi- skeldisheiminum enda um stóra ákvörðun að ræða. „Þetta er tilfinn- ingamál hjá forráðamönnum seiða- eldisstöðva því í þessu felst að þeirra fiskur, af íslenskum stofni, er nú kominn í annan flokk,“ sagði for- stöðumaður einnar seiðaeldisstöðv- ar en flestar stöðvarnar eiga nú í miklum vandræðum vegna erfið- leika við sölu á seiðum. Á sínum tíma fengu tvær strand- eldisstöðvar að flytja inn hrogn frá Noregi, íslandslax og ísnó í Keldu- hverfi. Var þaö samkvæmt undan- þágu frá landbúnaðarráðuneytinu. Framleiðsla íslandslax á seiðum átti bara að vera fyrir þeirra eigin stöð og til útflutnings. Þar eð útflutnings- markaðurinn á seiðum brást í ár sat stöðin uppi með mikinn fjölda seiða. Með annarri undanþágubjörgun frá landbúnaðarráðuneytinu var fyrir- tækinu gert kleift aö selja 200.000 seiði til Lindalax af 650.000 seiða framleiðslu. Mun íslandslax ætla að nota um 300.000 seiði. Mismuninn verður annaðhvort að selja eða að stöðin reynir að ala þau áfram. Salan hefur ekki enn farið fram en að sögn Sigurðar Friðrikssonar, framkvæmdastjóra íslandslax, verð- ur líklega gengið frá henni á næstu tveim vikum. Um verð vildi Sigurður ekkert segja en samkvæmt heimild- um DV er ekki óeðlilegt að gera ráð fyrir 70 kr. á seiði þannig að hér er um 14 milljónir kr. að ræða. Pólitísk fyrirgreiösla Af viðtölum við menn í fiskeldi má ráða að almenn óánægja ríkir með þessa sölu. Segja menn aö hér sé um hreinræktaða pólitíska fyrirgreiðslu að ræða en íslandslax er aö stórum hiuta tengt SÍS og Lindalax eiga framsóknarmenn með Eirík Tómas- son sem stjórnarformann. Þetta skili sér síðan í undanþágurunu frá land- búnaðarráðuneytinu. Niðurstaðan sé að á meðan aðrir seiðaeldismenn berjist í bökkum og viö sumum blasi ekkert nema gjald- þrot fái íslandslax undanþágu sem tryggi sölu á vöru þaðan. Reyndar vilja flestar matfiskstöðvar gjarna fá að kaupa þessi seiði frá íslandslaxi og hafa trú á þeim. En þó menn vilji kaupa norsku seiðin af íslandslaxi fær það enginn nema Lindalax. Guðmundur Sigþórsson, skrif- stofustjóri landbúnaðarráöuneytis- ins, sagði aö auðvitað kæmi sér vel fyrir íslandslax aö fá að selja seiðin en það hefði verið Lindalax sem hefði lagt inn beiðni um söluna. Guðmund- ur sagðist ekki sjá neitt óeðlilegt við söluna. Fisksjúkdómanefnd hefði talið öllu óhætt og þarna væri um sjúkdómalausan fisk að ræða sem mönnum þætti fýsilegt að rækta. Leyfi frá fisksjúkdómanefnd umdeilt Ákvörðun um að leyfa sölu á milli stöðva var meðal arinars tekin að fengnu samþykki frá fisksjúkdóma- nefnd en menn eru ekki sáttir við hvernig nefndin stóð að ákvörðun- inni. Meðal annars virðist ekki hafa verið haft samráð við neinn fisksjúk- dómafræðing en innan stéttarinnar eru menn ekki sammála um hvort norski fiskurinn haíi verið nógu lengi í sóttkví. Þá mun fisksjúk- dómur hafa komið upp í einni þeirra stöðva í Noregi sem seldu íslandslaxi hrogn á sínum tíma og segja menn að það eitt sé næg ástæða til að stöðva frekari sölu frá fyrirtækinu um skeið. Að sögn Árna ísakssonar, forstöðu- manns Veiðimálastofnunar sem sit- ur í fisksjúkdómanefnd, breytir litlu hvort þessi norski fiskur er í einni strandeldisstöð eða tveim og ástæða Fréttaljós Sigurður M. Jónsson þess að Lindalax fékk þennan fisk hafi einfaldlega verið sú að engin önnur strandeldisstöð hafi beðið um hann. í Veiðimálastofnun ríkir ágreining- ur um framkvæmd málsins og sagði einn viðmælenda í stofnhninni að fáir vildu sjá þennan fisk flæða um landið en mönnum þætti það þó sök sér á meðan útbreiðsla hans væri bundin við strandeldisstöðvar. Gullgrafaraæði! En af hverjuer þessi norski fiskur svo eftirsóttur? „Staðreyndin er sú að hann vex mjög hratt enda eru Norðmenn 10 árum á undan okkur í kynbótum í fiskeldi," sagði Sigurður Friðriksson. Fiskur, sem hefði verið að vaxa síðan í mars, væri orðinn tveim mánuðum á undan samsvar- andi íslenskum eldislaxi. Undir þetta tók einn matfiskseldismaöur sem tók meira að segja dýpra í árinni og sagði að það væri í raun lífsspurssmál fyr- ir íslenskt fiskeldi að leyfa sölu á þessum fiski - og þá ekki hara til pólitískra gæðinga. Fiskeldisfræðingar vilja ekki allir taka undir þetta og segja að hér séu menn komnir með gullgrafaraæði og engar marktækar rannsóknir renni stoðum undir að norskur fiskur sé betri en íslenskur hér við land. Þá sagði einn fiskifræðingur að þeir hjá íslandslaxi gerðu allt of mikið úr ágæti fisksins og nefndi að forráða- menn ísnós, sem eru meö sama fisk, vildu ekki taka undir allar fullýrð- ingar íslandslax-manna. Eitt atriði, sem menn tína til, er ótímabær kynþroski í norska laxin- um. Er þá um það að ræða að 15 cm seiði verða kynþroska en um leið því sem næst óhæf sem markaðsvara. Þá draga menn í efa aö fiskurinn sé eins kynbættur og menn vilji vera láta. Hér sé bara um norskt afbrigði að ræða sem algerlega eigi eftir að sanna ágæti sitt hér á landi. Erfðablöndun eða ekki Og þá eru það erfðamálin sem ávallt hella olíu á eldinn. Margir, og þá sérstaklega líffræðingar, telja að rækta verði upp íslenskan stofn með íslenskum eiginleikum. Með inn- flutningi á þessum norsku seiðum og útbreiðslu þeirra sé hætta á alvar- legri erfðamengun sem skaði íslenskt lífríki. Auk þess sé óvíst að nokkur fjárhagslegur ávinningur sé af því til langs tíma. Aðrir segja að möguleikar á gróöa í fiskeldi velti á því að unnt sé að grípa til þessa norska fisks því Norð- menn séu 10 árum á undan okkur í fiskeldi og við náum þeim einfaldlega ekki nema með því að taka þennan fisk. „Norski stofninn gefur okkur mun meiri vaxtarhraða á matfiski og því er þessi stofn nauðsynlegur fyrir okkur,“ sagði Svanur Guð- mundsson hjá Snælaxi í Grundar- firði og undir það taka aðrir mat- fiskræktendur. Tímamót fram undan Eins og áður segir sjá margir ákveðin tímamót í þessari sölu. Að sögn Friðriks Sigurössonar, fram- kvæmdastjóra Landssambands lax- eldis- og hafbeitarstöðva, vonast menn til að í haust verði farið að selja hrogn frá þessum stöðvum enda sé að koma kynslóð sem sé komin af hrognum ræktuðum hér. Það er sú viðmiðun sem menn nota oft í fisk- eldi til að útrýma sjúkdómahættu sem hlýst af því að flytja fisk á milli landa. Ef þetta verður leyft þá er ljóst að þessi fiskur verður allsráðandi því að forráðamenn þeirra matfisk- stööva, sem rætt var við, sögðust umsvifalaust vilja þennan fisk. Þar með telja sumir að dagar laxa af hreinum íslenskum stofni séu taldir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.