Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1988.
Fréttir
Jólaumferð'
in ekki
jafnþung
og áður
Mikil umferð var í Reykjavík á
laugardag enda verslanir opnar
til tíu um kvöldið. AUs uröu 24
árekstrar og þar af þrjú slys. Þó
var umferöin ekkert i líkingu við
það sem hún var fyrir tíma
Kringlunnar en þá þurfti oftast
að loka Laugaveginum síðustu
verslunardagana fyrir jól. Nú fer
umferðin að miklu leyti inn í
Kringlu þó hún hafi einnig verið
nokkuð þung í miðbænum.
- Talsverð ölvun var á fostudags-
kvöldið og mikill erill hjá lögregl-
unni vegna þess. Vinnustaöir
voru margir með jólaglöggveisl-
ur. Laugardagskvöldiö var mun
rólegra, að sögn lögreglunnar.
Nokkuð var um rúðubrot. Rúða
var brotin í skartgripaverslun að
Skólavörðustíg 5 óg hvarf tals vert
af skartgripum úr glugganum.
Þjófurinn er enn ófundinn. Þá var
tilkynnt um innbrot í söluturn
við sundlaugarnar á Seltjarnar-
nesi en ekki var ljóst hversu
miklu hefði verið stolið.
-ELA
Ófriðlegt
í Kópavogi
Mjög mikið var að gera hjá lög-
reglunni í Kópavogi um helgina
vegna ölvunar. Ófriður var tals-
verður hjá ýmsum bæjarbúum
sem sáu sig tilneydda að óska eft-
ir lögregluaðstoð vegna ölvaðra
manna sem bönkuðu á glugga og
dyr. Þá var nokkuö um að brotist
væri inn í bifreiöar. Stolið var úr
tveimur bílum og sá þriðji var
skemmdur mikiö. Að sögn lög-
reglunnar var þetta óvenju erfiö
helgi og áberandi fyllirí á götum
úti og í heimahúsum.
-ELA
Smygl í Svamnum:
Jóiaveigar
bornar frá
borði um
hánótt
Þeir urðu að sjá á eftir jólaskin-
kunni, skipverjamir á Svanin-
um, og einhverju af jólaáfenginu
líka þvi að lögreglan á Akranesi
kom að þeim í fyrrinótt þar sem
þeir voru aö bera mat og vín frá
borði í ómældu magni. Svanur-
inn hafði verið tollafgreiddur í
Hafnarfirði þar sem ekkert at-
hugavert fannst.
Skipiö hélt síðan til Akraness
með varning fyrir Sementsverk-
smiðjuna og smygliö vel falið. Þar
átti aö landa hvoru tveggja en
skipveijar höfðu ekki áttað sig á
hversu athugul lögréglan á Skag-
anum er. Alls fundust 160 kiló af
skinku í skipinu og talsvert magn
af áfengi. Skipverjar verða látnir
svara til saka en þeir gátu litlar
skýxingar gefið á smyglvarningi
sinum.
-ELA
Leiðréttíng
Tryggvi Stefánsson, bóndi í
Fnjóskadal, hefur beðið blaðið
um að koma eftirfarandi á fram-
færi:
„Ummæli þau sem eftir mér
voru höfð í DV um kaup Sam-
vinnubankans á kartöfluverk-
smiðjunni á Svalbarðseyri voru
byggð á misskilningi og leiörétt-
ast hér með“.
Skotveiðíkeppni í Húsafelli:
Sigurvegarinn fékk
aðeins tvær rjúpur
Rjúfa varð loft í söluturni á Skólavörðustig i gær er eldur kom upp í bak-
herbergi og breiddist fljótt út. DV-mynd S
Eldur á þremur stöðum um helgina:
Eldur kom upp í söluturni aö
Skólavörðustíg 22 í gærdag. Logandi
kerti stóð á borði í litlu herbergi bak
við afgreiðsluna. Svo virðist sem
kviknað hafi í út frá kertinu. Komst
eldur í gardínur og breiddist hann
fljótt upp í timburloft sölutumsins.
Afgreiðslustúlkan var frammi í
versluninni við störf sín er eldurinn
kom upp og varð hans ekki vör fyrr
en of seint. Slökkviliðið þurfti að
ijúfa gat á loftið til að ná tökum á
eldinum. Talsverðar skemmdir urðu
á húsnæðinu.
Þá kom upp eldur í íbúð fullorðinna
hjóna á Meistaravöllum 23 á laugar-
dagsmorgun. Eldur kom upp í stof-
unni og fylltist íbúðin fljótt af hita
og reyk. Hjónin forðuðu sér út á sval-
ir og stóðu þar í reykjarkófi er
slökkviliðið kom á staðinn. Hjónun-
um var bjargað með stiga. Ekki er
vitað um eldsupptök. Hjónin voru
flutt á slysadeild og þaðan á Land-
spítalann til frekari rannsóknar.
Þriðja útkall slökkviliðsins um
helgina var aöfaranótt sunnudags að
Austurbrún 4 en þar logaði í feiti-
potti í mannlausri íbúð. Nágranni
heyrði í reykskynjara og fann bruna-
lykt leggja fram og gat hann brotist
inn í íbúðina og slökkt í pottinum
með dufttæki.
-ELA
Sólmundur Einarsson vann fyrstu
verðlaun í keppni sem Skotveiðifélag
íslands hélt á laugardag í Húsafelli í
Borgarfirði. Verðlaunin voru tví-
hleypa en keppnin var falin í því að
veiða sem mest í sem fæstum skot-
um. Sólmundur náði sér í tvær rjúp-
ur.
Alls tóku sextán manns þátt í
keppninni og að sögn Hallgríms Mar-
inóssonar, formanns félagsins, var
aðeins sextán skotum hleypt af. Ekki
mátti skjóta aðra fugla en rjúpur.
„Tilgangurinn meö þessari keppni
var sá að kenna mönnum að skjóta
ekki á bráð nema vera vissir um að
hitta. Einnig var lögð áhersla á að
segja mönnum hvernig ganga ætti
um landið og virða rétt landeigenda.
Hér var ekki um neitt fjöldadráp að
ræða,“sagði Hallgrímur.
„Við fengum nokkra gagnrýni og
þá helst frá formanni Skotveiðifélags
Reykjavíkur vegna keppninnar. Eg
er mjög hissa á ummælum hans og
tel hana vera persónulega óvild. Mér
skilst að formaðurinn hafi kallað
saman neyðarfund í félaginu til að
lýsa vanþóknun á keppninni en ekki
náð samstöðu. Keppnin var fyrst og
fremst til að kenna veiðimönnum og
hvetja þá til hóflegrar skotnýtingar,"
sagði Hallgrímur.
Einar Guðmundsson lenti í öðru
sæti og Karl Bridde í þriðja. Hall-
grímur sagði að alhr keppendur
hefðu virt bann við drápi á öðrum
fuglum og fengu því endur, mávar
og hrafnar að fljúga framhjá skot-
staðnum í friði. Flestir keppendur
komu úr Reykjavík.
-ELA
Eftir keppni var sest niður og reiknað og spáð í skotnýtingu. Sextán menn skutu sextán skotum.
DV-mynd S
Hallgrimur Marinósson óskar sigur-
vegaranum, Sólmundi Einarssyni, til
hamingju með árangurinn.
Heimsfegurðardrottning 1 önnum:
Búið að vera
brjálað að gera
- segir Linda Pétursdóttir
„Það er búið að vera alveg brjálað
að gera síöan ég kom heim. Ég Lef
því ekki mikið sofið, þetta 3-4 tíma á
sólarhring. í morgun var ég komin á
fætur klukkan fimm til að ná í vin-
konu mína út á flugvöll en hún var
að koma frá Bandaríkjunum," sagði
Linda Pétursdóttir, ungfrú heimur,
þegar DV ræddi viö hana í morgun.
„Ég hef verið mikið í viðtölum og
myndatökum síðan ég kom heim.
Svo hefur verið mikið um boð, til
dæmis á Hótel íslandi á laugardags-
kvöldið," sagði Linda.
„Ég get ekki neitað því að þaö hefur
verið æðislega gott að koma heim og
viðtökurnar hcifa veriö alveg frábær-
ar. Ég get ekki annað sagt en að ég
er alveg ofsalega ánægð meö þetta
allt saman.“
Á morgun heldur heimsfegurðar-
drottningin til síns heima, austur á
Vopnafjörð, þar sem foreldrar henn-
ar eru búsettir. Er fyrirhugað að íbú-
ar kaupstaðarins og nágrennis safn-
ist saman á ílugvelhnum til að taka
á móti Lindu. Annan í jólum verður
svo barnaball og hefur hún verið
beðin um að flytja ávarp þar og ræða
viö börnin. „Annars ætla ég að reyna
að nota tímann hér heima sem allra
mest til að hvíla mig og búa mig
undir næstu mánuði, sem vafalaust
eiga eftir að verða strangir,“ sagði
Linda.
Víða um lönd næstu mánuði
Hún dvelur á íslandi í þrjár vikur.
Þá hggur leiðin til Sviss á vegum
Flugleiða. Þaðan fer hún líklega til
E1 Salvador og Japan er á dag-
skránni í febrúar. Linda heimsækir
einnig Rússland og Kína, svo og lönd
í þriðja heiminum. En hvernig skyldi
þetta langa ferðalag, sem fram undan
er, leggjast í hana?
„Það leggst bara mjög vel í mig.
Að vísu veit ég ekki hvað ég er að
fara út í en þetta á örugglega eftir
að verða mjög gott.
Samt setur að mér örlítinn kvíða
þegar ég hugsa til þeirra hörmunga
sem ég á kannski eftir að sjá. Mér
hafa til dæmis verið sýndar myndir
af neyö fátækra barna. Efst í huga
mér situr mynd af þriggja ára stúlku
sem var fost í rúminu sínu. Hnakk-
inn og bakið voru gróin við það vegna
óhreininda og vanhirðu. Það tekur
mikið á mann að sjá svona hluti.“
-JSS
Skák:
Sovétmenn unnu naumlega
Sovétmenn unnu nauman sigur á
heimsúrvalinu í skák, 32,5 gegn 31,5,
en keppnin fór fram í Madrid á Spáni.
Hér var um hraðskákmót að ræða
því tefldar voru 25 mínútna skákir.
Jóhann Hjartarson teíldi í heimsúr-
valinu og stóð sig vel, náði 50 prósent
vinningshlutfalli.
Það var Stórmeistarasambandið
sem stóð fyrir keppninni en allur
ágóði hennar rann til Bamahjálpar
Sameinuþjóðanna. -S.dór
Kertaljós kveikti
í söluturni