Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Síða 53
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1988.
.57
Tow' Watts í nýjasta hlutverkinu.
Lofty úr Austurbaeingum er á bak
og burt.
Frá Lofty til
elskhugans
Hver man ekki eftir Lofty úr Aust-
urbæingum, mestu veimiltítu í gjör-
vallri sögu sjónvarpsins? Hann hefur
nú skipt um ham, eða öllu heldur
leikarinn sem fór með þetta
skemmtilega hlutverk. Hann heitir
Tom Watts og leikur aðalhlutverkið
í nýrri breskri sjónvarpsmynd um
ástir hermannsins Normans í síðari
heimsstyrjöldinni.
„Norman er allt öðruvísi en Lofty,“
segir Tom Watts. „Hann er dálítið
flókin persóna, í rauninni dálítið
vondur gæi. Ég vona þó að fólk skilji
af hverju hann hagar sér eins og
hann gerir.“
Watts hefur nú yfirgefið mynda-
flokkinn sem skaut honum upp é
stjörnuhimininn. En ekki hefur hanr
setið iðjulaús. Hann hefur leikið i
eigin leikriti, Nokkrum orðum vifi
matarborðið, óg einnig í vinsælu
leikriti í West End, Útlendingnum.
„Síðasthðnir sex mánuðir hafa ver-
ið stórkostlegir," segir hann skæl-
brosandi. „Allt sem ég hef gert síðan
ég yfirgaf Austurbæinga er nokkuð
sem ég hef aldrei gert áður. Þess
vegna er nú svona gaman að vera
leikari."
Þetta er Stallone. Því miður eigum
við ekki mynd af bílnum hans.
Rambó-
bíllinn
kvaddur
Sylvester Stallone ætlar að selja
skothelda rambóbílinn sinn. Sá er af
tegundinni Chevrolet Suburban og
er miklu líkari Sherman skriðdreka
en venjulegum fjölskyldubíl. í ferlík-
inu eru tveggja tommu þykkir
gluggar, sérstyrkt fjöðrun til að
halda uppi öllum þunganum, styrktir
hjólbarðar, lögreglusírena og hátal-
arakerft svo hægt sé að segja gang-
andi vegfarendum að forða sér, komi
eitthvað upp á.
Sly hefur sett 'bíhnn á sölu vegna
þess að morðhótunum við hann hef-
ur fækkað allverulega' að undan-
fómu. Verðið, sem sett er upp, er um
fimm milljónir króna. Samt mun
karlinn tapa á viðskiptunum.
Ekki fylgir sögunni hvemig bíl
Stahone ætlar að fá sér. Eitt er þó
víst að ekki verður það Trabant.
Sviðsljós
„Féll strax fyrir
Sykurmolunum''
- Bandarísk hjón unnu íslandsferð hljómsveitarinnar.
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
Bandarísk hjón, Dan og Carol
Brown frá borginni Wakefield í
Massachusetts, voru á ferð í Vest-
mannaeyjum í síðustu viku, sem er
í sjálfu sér ekki í frásögur færandi
ef ekki hefði verið tilefni ferðarinn-
ar. Þar komu Sykurmolarnir við
sögu.
„Við fórum í hljómplötuverslun í
heimabæ okkar þar sem viðskipta-
vinum var boðið upp á að útfylla
miða með nafni og heimilsfangi.
Hljómplötufyrirtækið Electra var
þarna að kynna íslensku hljómsveit-
ina Sykurmolana sem hélt tónleika
í Boston um þetta leyti. Tilkynnt var
að dregið yrði úr nöfnum þátttak-
enda og átti sá heppni að fá fimm
daga ísalandsferð fyrir tvo í verð-
laun. Okkar nafn var dregið út og
hingað erum við komin,“ sögðu hjón-
in.
Þetta var fyrir sex vikum. Vissu-
lega hafði þau langað til að ferðast
til Evrópu en fram að þeim tíma hafði
ísland ekki verið á óskalistanum.
Vissu htið um land og þjóð nema að
Reagan og Gorbatsjov höfðu fundað
hér 1986 - en þau heföu ekki orðið
fyrir vonbrigðum. Landið væri fal-
legt og fólkið vingjarnlegt. Ferðin
hefði verið sannkallað ævintýri..
Sykurmolana þekktu þau fyrir og
líkar vel tónlist þeirra. „Ég féll strax
fyrir Sykurmolunum, þegar ég
heyrði í þeim. Við eigum eina spólu
með þeim og finnst hún stórkostleg.
Hljómsveitin er að verða stórt nafn
í Bandaríkjunum og ég er viss um
að hún á eftir aö ná langt,“; sagði
Carol.
/• : ;
:..............................
Dan og Carol Brown í Vestmannaeyjum.' DV-mynd Omar
MAMMA! HVAÐ
Á ÉG AÐ GERA?
eftir Jón Karl Helgason.
Hér er á ferðinni ótrúlega nytsöm bók
fyrir þá sem langar (eða verða!) að standa
á eigin fótum.
í fimm köflum sem nefnast: Land-
ncminn, Völundurinn, Græðarinn,
Kokkurinn og Þrifillinn er að finna
lausnir við vandamálum eins og; Hvernig
á að stytta buxur? Hvað fer í suðuþvott?
Hvaða múrboltar passa fyrir sex milli-
metra bor? Hvenær á að senda vín til
baka?
Pottþétt bók fyrir allt ungt fólk.
EYMOHDSSC)l