Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1993, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1993
29
>v_____________________________Menníng
Húmor í myrkri og einsemd
Handan við dauðann situr Páll og
rekur jarðlíf sitt, um uppvöxt sem
elsta barn á alþýðuheimili til
mennta- og myndlistarskólaára
þegar heljartök geðveiki og of-
skynjana læsast um hann. Við
fylgjumst með lyfjavímu og sveifl-
um sem verða á líðan hans uns
rofar til um síðir - en þá eru allir
vinir og ættingjar famir. Sagan er
sögð í stuttum köflum sem lýsa upp
einstök atvik á viðburðaríkri ævi
og draga upp eftirminnilegar
myndir af örlögum ólíkra samferð-
armanna: æskufélögum sem fara
út af sporinu með ýmsum hætti,
inn á Hraun eða í faðm sjálfsmorðs-
Einar Már Guðmundsson. Per-
sónulýsing Páls er með glæsileg-
ustu bókmenntaafrekum síðari
ára.
ins, og sá eini sem kemst klakk-
laust af er hálfgerður lúser sem
endar í guðfræði og nær þeim
áfanga aö syngja yfir moldum vin-
ar síns. Eftir að Páll kemst á Klepp
lendir hann í samfélagi enn fjöl-
skrúðugri karaktera með áhuga-
svið utan við alfaraslóð og rang-
hugmyndir um að þeir séu Adolf
Hitler eða höfundur Bítlalaganna.
ARar hnitast þessar sögur með
einhveijum hætti um spumingar
sem tengjast þvi hvernig til tekst
með lífið, þegar geðsjúkir á stofn-
unum drepa sig, glæpamenn lemja
hver annan tfi dauðs og fylla flokk
hinna sjúku á götunum, og jafnvel
fyrirmyndarmaðurinn slær sig af
þótt hann eigi allt til alls: vel laun-
að starf, konu, böm og bíl og hús.
En áleitnast í huga lesandans er
kannski hvað hefur kveikt á bilun-
inni hjá Páh - þó að hann sjálfur
sé ekki upptekinn af því. Af hverju
verður einn Kleppsmatur og ekki
hinn, og hver er sjúkur þegar upp
er staðið? í æsku dynja áfoh á Páli
og hann fær í sífehu óvenju harka-
leg viðbrögð við því sem hann kem-
ur nálægt. Maður veltir fyrir sér
hvort vegi þyngra í geðveiki hans
síðar: mótunin eða meðfædd utan-
gáttanáttúra. Hvaða áhrif hefur ei-
líft hrun heimsmyndar til sturlun-
ar þar sem sekt af ætt Makbeðs
nagar sálina? Hann fær harkalega
skammadembu í kjölfar fyrstu
kynlífsreynslunnar, kemst ekki
aftur inn í vinaklíkuna þegar hann
birtist með nýfengið hvolpavit úr
sveitinni og lendir í barsmiðum og
er niðurlægður af upprennandi
Hraunurum. Hvarvetna rekst
hann á vegg og útkoman er sú að
Sviðsljós
LaToya Jackson:
Vill hjálpa
bróður sínum
LaToya Jackson hefur vakið mikla
athygli undanfarið fyrir að saka
bróður sinn, Michael Jackson, opin-
berlega um að misnota unga drengi
kynferðislega. LaToya segist ekki
gera þetta vegna Olgimi heldur vor-
kenni hún hinum fræga bróður sín-
um og vOji að hann fái hjálp. Fjöl-
skylda hennar er fjúkandi 01 yfir
þessari yfirlýsingu systurinnar.
LaToya hefur ávaOt reynt að líkja
eftir bróður sínum í útliti og hefur
farið í ófáar lýtaaðgerðir í því skyni.
Eins og sjá má á myndinni em systk-
inin keimhk.
Bókmermtir
Gísli Sigurðsson
skemmtOegur og einlægur strákur
lendir í öngstræti þar sem ekki
verður við snúið. En kannski var
honum aldrei ætluð önnur leið.
í Englum alheimsins er reynt að
skOja þá óhku strauma sem leika
um sturlaðan huga og við finnum
sterklega fyrir hinni óviðráðanlegu
veiki sem leggst á hæfileikaríkan
unghng. Við kynnumst því hka
hvernig hann helaur persónuein-
kennum sínum og nær sambandi
við annað fólk í þeirri blöndu bil-
unar og mannlegra tilfinninga sem
við eigum öll sameiginlegar en
hann ræður ekki við og er þess
vegna úr leik: „En við erum hka
menn,“ segi ég. „Tökum til dæmis
þá þarna niðri á þingi. Svoleiðis
menn sérðu ahs staðar, en svona
mönnum eins og okkur kynnistu
bara inni á Kleppi.“ (189) Persónu-
lýsing Páls er með glæsOegustu
bókmenntaafrekum síðari ára,
skrifuð af mikilh frásagnarlist þar
sem fara saman djúpur skOningur
á lífsvandanum, væntumþykja og
tilfinning fyrir persónunni, stór-
góður húmor og markviss heildar-
sýn sem gefur okkur samfehda
sögu úr marglitum brotum. í
blöndu af þessu tagi er sagnagald-
urinn fólginn.
Einar Már Guðmundsson
Englar alheimsins (skáldsaga, 224 bls.)
Almenna bókatélagið 1993
PERLUFESTAR
Hinar þekktu japönsku
Namida perlufestar sem
búnar eru til úr skeljum sem
perlur eru ræktaðar í.
Þær fást í lengdum: 42 cm,
45 cm, 50 cm, 60 cm, 80 cm
og 90 cm bæði í 6 mm og
7 mm perlum, verðið er frá
5.200 til 10.700 kr.
Allar festarnar eru með silf-
urlás. Einnig armbönd, ein-
föld og tvöföld, á verði frá
kr. 3.600 til 9.800.
Einnig eyrnalokkar með silf-
á 1.850, 1.950 og
kr.
49
SIMAR 17742 OG 617740
Skreytinguna á leiðið
færðu í Garðshorni
t ÚTIKERTI,
ff’1" | í LVKTIR 0G
Í&T w 1| |I ||J| KR0SSAR
i miklu úrvali og eldspýtur lika
Krossar kr. 1.950,-
Leiðisgreinar kr. 1.250,-
Leiðisvendir frá kr. 850,-
RIVTT Rafkerti með venjulegum
I ■ T I I i'afhlöðum - loga í 3-5 vikur
Afgreiðslutími til jóla:
18.-20. des. kl. 10-21
21.-22. des. kl. 9-22
Þorláksmessa kl. 9-23
Aðfangadagur kl. 8-16
GARÐSHORN SS
v/Fossvogskirkjugarð, símar 40500 og 16541
LaToya Jackson.