Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1993, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1993
Skák
Hraðmótið í Oviedo á Spáni:
Vajser sigraði en lék
af sér bifreiðinni
Tveir íslenskir stórmeistarar voru
meðal rúmlega sex hundruð kepp-
enda á geysisterku hraðmóti í Oviedo
á Spáni sem lauk í síðustu viku.
Tefldar voru 45 mínútna skákir en
hraðmót af ýmsu tagi verða nú sL
fellt vinsælli.
Úrslit urðu nokkuð óvænt en stór-
meistarinn Anatólí Vajser, frá Novo-
síbirsk, sem er nú búsettur í Frakk-
landi, varð einn efstur, hlaut 11 v.
af 13 mögulegum. í 2.-5. sæti urðu
Judit Polgar, Júdasín, ísrael, og
Kharlov og Smagin, Rússlandi, með
10,5 v. og Jan Timman varð í í hópi
kejppenda í 4. sæti með 10 v.
Islendingunum, Margeiri Péturs-
syni og Hannesi Hlífari Stefánssyni,
gekk ágæta vel lengi framan af. Eftir
tíu umferðir var Margeir í hópi efstu
manna, eftir góðan sigur á rúmenska
stórmeistaranum Súba. En lánið lék
ekki við hann í þremur síðustu um-
ferðunum - hann tapaði þrefalt og
varð því að sætta sig við 8 vinninga
uppskeru.
Hannes Hlifar, sem var ekki í hópi
50 stigahæstu manna mótsins, hafn-
aði í 17. sæti með 9,5 v. Hannes tap-
aði aðeins fyrir Lettanum 011. Gerði
jafntefli m.a. við Sveshnikov, Nikolic
og Timman. Margeir gerði einnig
jafnt við Timman og Judit Polgar,
sem slapp með skrekkinn eins og
fyrri daginn.
Ýmsir þekktir skákmenn áttu erfitt
uppdráttar á mótinu en mest kom
þó á óvart hvað Indverjinn hand-
fljóti, Viswanathan Anand, stóð sig
illa. Hann fékk 7 vinninga og mátti
þakka fyrir það. í lokaumferðinni
snerti hann óvart riddara gegn Júgó-
slavanum Barlov og ætlaði að gefast
upp en Barlov sýndi þann drengskap
að neita að taka við uppgjöfinni - og
tapaði!
I mótslok tefldi sigurvegarinn,
Vajser, við Judit Polgar stutta sýn-
ingarskák og var spánný Opel Corsa
bifreið í boði. Judit gerði sér lítið
fyrir og hreppti bifreiðina en hafði
þar heppnina með sér. Vajser átti
gjörunnið tafl en lék öllu af sér í
tímahraki.
Hannes Hlífar var laginn við að
krækja í vinninga með skoska leikn-
um en stórmeistarinn Predrag Nik-
olic slapp þó fyrir hom gegn honum
í síðustu umferðinni. Hér sjáum við
hvemig Hannes leikur brasilíska
stórmeistarinn Milos:
Hvítt: Hannes Hlifar Stefánsson
Svart: Gilberto Milos
Skoski leikurinn.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4. Rxd4
Bc5 5. Be3 Dffi 6. c3 Rge7 7. Bc4 0-0
8. 0-0 Bb6
Óvenjulegur leikur. Ætlun svarts
er að svara 9. Rb5 með 9. - a6 10.
Bxb6? axb5 og tveir biskupar em í
uppnámi.
9. Bb3 Ra5?!
Svartur hefði betur leikur 9. - a6.
10. Bc2 Rc4 11. Bcl d6 12. a4 a6 13.
Khl! Re5 14. f4 Rec6?
Betra er 14. - Rg4 en þá hugðist
Hannes leika 15. Del!? og fóma peði.
15. Rxc6 Rxc6 16. Rd2 Be6
8
7
&
5
4
3
2
1
17. e5! Dh4
Ef 17. - dxe5 18. f5! Bc8 19. Re4 Dd8
20. Dh5 með myljandi sókn. T.d. 20.
Jóhann Hjartarson, stórmeistari, er
i hópi 45 skákmenna, sem þekkst
hafa boö um að tefla á „millisvæða-
móti” PCA, sem hefst í Groningen
á morgun, sunnudag.
- f6 21. Bb3+ Kh8 22. Hf3 og nú er
grínlaust að eiga við hótunina 23.
Dxh7+! ásamt Hh3 mát.
18. f5 Rxe5
Svartur er lentur í mestu ógöngum
og kýs að fórna manni til þess aö ná
andanum en þetta dugir skammt.
19. fxe6 Rg4 20. Rf3 Rf2+ 21. Hxf2
Dxf2 22. Dd3 g6 23. Bh6
Svarta staðan er töpuð.
23. - fxe6 24. Bxtö Hxtö 25. Hfl Dc5 26.
De4 Dd5 27. Dxd5 exd5 28. Hel c6 29.
h4 Bf2 30. He6 Bg3 31. Bxg6 Bf4 32. Bc2
- Og hvítur vann.
Jóhann teflir
í Groningen
Jóhann Hjartarson stórmeistari er
í hópi 45 skákmanna sem þekkst
hafa boð um að tefla á „millisvæða-
móti“ PCA, sem hefst í Groningen á
morgun, sunnudag. Samtök Kasp-
arovs og Shorts standa að mótinu,
sem er eftirlíking af heimsmeistara-
keppni FIDE. Sjö efstu menn komast
áfram og mimu tefla einvígi um rétt-
inn til þess að skora á Kasparov
„heimsmeistara".
Mótið í Groningen er fimavel skip-
að. Auk Jóhanns eru meðal kepp-
enda Anand, Kramnik, Ivantsjúk,
Sírov, Bareev, Kamsky, Beljavskí,
Adams, Kortsnoj, Ehlvest, Hubner
og Judit Polgar, svo fáeinir séu
nefndir. Mótinu lýkur 30. desember.
Jólamót
grunnskólanna
Æfingaskóli KHÍ sigraöi á jóla-
skákmóti grunnskólanna í Reykjavík
sem fram fór 2. desember. Æflnga-
skóliim fékk 23 v. af 24 mögulegum.
Sveitina skipuðu Amar E. Gunnars-
son, Bjöm Þorfinnsson, Oddur Ingi-
marsson og Davíð Ó. Ingimarsson.
Hlíðaskóli, með Torfa Leósson á 1.
borði, varð í öðm sæti með 16 vinn-
inga og Ölduselsskóli, með Hreggvið
Ingason á fyrsta borði, fékk 15,5 v.
og þriðja sæti.
í yngri flokki sigraði Æfingaskól-
inn einnig, fékk 21 v. af 24 möguleg-
um. Sveitin var skipuð Braga Þor-
flnnssyni, Bjama Kolbeinssyni,
Héðni Bjömssyni og Magnúsi Bimi
Ólafssyni - varamaður Valgeir Am-
ar Knútsson. Melaskóli varð í 2. sæti
Umsjón
Jón L. Árnason
með 17,5 v. og Hólabrekkuskóli fékk
17 v. og hreppti þriðja sæti.
Mót hjá TR
Tuttugu keppendur tóku þátt í Bik-
armóti Taflfélags Reykjavíkur sem
er nýlokið. Sigurvegari varð Páii
Agnar Þórarinsson sem fékk 12 v.
Krisiján Eðvarðsson varð í 2. sæti
með 10 v. og Einar K. Einarsson í 3.
sæti með 11. v. en hann var á undan
Kristjáni að tapa 5 skákum og falla
þar með úr keppni.
Þá tóku 15 sveitir þátt í VISA-
skákklúbbakeppni TR, þar sem
óformlegar skáksveitir úr heimahús-
um eigast við. Hlutskörpust var sveit
BDTR (Þröstur Þórhallsson, Andri
Áss Grétarsson, Sigurður Daði Sig-
fússon og Þráinn Vigfússon) með 30,5
v. af 36 mögulegum. Formanna-
klúbburinn (Guðmundur Gíslason,
Ágúst S. Karlsson, Guðmundur HaU-
dórsson, Ámi Á. Ámason og vm.
Valgarð Ingibergsson) varð í 2. sæti
með 26,5 v. og „Taktík“ (Hlíðar Þór
Hreinsson, Páll A. Þórarinsson, Har-
aldur Baldursson og Ingvar Jóhann-
esson) hreppti 3. sæti með 23 v.
CYCL07Fr
Þegar heilsan og
tíminn skipta máli.
Með hraða örbylgjuofnsins og
eiginleika blástursofnsins.
TVEIRIEINUM
Heitur blásturinn:
Steikir
Bakar
Brúnar
Grillar
Hitar
- Fitusnauð og heilsusamleg eldamennska
- Orkusparandi
- Þrisvar sinnum fljótari en venjulegur ofn
- Léttur og fyrirferðarlítill
- Auðvelt og fljótlegt að þrífa
- Engar olíur, ekkert smjör
- Bara krydd á matinn
- Stækkanlegur
Hringdu
í síma
91-676869
Umboðsmenn:
ísafjörður - Straumur
Keflavík - Ljósboginn
Egilsstaðir - Kaupfélag Héraðsbúa
Rafbraut - Bolholti 4
Alþjóða Verslunarfélai|ið laf.
Skútuvogi 11 S (91-)67 68 69
104 Reykjavík
Fiske
bouillon
r>rZ Svine
kodkraft
0kse
kedkraft
sovs
Alt-i-éit teming
-med smag, kulör og jævning
Gronsags
bouillon
Lamb
STOCK CUBES
Klar bouillon
Sveppa-
kraftur
Alltaf uppi á
teningnum!.
kraftmikið v
oggott {
bragð!