Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1993, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1993
- litið inn til Sigríðar Júlíu Bjarnadóttur, sem býr til hrekkjótta jólasveina
Móðir Sigríðar Júliu, Ásta Árnadóttir, sér m.a. um að tína hraunmola sem
jólasveinarnir eru látnir standa á.
Sigríður Júlía og dóttir hennar, Árný, virða fyrir sér jólasveinaskarann.
DV-myndir ÞÖK
í húsi einu í útjaðri Hafnaríjarðar
er allt morandi í jólasveinum. Þeir
eru af gamla skólanum og fötin
þeirra eru í sauðarlitunum. Þeir eru
rammhrekkjóttir og geta átt það til
að láta sig hverfa þegar minnst varir.
Þessir jólasveinar eiga heima í
vesturholtinu í Hafnarfirði. Þar býr
Sigríður Júlía Bjamadóttir líka og
hún hýr þá til. Þeir standa þarna í
hóp, Kertasníkir, . Kjötkrókur,
Hurðaskelhr, Gluggagægir og hinir t
níu. Gamla settið Grýla og Leppalúði "
eru þarna líka, grettin og grá.
Gerðu mikla lukku
Sigríður Júha nam í Myndhsta- og
handíðaskólanunm og var síðan við
nám í Bandaríkjunum. Fyrir svo sem
tíu árum datt henni í hug að búa til
jólasveina og gefa fjölskyldu sinni í
jólagjöf. Hún lét ekki sitja við orðin
tóm en bjó til nokkra sveinka. Þeir
gerðu mikla lukku og brátt fór hróð-
ur þeirra að berast víðar. Á endanum
fór Sigríður Júlía að selja í verslanir.
Nú eru jólasveinamir hennar fáan-
legir í Rammagerðinni og Kúnígúnd.
„Ég byrja venjulega að vinna við
gerð jólasveinanna í apríl-maí,“ sagði
hún, „og er alltaf að grípa í þetta allt
sumarið. Vinkonur minar verða oft
undrandi og spyrja hvort ég sé að
verða gahn, að sitja við að búa til
jólasveina yfir hásumarið. Ég véit ,
ekki hversu marga ég hef búið til og "
selt en það getur farið upp í 150 stykki
á ári ef vel gengur. Eg veit ekki
hversu marga ég er búin að láta frá i
mér frá því að ég byijaði, en það
væri gaman að komast að því. Þótt
ótrúlegt megi virðast verö ég aldrei (j
leið á þessu. Mér finnst oft eins og
ég sé með litla lifandi fugla í höndun-
um þegar ég er að búa þá til.“
Morghandtök
Það eru ótrúlega mörg handtök
farínnar
nunar
chinmoy:
Huliðsheimar og hugarlendur
Fagrar hœkur um lífmannsins, tilveru og tilgang.
DulskynjC”'" " w— Kvrrð —
Proski manns-
sálar.
Hver verða
örlög mann-
kynsins?
Kii U fi 2r
i.inar Ingvi M«gnúv>on
IIU LIÐSÖl-XUV
entlurhðldaun
Uffikrmg
Duhkynjanír
/slcrulinga mitt
ó mt.öal okktir
/ nútímanum.
Iluldufólk í
Hegranesi og
fmgladcm'rínn
á herbergi 417
á Hrafnistu.
Vissulega eru
huldir kraftar
allt f kringum
okkur.
FJÖLVI
FJOLVI - VASA