Þjóðviljinn - 23.12.1964, Page 9

Þjóðviljinn - 23.12.1964, Page 9
um farmiða með járnbrautar- lest og fimm dollara. Þetta þykir réttvísinni hæfilegt handa manni, sem á að hverfa aftur til siðsamlegs og heiðarlegs lífs í sam- félaginu. Fangelsisstjórinn fékk honum vindil, og kvaddi hann með handabandi. Val- entín, 9762, var strikað út af skránni, og 'þessum orðum hætt við síðast: „Landstjór- inn náðaði hann“. Herra Ja- kob Valentín gekk út. Úti var , sólskin. Jimmy tók ekki eftir tísti fuglanna, ilminum af gróðrinum eða trjánum, sem svignuðu fyrir vindinum, held- ur fór hann beina leið inn í kaffistofu. Þar fékk hann sér steiktan kjúkling og flösku af fauðvíni, og auk þess vindil sem var heldur skárri en sá, sem fangelsisstjórinn hafði gefið honum. Svo gekk hann í hægðum sínum yfir til járn- brautarstöðvarinnar. Hann fleygði hálfum dollar í blind- an mann sem sat við hliðið, og fór svo inn í einn vagninn. Þremur tímum síðar fór hann úr vagninum á lítilli millistöð. Siðan ge'kk hann rakleitt inn í kaffistofu Mike Dolans og heilsaði Mike, sem stóð ein- samall fyrir innan borðið. »Mikill klaufaskapur var þetta að láta þig sitja svona lengi“, sagði Mike. „En við vorum í t'andræðum með þessi mót- ftiæli frá Springfield, og það iá við sjálft að landstjórinn léti sig ekki. Hvernig líður Þér?“ „Ágætlega", sagði Jimmy. „Veiztu af lyklinum mínum?" Hann tók við lyklinum og íór upp til sín. Síðan opnaði b&nn hurð að herbergi, sem sneri út að húsagarðinum. ^*ar var allt með sömu um- ftterkjum. Á gólfinu lá skyrtu- hnappur leynilögreglumanns- lns, sem sendur hafði verið að handtaka Jimmy, og hafði homið til handalögmáls milli Þ®irra. Jimmy dró hverfi- rúm sitt fram úr veggnum, ' °Pnaði leynihurð í vegginn, haði í rykuga tösku og setti hana á gólfið. Hann opnaði ^Öskuna, leit með aðdáun á hinbrotstólin sín, svo fögur ÉkA ... Hann opnaði leynihurð í vegginn, náði í s/ rykuga tösku og setti hana á gólfið. Hann opnaði töskuna og leit með aðdáun á innbrotstólin sín, svo fögur og fín. Ekkert vantaði. Allt var smíðað úr hertu stáli, allt af nýjustu gerð ... og fín. Ekkert vantaði. Allt var smíðað úr hertu stáli, allt af nýjustu gerð: nafarinn og sporjárnið og járnkarlinn, með fjölbreyttum handföngum og aukahlutum, lásfjötrar, renni- borar og meitlar, ásamt tveim- ur á'höldum, sem hann hafði sjálfur fundið upp, og þóttist mikið af. Hann hafði orðið að borga meira en níu hundr- uð dollara fyrir að láta smíða þau hjá, — já, þar sem smíð- að er handa þessháttar sér- fræðingum, sem Jimmy var. Hálftíma síðar fór Jimmy ofan aftur og út um kaffi- stofuna. Hann .var vel til fara í fötum sem höfðu verið snið- in og saumuð á hann, og hélt á tösku sinni í hendinni. Það sást ekki á henni eitt rykkorn. „Áttu nú eitthvað annríkt?“ spurði Mike kumpánlega. „Ég“, sagði Jimmy hissa. „Hvað ertu að tala um? Ég á nógu annríkt, ég sem er um- boðsmaður Samsteypu kex- og hrökkbrauðsverksmiðjanna“. Þetta þótti Mike svo skemmtilegt svar, að hann bauð Jimmy upp á ávaxta- drykk með mjólk út í, því hinn síðarnefndi snerti aldrei áfenga drykki þegar hann starfaði að einkaiðju sinni. Viku eftir að Valentín, 9762, var látinn laus, var framið innbrot og smáþjófn- aður í Riohmond í Indiana. Ekki var stolið nema átta hundruð dollurum. Tveimur vi'kum síðar var opnað pen- ingahólf, sem svo vandað var að frágangi, að ábyrgzt hafði verið, að það væri fullkom- lega þjófhelt, og þjófnum hafði veitzt þetta jafn auðvelt sem að skera sneið úr osti. Fimmtán hundruð dollurum hafði verið stolið, en verðbréf og silfurpeningar látnir ó- enertir. Nú fyrst fór lögreglunni að þykja vandast málið. Og svo gerðist það, að gömul kjall- arahvelfing í banka i Jefferson City tók að ókyrrast og framdi innbrot á sjálfri sér og spýtti út úr sér fimm þús- und dollurum í seðlum beint i framréttar hendur einhvers óskilgreinds manns. Þegar þetta fréttist, var sjálfur Ben Price kvaddur til. Hann gerði samanburð á framburði vitna og þóttist af því mega draga þá ályktun, að sami maður hefði verið að verki í öll þrjú skiptin, vegna þess hve margt var líkt með vinnubrögðunum. Ben Price fór síðan og skoð- aði sig um á öllum stöðunum, síðan sagði hann svo: „Það er Jim Valentín og enginn annar, sem þetta hefur framið. Hann er kominn á stúfana aftur. Sko þessa margbrotnu læsingu. Hún hef- ur verið opnuð jafn auðveld- lega og gulrót er dregin upp úr mold. Enginn nema hann á svona fullkomin áhöld. Takið eftir hve fallega er að þessu farið. Hann borar aldrei nema eitt gat. Líklega verð ég að reyna að ná fundi herra Val- entíns. Honum verður varla sleppt lausum og því síður verður hann náðaður ef við náum i hann núna.“ Ben Price þekkti lagið á Jimmy. Hann vissi að hann var vanur að grípa tækifærið eldsnöggt, draga sig svo í hlé um lengri tíma, vera einn á ferð og einn um hituna, og sækjast eftir samvistum við heldra fólk, — og allt þetta í sameiningu hafði gefizt hr. Valentín svo vel, að enn vantaði hið fullkomna sönnun- argagn gegn honum. Nú frétt- ist að Ben Price myndi vera á höttunum eftir þessum skör- ungi í sinni mennt, og við það varð ýmsum léttara, sem áttu peningaskápa, sem enginn þjófur átti að geta opnað. Einn góðan veðurdag síð- degis sté Valentín út úr lest- arvagni með tösku sína, þetta var í Elmore, litlum bæ, sem er fjarri öllum almannaleiðum í Arkansas. Jimmy sýndist vera íþróttamaður og stúdent að koma I sumarleyfi heim frá háskóla sínum. Hann stefndi beint í átt til hótels- ins. Ung stúlka fór yfir gang- bautina og framhjá honum inn um dyr sem á var letrað „Elmore Bank“. Jimmy Val- entín leit djúpt í augu henni, og á samri stund var allt orð- ið breytt. Hann varð að nýj- um manni. Hún leit niður fyr- ir sig og roðnaði upp í hárs- rætur. Svona laglegan mann hafði hún aldrei séð. Jimmy sneri sér að stálp- uðum dreng, sem stóð með hendur í vösum og studdist við húshorn bankans, og spurði hann spjörunum úr um bæ þennan og gaf honum tíu sent við og við svo hann yrði greiðari í svörum, og á þessu gekk þangað til unga stúlkan kom út. Hún lét sem hún sæi ekki manninn og hélt leiðar sinnar. „Þessi unga stúlka, er það Polly Simpson?11, spurði hann drenginn af bragðvísi sinni. „Nei, þetta er Annabel Adams. Faðir hennar á bank- ann. Hvaða erindi áttuð þér hingað ? Er gull í þessari úr- festi. Ég ætla að kaupa mér hund. Eigið þér meira af tíu sentum?“ Jimmy fór nú inn í hótelið og skrifaði nafnið Ralph M ... Jimmy stakk rósinni í vestisvasa sinn, fór ^ '' úr jakkanum og bretti upp skyrtuermarnar. ^alph Spencer var horfinn og Jimmy Valen- *'n kominn í stað hans .. ww Spencer í gestabókina. Svo tók hann hótelþjóninn í forsaln- um tali, og sagði honum af högum sínum. Hann sagðist hafa komið til bæjar þessa í þeim tilgangi að stofna þar verzlun. Vantaði kannski ekki skóverzlun ? Ætli það væri mi'kill vandi? JÓLABLAЗ-9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.